Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: áhyggjuefni vegna ritters?

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 8 mánuðum
æi herra Political, stofnaður bara til að ergja aðra hugara, sennilega af sama manni og bjó til Peace4all. Er ekki kominn tími til að stoppa þennan hálfvita?

Re:

í Kvikmyndir fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Hvað nákvæmlega er til að skilja í þessari mynd? Hún skilur ekkert eftir til að hugsa um. Það getur ekkert farið framhjá manni ef maður nennir að vaka yfir þessu. Grænir karlar ráðast á jörðina. What's the big deal? Þetta hefur verið gert milljón sinnum. Skilurðu? P.s. Lærðu að skrifa íslensku.

Re: sigurrós

í Hugi fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Sigur Rós flokkast nú samt ennþá undir rokk. Það mætti kannski gera kork fyrir svona post-rokk.

Re:

í Kvikmyndir fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég held að “líkur sækir líkan” heim eigi frekar við þá sem halda að þessi mynd hafi eitthvað gáfulegt fram að færa. Skoðaðu aðeins aftur fullyrðingu þína um að ég sé heimskur. Er það ekki einmitt lýsandi fyrir heimskt fólk að sjá ekki þegar þeim er sýnt eitthvað heimskulegt? Þú ert greinilega samdauna heimskunni. Jú jú, þessi mynd var sæmileg afþreying sem geimveru genre-mynd, en hafði ekkert nýtt fram að færa. Ég er ekki að segja að mér hafi beinlínis leiðst á henni, en ég bjóst við...

í Kvikmyndir fyrir 23 árum, 8 mánuðum
***SPOILER*** fyrir þá sem vilja sjá þessa ömurlegu mynd. Viðvörun fyrir hina sem hafa ekki gaman af kvikmyndum í anda Mars Attacks. Hvað er að ykkur? Þessi mynd er drasl! Kommon, grænar geimverur sem ætla að taka yfir jörðina!?! Maður hélt að þetta væru einhverjar skynsamlegar pælingar um þessa akurhringi, en hvað fær maður? Innrásin frá Mars í nýjum búning. Og svo allir gallarnir í sögunni sem einhver nefndi. Þær búa yfir hátækniþekkingu en geta ekki opnað hurðar! Þær þola ekki vatn en eru...

Re: Donnie Darko

í Kvikmyndir fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ef þú heldur að þú hafir skilið myndina strax, hugsaðu þig þá aðeins betur um. Mæli með að þú kíkir á heimasíðuna www.donniedarko.com. Þar eru aukaupplýsingar, blaðsíður úr bókinn Philosophy of Time Travel sem hjálpa manni að skilja myndina. Þetta aukaefni verður vonandi á dvd disknum. Ég held að það sé ómögulegt að skilja myndina til fulls án þessara upplýsinga.

Re: Kristni, ófullkomin heimspeki?

í Heimspeki fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Sammála. Mér finnst þetta óþarfa útúrsnúningur hjá Gabbler. Það breytir engu um sannleiksgildi Gamla testamentsins þó að menn hafi ekki haft sömu vísindaþekkingu þá og í dag, og dýr hafi ekki verið flokkuð á sama hátt. Biblían er sögð vera innblásin af guði en auðvitað er hún skrifuð af mönnum sem bera merki þess tíma sem þeir eru uppi á. Og svo er auðvitað þýðingarvandinn. Það er heldur ekki ætlast til að allt sé skilið bókstaflega. Margir leggja táknræna merkingu í Gamla testamentið. Torah...

Re: Sambandi við "Heimspekiáhugamálið er á :"

í Heimspeki fyrir 23 árum, 8 mánuðum
<i>…hún er að breytast í rugl (heimspeki) eða hluti sem hversdags maðurinn kemur upp með án þess að hugsa út í hvað það er sem hann/hún er að tala um og kalla það síðan heimspeki.</i> Ekki veit ég alveg hvað þú ert að meina með þessu en ef við fáum fleiri greinar eins og <a href="http://www.hugi.is/heimspeki/greinar.php?grein_id=40839">Er ég að verða geðveikur eða ekki?</a> þá fer gamanið að kárna. Það er rétt hjá þér að umræðan hefur ekki beinlínis verið um heimspeki undanfarið, meira um...

Re: ósýnilegar verur!!

í Dulspeki fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Mér þykir leitt að segja þér að það eru ekki til álfar og huldufólk. Ímyndunaraflið er margslungið, sérstaklega hjá börnum, og það getur t.d. farið á kreik þegar þau eru einmana. Þú sagðir að þú hefðir ekki átt neina vini. Kannski hefur einhver sagt þér sögur af álfum og þú farið að sjá þá fyrir þér. Ég mæli með því að þú talir við einhverja góða manneskju sem getur hjálpað þér að losna við þessa óvelkomnu gesti, t.d. sálfræðing. Sennilega vex þetta samt af þér þegar þú þroskast. Þú skalt...

Re: Kristni, ófullkomin heimspeki?

í Heimspeki fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Hehe, loksins er Gabbler kominn með einhvern sem hann getur rifist við. Ein spurning til Matta trúaða. Ef guð skapaði jörðina, hvernig gat þá djöfullinn boðið Jesú öll ríki heims ef hann félli fram og tilbæði hann (sbr Matt 4:8-9)? Bendir það ekki til þess að jörðin sé í raun yfirráðasvæði djöfulsins? Ég veit að samkvæmt gyðingatrú er guð alvaldur og djöfullinn aðeins engill hans, sendur til prófa trú mannsins, afvegaleiða hann um stund svo að hann komi fagnandi aftur til guðs. En eitthvað...

Re: Öxulveldi Ömurleikans; Saudi Arabia

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég spegla þessu með heilaþvottinn til baka á þig. Ef þú hefðir lesið textann hefðirðu séð að já, ég hef hitt og haft góð kynni af múslima. Ég hef ekkert út á þetta fólk að setja per se. Auðvitað eru allir missterkir í trú sinni, ganga mislangt í að lifa eftir skipunum trúarleiðtoga. Ég hef hins vegar á móti hugmyndafræði trúarinnar í framkvæmd, þegar lifað er eftir skipunum Múhammeðs og hermt eftir lífsháttum hans til fullnustu. Þeir sem eru veikir í trúnni eiga alla mína samúð, og ég vona...

Re: Öxulveldi Ömurleikans; Saudi Arabia

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Já ég játa það að hún var úr lausu lofti gripin, greinilega ekki með hlutföllin alveg á hreinu. Þetta var meira ætlað til að koma sjónarmiði á framfæri, ekki nákvæm tilvitnun í trúartexta. Þú ert að höggva í smáatriði. Auðvitað er þetta einföldun. En jú, það er reyndar nóg að biðjast fyrirgefningar synda sinna og trúa á Jesú, upprisu hans o.s.frv. Kristin trú og gallar hennar er þó heilt umræðuefni út af fyrir sig. Rétt er það að hún hefur ekki síður getið af sér hörmungar með...

Re: Öxulveldi Ömurleikans; Saudi Arabia

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Sæll. Já auðvitað eru til vandaðir og góðir múslimar, þeir eru misjafnir eins og mennirnir eru margir. Það eru ekki mennirnir sem eru slæmir heldur hugmyndirnar sem þeir bera með sér. Ég var svo heppinn að kynnast frábærum Tyrkja í háskóla erlendis, sem var einn besti kennari sem ég hef nokkurn tíma haft. En hann var frekar “liberal” múslimi og sagði trúmál vera persónulegt mál hvers og eins. Ég vildi að þeir væru allir eins og hann. Það er helst ef múslimar taka trúarbrögðin mátulega...

Re: Öxulveldi Ömurleikans; Saudi Arabia

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Mér finnst skuggalegt hvernig íslenskur almenningur virðist vera kominn niður á samhljóða álit að Palestínumenn séu góðir og Ísraelsmenn vondir. Ég leyfi mér að álykta að þetta sé gamalt gyðingahatur sem hefur blundað í þjóðarsálinni og sprettur nú upp á yfirborðið við fyrsta tækifæri. Athugið að arabarnir hafa næga bandamenn og athvarf í öllum þeim arabalöndum sem umkringja Ísrael/Palestínu. Málið snýst ekki um hina ástkæru fósturjörð sem er verið að taka af þeim. Málið snýst um hatur...

Re: Gabbler hinn auðmjúki.

í Heimspeki fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég bið alla sem hafa móðgast vegna orða minna innilega afsökunar. Ég ætlaði ekki að virðast hrokafullur, en mér fannst þetta bara algjörlega utan við efnið hjá honum Popcorn, og satt að segja fannst mér pínulítið yfirlætislegur tónn í þessu hjá honum (afsakið ef ég misskildi og pls ekki gera fleiri pósta úr þessu máli). Ég var ekki í keppni um það hver veit meira um flókna stærðfræði (sem ég er ekkert sérstaklega vel að mér í) heldur var ég einfaldlega að kasta því fram að hugsanlega væru...

Re: Kristni, ófullkomin heimspeki?

í Heimspeki fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Popcorn: Takk fyrir langa ræðu um óreiðukenninguna. Ég get svo sem orðið mér úti um upplýsingar um hana annars staðar ef ég hef áhuga og tíma, en hún var ekki til umræðu hér per se. Þú ættir kannski að einbeita þér að menntaskólastærðfræðinni áður en þú ferð að kenna þér lærðari mönnum. Svo við höldum okkur við efnið sem umræðan á að snúast um. JonSkuli spyr, hvernig fullkominn guð geti skapað ófullkominn heim. Ég vil ekki líta svo á að heimurinn sé svo ófullkominn, því það er í valdi...

Re: Kristni, ófullkomin heimspeki?

í Heimspeki fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Mér fannst þessi setning eiga vel við lýsingu sem kabbalistar gefa stundum á guð, sem er einn en líka alls staðar. Ekkert sem gerist á jörðinni er ekki vilji guðs, hversu grimmilegt sem það kann að hljóma. Það eru ekki margir guðir með mismunandi vilja heldur einn guð með einn vilja sem birtist alls staðar. Ég hélt að hann væri að tala um að guð væri ekki persónulegur guð hvers og eins en þú virðist skilja þetta sem svo að hann sé ekki persóna. Ég er alveg sammála því að hann er ekki persóna...

Re: Kristni, ófullkomin heimspeki?

í Heimspeki fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Teningur er nú ekki flókið kerfi, ég efast ekki um að það sé hægt að setja teningakast upp í einhverja formúlu. Kaos er líka skipulag. Er í raun til eitthvað sem heitir random? Ég skilgreini guð sem reglu í náttúrunni, og það er sami guð og Spinoza, Einstein og margir kabbalistar trúðu á. Guð býr í gaddavírnum, amma (Megas)

Re: Kristni, ófullkomin heimspeki?

í Heimspeki fyrir 23 árum, 8 mánuðum
“God does not play dice with the Universe” Hann lagði að jöfnu náttúrulögmálin og guð. Það er það sem þessi setning sannar. “Transcend a personal god” ef þetta er ekki eingyðistrú þá veit ég ekki hvað er það. Augljóslega er hann samt að hafna skipulögðum trúarbrögðum og bókum skrifuðum af guði. En hann hefur greinilega orðið fyrir e.k. mystískri/trúarlegri upplifun í tengslum við vísindalegar uppgötvanir. Ef þið hafið eitthvað kynnt ykkur gyðingdóm, og sérstaklega dulspekihefð þeirra...

Re: Kristni, ófullkomin heimspeki?

í Heimspeki fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Það virðist hins vegar margt benda til þess að Einstein hafi aðhyllst einhvers konar alheimstrú, ekki ósvipað og það sem ég var að tala um, sem samræmist alveg ýmsum trúarspekingum gyðinga, t.d. Spinoza. Hann virðist jafnvel hafa fengið hugmyndir á einhvern dulspekilegan hátt, ekki ósvipað og kabbalistar gyðinga, sem síðar voru væntanlega prófaðar með “vísindalegum” aðferðum. Nokkur quote frá Einstein: “The most beautiful emotion we can experience is the mystical. It is the power of all true...

Re: Kristni, ófullkomin heimspeki?

í Heimspeki fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Fólk var ekki að gefa fórnir fyrir Jesú. Hvað meinarðu með þessu? Jesú er, á einhvern undarlegan hátt sem ég skil ekki, fórn fyrir syndir okkar hinna. Hann er e.k. mannfórn, síðasta fórnin sem þurfti að færa. Kristnir menn minnast þess með e.k. táknrænu mannáti, þ.e. altarisgöngunni, þar sem oblátan og vínið táknar líkama og blóð krists. Kaþólskir prestar trúa því að brauðið og vínið umbreytist í raun í líkama og blóð Krists. Þetta er náttúrulega sick! (Ég dreg reyndar stórlega í efa að Jesú...

Re: Sendi djöfullinn...

í Dulspeki fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Þessir Omega-menn eru náttúrulega léttklikkaðir. Ég skil ekki hvað risaeðlurnar koma Adam og Evu við. Adam og Eva eru náttúrulega bara táknræn fyrir fyrstu mennina. Það þarf ekki endilega að taka sköpunarsöguna bókstaflega, jafnvel þó að maður trúi á Biblíuna. Margt sem skrifað er í Torah/gamla testamentið verður aðeins lesið á táknrænan hátt. Þetta fólk þarna á Ómega ætti að reyna að kynnast djöflinum betur fyrst það hefur svona mikinn áhuga á honum, og sjá hvort það lærir ekki eitthvað um...

Re: Kæri ritter; hver er þín skoðun á innflytjendum

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Ég mat greinilega ekki stöðuna rétt. Ég hélt að það væri hægt að tala við þig á vitrænum nótum en þú ert augljóslega ennþá á sandkassaaldrinum. Ég sé eftir að hafa eitt tíma og meitluðum vísdóm í mannleysu eins og þig. Þú getur andað rólega því þetta verður í síðasta skipti sem ég svara þér.

Re: Kæri ritter; hver er þín skoðun á innflytjendum

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Þú varst líka svolítið neikvæður þegar þú svaraðir mér, en mér er svo sem alveg sama. Ég nenni ekki að fara að rökræða um ágæti einnar stjórnmálastefnu fram yfir aðra. Ég segi: engin stjórnmál eru bestu stjórnmálin, en það er víst ekki hægt alveg strax, ekki á meðan blóðþyrstir morðingjar ráða stórum hluta heimsins. Það er fallega barnslegur einfaldleiki að halda að kommúnismi gangi upp sem stjórnmálastefna (sem persónuleg lífsspeki og í afmörkuðum kommúnum upplýstra manna er þetta frábær...

Re: Kæri ritter; hver er þín skoðun á innflytjendum

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Og með mynd af Kastró?! Ekki er það falleg heimsmynd sem þú býður upp á. Er það kommúnískt heimsþorp sem þessi félagsskapur stendur fyrir, eða er það kannski alveg klofið eftir því hver talar? Veistu hversu margir hafa fallið í valinn í nafni kommúnisma? Hefurðu lesið 1984 eftir George Orwell? Fasískt/kommúnískt New World Order er ekki það heimsþorp sem ég vil sjá í framtíðinni, og vona að flestir séu sammála því. Við viljum ekki að 20. öldin endurtaki sig, er það? Annars er hugmyndin um...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok