Nú er meiri hlutinn á þessu áhugamáli (ótrúlega margir allavegana) sem trúa engann veginn á þetta og eru bara hér til að benda okkur hin á hversu vitlaus við erum. Því langar mér að spyrja þessa snillinga um að útskýra þetta fyrir mér. Afi minn sem lést fyrir stuttu hafði verið á spítala með krabbamein. Og einn daginn þegar amma er heima þá sér hún hann og hann kveður hana og hverfur. Stuttu seinna kemst hún að því að hann er dáinn. Og amma mín hefur aldrei haldið því fram að hún sé skyggn eða eitthvað svoleiðis.