Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða
Notendur
Re: Kaupiru heimspekibækur?
í Heimspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Æi þetta var nú samt ekki tæmandi listi. Maður á nú e-ð fleira. Nenni ekki að gera þessu nákvæmlega skil.
Re: Kaupiru heimspekibækur?
í Heimspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Endurtekningin eftir Sören Kierkegaard kveikir alltaf á einhverju undarlegu ljósi í höfðinu á mér. Ég ætla að skila henni til vinkonu minnar og kaupa hana sjálfur. Ég á heimspekisöguna, nokkrar bækur úr lærdómsritaröðinni, lítil hefti um siðfræði og fornaldarheimspeki, tvær eftir Nietzsche, yfirlitsrit um existensíalisma og póstmódernisma. Annars er maður bara duglegur að heimsækja bókasöfnin, nánast of duglegur. Svo getur netið líka hjálpað manni að verða kjaftafær um ótrúlegustu hluti.
Re: Íslensku vefverðlaunin 2002 (tilnefningar)
í Tilveran fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Æji voðalega er þetta e-ð íhaldssamt val fyrir besta útlitið.
Re: Tarotspil innihaldsrík speki eða bara spáspil???
í Dulspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Veit einhver hvaðan tarotspil eru upprunnin? Ég las einhvers staðar að Musterisriddararnir (Knights Templar) hefðu búið til bæði tarotspilin og mannspilin sem við spilum okkur til skemmtunar. Þeir komust víst í kynni við einhverja exótíska speki í krossferðunum, hugsanlega við kynni sín af súfistum/ismaelum frá Íran.
Re: Eldur í Reykjavík - myndir sem ég tók í nótt
í Tilveran fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Re: Smá "How to draw" sýnishorn.
í Myndasögur fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Já já, ég teikna eitthvað. En nenni yfirleitt ekki að klára þannig að það verði eitthvað af viti úr því. Kann alveg að teikna og allt svoleiðis… :)
Re: Smá "How to draw" sýnishorn.
í Myndasögur fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Ég tek að ofan fyrir þér Ingi. Hversu harðan blýant notarðu við skyssurnar áður en þú pennar í þær.
Re: Svalur og Valur
í Myndasögur fyrir 23 árum, 7 mánuðum
En ef þú safnar belgískum/frönskum myndasögum bendi ég þér á bókamarkað Fjölva á Laugavegi 178 sem stendur yfir núna. Þar eru t.d. til allar Tinnabækurnar á 600 kall stykkið.
Re: Svalur og Valur
í Myndasögur fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Þær fara með mér í gröfina.
Re: Litavandræði
í Heimilið fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Af hverju ekki appelsínugulan? Þetta þarf ekkert að vera andstæður litur. Ekki viltu hafa fjólubláan vegg? Ég segi appelsínugulur eins og appelsína.
Re: crowley og thelema
í Dulspeki fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Ég er enginn sérfræðingur og hef ekki lesið mikið eftir hann en ég hef heyrt að The Book of Lies sé rosalega góð. Svo er náttúrulega fullt af síðum um þetta á netinu: http://www.dowhatthouwilt.com
http://www.beastbay.com
http://www.thelemicgoldendawn.org/acf
Re: FSOL kynnir Amorphous Androgynous: The Isness
í Raftónlist fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Já hún venst vel. Fyrst var ég svolítið sjokkeraður yfir umskiptunum frá Dead Cities. Maður er vanur að heyra cyberpunk og slæm sýrutripp frá þessum mönnum en svo eru þeir allt í einu farnir að hljóma eins og John Lennon og Ziggie Stardust. Þetta er pínu sjokk fyrir gamla raftónlistarjálka eins og mig (Lifeforms breytti lífi mínu þegar ég var 15) en þar sem ég er að mestu leyti búinn að skipta yfir í rokkið núna er ég móttækilegri fyrir svona hlutum. Ef manni finnst sum lögin væmin og...
Re: Robin Williams
í Kvikmyndir fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Örugglega ágæt grein, en mér finnst Robin Williams einn leiðinlegasti maður á jarðríki. Robin Williams er fyrir mér í flokki með Will Smith, Mel Gibson og Juliu Roberts. Ef einhver af þessum leikurum leikur í mynd reyni ég að forðast hana í lengstu lög nema í örfáum undantekningatilvikum (Million Dollar Hotel, Signs og Insomnia voru sæmilegar). En þetta er bara mitt persónulega álit.
Re: Góður andi í húsinu.
í Heimilið fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Rétt er það að hús geta haft misgóðan anda. Ég held að litir og birta skipti mestu máli varðandi það. En það er ekkert samasemmerki á milli gamals og góðs. Sum gömul hús eru eins og helvíti. Ég man eftir húsi afa míns og ömmu sem var ekkert nema drungi og óþægindi. Í kjallaranum var moldargólf og drullugir veggir. Allt annað var dimmt og brúnt og lokað. Sum gömul húsgögn virka mjög niðurdrepandi á mig, sérstaklega dökk og flúruð húsgögn. Módernísk hús geta líka haft góðan anda. Hafið þið...
Re: PHP, Flash, Mysql og ýmislegt annað
í Vefsíðugerð fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Voðalega ertu mikill kassi
Re: netlistaverk
í Bókmenntir og listir fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Hver ert þú eiginlega og hvaðan kemur þú? Ertu menntaður myndlistarmaður með forritunarkunnáttu? Hvar lærðirðu? Er þetta bara gert í Flash? Vá maður verður að fara að læra á Flash. Ég er djúpt snortinn af þessu. Segðu okkur meira frá verkinu og sjálfum þér.
Re: FSOL kynna Amorphous Androgynous: The Isness
í Rokk fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Þú getur byrjað á því að hlusta á prufurnar á Amazon.com. Veit ekki hvort það er nokkuð til á Kazaa. Promo diskurinn hefur gengið manna á milli frá því í sumar hjá hörðustu FSOL-hausunum. Það komu víst örfá eintök í Þrumuna nýlega en þau eru búin. Vonandi taka hinar búðirnar við sér bráðlega.
Re: enn annað skemmtilegt innskot
í Raftónlist fyrir 23 árum, 7 mánuðum
“We are a way for the universe to know itself. Some part of our being knows this is where we came from. We long to return. And we can, because the Cosmos is also within us. We're made of star stuff.” Carl Sagan
Re: FSOL kynna Amorphous Androgynous: The Isness
í Rokk fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Málið er að ég vil kynna þennan disk fyrir rokkurunum sem þekkja kannski ekki þessa hljómsveit. Teknóhausarnir sem muna eftir gömlu plötunum þeirra eru ekki alveg opnir fyrir þessari sækadelísku stefnu þeirra. Því miður eru sumir þeirra svolítið þröngsýnir og hlusta ekki á neitt sem hefur ekki tölvupíp og elektrónískan takt. Rokkararnir hafa sömuleiðis margir hverjir fordóma fyrir raftónlist og kíkja ekki inn á það áhugamál. Þessi diskur er algjört raf-rokk crossover og á því heima í báðum...
Re: Kertagaldrar - undirbúningur (3)
í Dulspeki fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Æi eru þetta ekki bara props? Galdurinn er ekki í hlutunum. Ég er búinn að galdra og það er ekki svona flókið. Maður getur alveg eins farið í göngutúr um borgina og upplifað galdur/gnosis.
Re: Áttaði mig á tilgangi lífsins! =)
í Heimspeki fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Ég segi það nú. Það væri gaman að heyra einhver rök.
Re: netlistaverk
í Bókmenntir og listir fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Þetta er zschnilld!!!
Re: Mistök
í Deiglan fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Ertu svo viss um nasistar séu mikil andstæða kommúnista? Mér finnst ekki mikill munur á því hvernig þessum stefnum hefur verið framfylgt. Báðar ólu af sér alræðisríki, skert einstaklingsfrelsi, bókabrennur o.s.frv. Báðar voru sósíalistastefnur. Marx var alveg jafn mikill gyðingahatari og Hitler (já, þó að hann hafi sjálfur verið gyðingur). Mér finnst e.k. brenglun í fjölmiðlum þegar þeir reyna að telja okkur trú um að það sé einhver mikill munur á svokölluðu öfgahægri og öfgavinstri. Halló,...
Re: Að drepast úr leti og lífsleiða
í Heilsa fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Darkside er greinilega í góðum tengslum við hina dökku hlið sálarinnar. Hann “felur” óttann og minnimáttarkenndina með hroka, reiði og árásargirni. Greinilega ekki vel að sér í málvísindum og táknfræðum. Sennilega einn af þessum menntskælingjum sem létu troða í sig “réttri” málfræði og héldu svo áfram í áframhaldandi mötun hugsunarlaust. Tungumál er undirstaða getu okkar til að hugsa og tjá okkur um veruleikann. Greinilegt að hugsun Darkside var “fryst” fyrir 150 árum. Hvernig getur maður...
Re: Gyðingar
í Deiglan fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok