Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Svar til Ramax

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Veistu hvað það þýðir að tala um farísea í niðrandi merkingu? Á tímum Jesú skiptust gyðingar í þrjá hópa, farísea, saddúkea og essena. Talið er að essenasöfnuðurinn hafi þróast yfir í kristindóm og skilið sig alveg frá gyðingdóm. Saddúkear lögðu áherslu á skrifaða orðið en höfnuðu hinni munnlegu hefð gyðingdóms og Talmúðnum. Þeir hurfu algerlega með eyðileggingu musterisins 70 e.Kr. Þeir trúuðu gyðingar sem eru eftir í dag eru því arftakar faríseanna. Þú ert sem sagt að boða fyrirlitningu á...

Re: 11. sept.... Hvar voruð þið stödd?

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Já, Vesturlandahatarar/sjálfshatarar eru greinilega að taka yfir Ísland, a.m.k. Huga. Ég var í skólanum að hlusta á fyrirlestur. Kennari kom inn í stofuna og setti glæru á myndvarpann með mynd af árásinni, prentaða út af netinu. Ég brást stórundarlega við, ætlaði ekki að trúa þessu og hélt að þetta væri eitthvað grín. Ég verð að viðurkenna að á því augnabliki fannst mér eins og Bandaríkjamenn ættu pínulítið skilið að fá svolítinn rassskell. En svo áttaði ég mig á umfangi málsins. Það var...

Re: Grein Kasparovs um 11 Sept. og hryðjuverk , Nr.1

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Já já, taktu bara frekar mark á strangtrúuðum múslima sem á enga ósk heitari en að þú og þín siðmenning brenni í helvíti. Þessi prumpathugasemd þín stinkaði af gyðingahatri.

Re: 11. sept hvað?

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég er sammála Thulesol. Þetta var mjög smekklaus brandari og sýnir einfaldlega að höfundur greinarinnar hefur látið blekkjast af áróðri gyðingahatara. Þessi gamli djöfull, gyðingahatur, tekur alltaf á sig nýja mynd. Í dag eru “saklausu” Palestínumennirnir besta afsökunin fyrir gyðingahatri. Taktu til í höfðinu á þér, Xero. Orðalagið og röksemdafærslan bendir reyndar til þess að þú sért ungur að árum, sem afsakar hugsanlega barnalega einföldun á flóknum atburðum. Það er ekki hægt að stilla...

Re: Hvers vegna er kannabis ólöglegt?

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég held nú reyndar að kannabis geti þvert á móti hjálpað fólki að stíga út fyrir þess þrönga heim viðmiðana og sjá hlutina í stærra samhengi, ef það er notað í hófi og í þessum tilgangi. Hins vegar veit ég að margir verða slappir og sljóir með stöðugri neyslu og láta afskiptalaust það sem gerist í samfélaginu. Ég held að menn eins og Félag Íslenskra Þjóðernissinna og Gunnar í Krossinum hefðu gott af því að fá sér í friðarpípu og sjá hvort þeir yrðu ennþá eins reiðir og fullir af hatri. Og...

Re: Er Guð gleymdur?

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Þú virðist leggja guð og náttúruna að jöfnu (sem er skref í góða átt), en það er ekki algilt hjá kristnum mönnum. Í raun bendir margt til þess að Jesú hafi litið á efnisheiminn sem illan heim skapaðan af illum heimssmiði. Hinn andlegi heimur guðs er þá í hrópandi andstöðu við þennan illa heim jarðarinnar. Menn áttu að forðast flest sem gerði þá að mönnum, lifa skírlífi og meinlætalífi og forðast gleði og glaum. Þennan boðskap hafa margir reynt að fela en hann lifir þó undir niðri í trúnni þó...

Re: Hvers vegna er kannabis ólöglegt?

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Gmaria, er þjóðin virkilega meðmælt banni á umræðu um tóbak? Ég man ekki eftir að hafa verið spurður að þessu. Forræðishyggjumenn með valdalosta eru enn einu sinni að seilast inn í einkalíf okkar og takmarka málfrelsi okkar. Þessi lög eru skömm fyrir þjóðina. Hvað varstu að tala um skapandi listræna starfssemi? Kemur hún í staðinn fyrir “vitræna getu til viðmiðana, og viðbragðsflýtis”? Ertu að segja að listamenn séu hasshausar, og þar að auki vitlausir upp til hópa? Ég skildi ekki alveg hvað...

Re: Að trúa er það sama og að eiga von

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég veit nákvæmælega hvað þú ert að tala um með að “sjá ljósið í enda ganganna”. Ég hef gengið í gegnum þá upplifun og krufið hana til mergjar. Ég fékk bara ekki sömu niðurstöðu og þú að ég þyrfti að fylgja einhverjum hópi með eitthvað trúarrit. Ég veit alveg að hamingjan er ekki í hlutunum. Hamingjan er í lífinu, fólkinu sem maður þekkir, listinni sem maður nýtur, góðu verkunum sem maður lætur af hendi, og máttinum sem er uppspretta alls þessa. Og “ljósinu í enda ganganna”. Guðs ríki er hér...

Re: kalt verður heitt

í Heimspeki fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég var nú ekki að pæla í þessu svona í bókstaflegri merkingu. Frekar að reyna að fá fólk til þess að velta fyrir sér fleiri andstæðum. Hvað ef allt sem þú heldur að sé rétt er rangt? Hvernig væri heimurinn þá? Við erum svo föst í tvíhyggjuhugsunarhætti með jákvæða áherslu á aðra andstæðuna. Ég held að það sé holl hugarleikfimi að velta fyrir sér öfugsnúnum heimi. Stilla öllu upp í andstæður og sjá hvort maður er hlutdrægur í aðra áttina, reyna svo að setja sig í spor hinnar andstæðunnar. Ef...

Re: Er Guð gleymdur?

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 8 mánuðum
“Grasrótarstarf og meinlæti. Ríki hans og lærisveinanna var á himnum en ríki presta í dag er á jörðinni.” Þetta er gott dæmi um skaðsemi kristilegra hugmynda. Ríki á himnum, hvenær komumst við í það? Jú, þegar við deyjum. Ríki á jörðinni, hver ræður því? Nú auðvitað djöfullinn! (sbr. Matt. 4:8-9). Þetta eru mannfjandsamleg trúarbrögð sem snúa lífinu upp á djöfulinn og tilbiðja dauðann/eftirlífið. Efnið/líkaminn/jarðríkið er illt. Andinn/sálin/guðsríkið er gott. Sjáið þið ekki neikvæðnina í...

Re: Er Guð gleymdur?

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Xenia, þetta er góður punktur hjá þér. Hópsálirnar sem er alveg sama um andleg mál halda kirkjunni uppi. Við trúleysingjarnir hugsum sennilega mest um trúarbrögð, við höfum a.m.k. tekið afstöðu. Mér finnst trú svo vafasamt hugtak. Það eru allt of margir sem trúa og allt of fáir sem hafa sannfæringu, vita að það er meira í heiminn spunnið en virðist við fyrstu sýn. Þessi hugmynd um almáttugan guð sem hugsar um okkur er svolítið eins og að fara aldrei undan verndarvæng foreldra sinna. Menn...

Re: kalt verður heitt

í Heimspeki fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Skemmtileg pæling. Hvað ef upp væri niður og niður væri upp?

Re: Er Guð gleymdur?

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Við sjáum verstu glæpina sem okkur hryllir mest við gerast hjá “guðhræddu” fólki, sbr. kaþólsku prestana í Bandaríkjunum. Aðskilnaður ríkis og kirkju er nauðsynlegur í nánustu framtíð. Sem betur fer eru stjórnmálamenn ekki að tala mikið um þessa opinberlega viðurkenndu sjálfsblekkingu, þ.e. kristnu trúna. Ekki misskilja mig, mér er annt um andleg málefni, en mér finnst þau vera persónulegt mál hvers og eins og harðstjórn að þvinga einni trú fram yfir aðra. Kirkjan er ekki að standa sig í...

Re: Kona grýtt til bana, getum við gert eitthvað!

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ahemm, ég vona að fólk sé ekki að misskilja mig sem einangrunarsinna. Ég er reyndar “múltikúltúralisti” og bíð með ofvæni eftir endurkomu '68 hugmyndafræðinnar í stökkbreyttri og betri mynd, án væmni og heimsku. Ég vil berjast fyrir því að frelsi, lýðræði og mannréttindi verði virt alls staðar í heiminum líka. Já, vestræna leiðin, en það þýðir ekki að fjölbreytt menning geti ekki blómstrað innan hennar. Mig minnir að ég hafi varið þetta svínakjötsbann á sínum tíma til þess að vera á móti...

Re: Kona grýtt til bana, getum við gert eitthvað!

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Hvaðan grípurðu þá “staðreynd” að það sé í eðli mannsins að vernda aðra og hjálpa öðrum. Jesú komst ágætlega að orði um eðli mannsins: “Því að þeim, sem hefur, mun gefið verða, og frá þeim, sem eigi hefur, mun tekið verða jafnvel það sem hann hefur.” (Mark. 4:25) Við lifum ekki á messíasaröld eða í Hálsaskógi þar sem öll dýrin eru vinir. Það má vel vera að einhvern tímann verði hvert líf heilagt, en fyrst verður að fara fram einhver vitundarvakning hjá öllu mannkyni. Á meðan við skiptumst í...

Re: Tvöfaldur Sannleikur

í Heimspeki fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Nei ég hef ekkert skarpari sýn á raunveruleikann en aðrir. Ég er einfaldlega meðvitaður um að það er afar erfitt að hafa skarpa sýn á raunveruleikann. Allar skoðanir okkar hafa eitthvað mótíf. Það er ekki í sjálfu sér rétt að vera vinstrisinnaður eða hægrisinnaður, fara eftir tilfinningum eða skynsemi, trúa á guð eða vísindi, frekar en það er í sjálfu sér rétt að gera upp á milli foreldra sinna. Tökum fáránlegt dæmi sem ýjar að karlrembu (sem ég er ekki), og segjum að guð sé mamma og...

Re: Tvöfaldur Sannleikur

í Heimspeki fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Hvað er endurfæðing annað en frumstæð hugmynd um erfðir? Heldurðu virkilega að það sem þú gerir í lífinu komi ekki til baka? “What goes around comes around”. Ef þú drepur mann, heldurðu að það sé gott fyrir þitt karma, t.d. ef þú býrð í Texas? Jóga og tantra er víst hollt og gott. Auðvitað er alltaf einhver hjátrú og goðsagnapersónur en hver segir að það megi ekki túlka þær sem myndlíkingar? Er ekki raunsæislegt að segja að tortíming og sköpun sé meðal þeirra andstæðna sem takast á í...

Re: lacitilop í burtu!

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Þetta er nú ekki mikill náungakærleikur. Hræsnisleg undirskrift. Það verður nú að leyfa mönnum að vera svolítið vitlausir í friði. En ef hann hefur ákveðið að hætta sjálfur þá er það allt í lagi, sérstaklega ef hann er að leika þetta. Ef hann er ekki að leika held ég að hann hefði gott af því að tala við sér þroskaðri og málefnalegri menn, hann gæti lært mikið á því að vera hérna. En jújú, ég græt þetta ekki. Það er fátt sem eyðileggur meira fyrir baráttunni við rasista en einfeldingslegar...

Re: Tvöfaldur Sannleikur

í Heimspeki fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Já svo það fari ekki á milli mála þá var þetta ég, Ramax

Re: Guð er til eða ei

í Heimspeki fyrir 23 árum, 8 mánuðum
að minnsta kosti eru sum okkar vangefin

Re: Nokkur orð um evruna

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
NWO þýðir New World Order, eitthvað sem kristnir þjóðernissinnaðir samsæriskenningamenn eru mjög hræddir við. Flettu því bara upp á netinu.

Re: Nokkur orð um evruna

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ó nei, ég hlýt að hafa gert eitthvað rangt fyrst að þú ert sammála mér. Þetta var nú bara stríðni gagnvart Ritter af því að ég veit að honum er ekki vel við þetta lag. Ég er ekki kommúnisti og er ekki sammála þessum texta í þeim skilningi, en það væri gaman ef við gætum e-n tímann lifað sem einn heimur en ekki afmarkaðar hjarðir sem rækta fjandskap við hvora aðra. Sameiginlegur gjaldmiðill og opið peningaflæði er liður í því. Þetta lag var a.m.k. viðkomandi alþjóðavæðingu, en ég skil ekki...

Re: Nokkur orð um evruna

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Imagine there's no heaven, It's easy if you try, No hell below us, Above us only sky, Imagine all the people living for today… Imagine there's no countries, It isnt hard to do, Nothing to kill or die for, No religion too, Imagine all the people living life in peace… Imagine no possesions, I wonder if you can, No need for greed or hunger, A brotherhood of man, Imagine all the people Sharing all the world… You may say Im a dreamer, but Im not the only one, I hope some day you'll join us, And...

Re: Einingarhús

í Heimilið fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Þú fyrirgefur vonandi, en djöfull eru þau ljót. Ég get ekki ímyndað að það þurfi arkitekt í þennan pakka. Fáir arkitektar með sjálfsvirðingu myndu vilja láta bendla sig við þetta. (Afsakaðu en ég gat ekki orða bundist að tjá mína skoðun. Ég er viss um að flest eðlilegt fólk vill heldur ekki láta bendla sig við það sem arkitektar með sjálfsvirðingu gera. Sitt sýnist hverjum)

Re: Íslenska alfræðiorðabókin

í Bækur fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Er ekki málið að setja þetta bara á netið og eyða minni pappír í útgáfu? Ég held að þeir sem punguðu út 30-40 þús. kr. síðast séu ekki tilbúnir að kaupa nýja strax. Þetta myndi bara vera á bókasöfnum. Á netið með Alfræðiorðabókina og látum fyrirtæki og hugsanlega ríkið styrkja.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok