Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

fridfinnur
fridfinnur Notandi frá fornöld 40 ára karlmaður
1.196 stig

Tyson - Lewis 8. Júní! (17 álit)

í Box fyrir 22 árum
Jæja samaðdáendur um land allt! tími til að gleðjast! Því að síðasti stóri þungavigtarbardaginn sem fram mun fara um þónokkurt skeið mun verða að veruleika þann 8. júní næstkomandi í Pyramid Center í Memphis! Showtime og HBO eru búnir að penna niður nýjan samning. Lewis og Tyson eru báðir komnir í æfingabúðir! Þeir munu ekki koma auglitis til auglitis fyrr en á bardagakvöldið sjálft til að Las Vegas atburðurinn endurtaki sig ekki. Stór orð fljúga á báða bóga. Lewis tala um að steypa arfleifð...

KoRn - Untouchables (umfjöllun) (27 álit)

í Rokk fyrir 22 árum, 1 mánuði
KoRn - Untouchables Ár: 2002 Pródúsuð af Michael Beinhorn (Hole, Marilyn Manson) Jæja, þá er maður kominn með gripin. tæpum 3 mánuðum fyrir áætlaðan útgáfutak (Þið anti-bootleggarar, ekki fá flog, að sjálfsögðu kaupi ég diskin dagin sem hann kemur út). Jah, hvað getur maður sagt, diskurinn er argandi snilld! Miklu meira en ég nokkurntíman þorði að vona! Þarsem það eru ennþá 3 mánuðir í útgáfu er ekkert staðfest með þessa kópíu sem ég er með, ég veit ekki hvort öll lögin eru fullmixuð og ég...

Three Kings (12 álit)

í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 1 mánuði
Three Kings (1999) Leikstjórn: David O. Russell Handrit: John Ridley, David O. Russell Aðalhlutverk: George Clooney, Mark Wahlberg, Ice Cube, Spike Jonze, Cliff Curtis og Nora Dunn — Þegar Three Kings kom út árið 1999 fékk hún topp dóma gagnrýnenda en henni gekk ekkert alltof vel í kvikmyndahúsum vestra, bara svona lala. Ástæðan fyrir því ku vera sú að þemi myndarinnar hafir farið eitthvað fyrir brjóstið á kananum en myndin kemur inn á þjóðfélagsstöðu almennings í Kúveit fyrstu dagana eftir...

Ný Byrjun (3 álit)

í Smásögur fyrir 22 árum, 1 mánuði
Hvar er ég ? Mér líður eins og ég hafi sofnað en samt ekki eins og ég hafi verið að vakna. Ég bara er hérna, ég veit ekki hvernig ég komst hingað en ég veit að ég á að vera hérna. Furðulegt, en samt ekki. Ég er úti, samt ekki svona venjulega úti, ég meina, það er sól en maður fær ekki illt í augun af að horfa í hana. Og grasið, það ilmar eins og grasið í sveitinni þegar ég var lítill, svona eins og gras ilmar eftir rigningu. Ég stend upp. hlý golan smýgur í gegnum hárið, mér líður svo vel,...

Fyrsta Skrefið (13 álit)

í Smásögur fyrir 22 árum, 1 mánuði
Mér er heitt. Ekki of heitt, bara svona mátulega heitt. Mér líður aldrei illa, ég hef allt sem að ég þarf í þessu littla afmarkaða svæði sem ég bý í. Ég er varinn frá öllu illu sem heimurinn hefur uppá að bjóða. Þó svíf ég eins og í lausu lofti sé, og enginn getur snert mig. Ég er skilyrðislaust elskaður af öllum sem nálægt mér koma, enginn dæmir mig fyrir að vera það sem ég er, engir fordómar, ekkert hatur. Ég fæ athygli 24 tíma sólahringsinns, það veit alltaf einhver að ég er þarna og ég...

Ofsiðferði í nútíma samfélagi (75 álit)

í Heimspeki fyrir 22 árum, 1 mánuði
Ég er búinn að vera að vetla fyrir mér smá pælingu uppá síkastið. Sumum á eflasut eftir að finnast þetta ósiðlegt, kalt og grimmt og ég vil endilega heyra frá þeim auk allra, maður á alltaf að fá sýn á báðar hliðar málsinns. Allavegana hef ég verið að velta fyrir mér siðferði í heiminum og hvernig mér finnst þetta vera að snúast uppí ofsiðferði. Nútíma “siðmenntuð” þjóðfélög leggja mikið uppúr “lífsdýrkun”, þ.e. ofboðsleg virðing og dýrkun á hinu mannlega lífi og þegar aknnski rúmlega 3000...

Að vakna (4 álit)

í Smásögur fyrir 22 árum, 1 mánuði
Ég opna augun, helvítis vekjaraklukkan. Verst að ég man aldrei martröðina þegar ég vakna, þá mundi ég kannski skilja afhverju hún hvelur mig nótt eftir nótt, stelur frá mér hugarró sem ég þarfnast. Svart tóm depurðinnar dregur meira úr manni en ótal svefnlausar nætur. En afhverju dapur? Líf mitt hefur verið eins rennislétt eins og hugsast getur. ég á millistéttarforedlra, bý í millistéttarhúsi, gegn í millistéttar skóla og á millistéttarkött. Semsagt líf mitt er einn meðalvegur. Samt er...

Tónar tilverunnar (1 álit)

í Smásögur fyrir 22 árum, 1 mánuði
Hafið þið einhverntíman velt fyrir ykkur tónum tilverunnar? Það er eins og að allt í þessari veröld sé málð með tónlist, hver tilfinning á sinn tón, hver litur á sitt stef og hver atburður á sér lag. Hafið þið einhverntíman prufað að ganga um göturnar og hlustað á heiminn, heyrt alla þessa tóna sem heimurinn hefur uppá að bjóða? Það hef ég gert… Þvílíkt undur sem heimurinn verður, allt fyrllist tvöfaldri meiningu, tilgangurinn með þessu öllu verður skýr í örfáar mínútur en um leið og maður...

Síðasta Skrefið (2 álit)

í Smásögur fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Ég velti stundum fyrir mér hvort það sé einhver miskun. Ég stend hérna á brúninni, fer með bænir, en bíddu…ég trúi ekki á guð, ég trúi ekki á neitt nema sjálfan mig, eða trúði. Samt stend ég sjálfan mig að verki við að biðja Guð um styrk, maður er furðulegur þannig, Kristnin er innprentuð í mann allt frá fæðingu en eftir því sem maður þroskast kemst ma'ur að þeirri niðurstöðu að það geti ekkert frumafl stjórnað öllu og skapað allt, síðan á loka andrataki lífs manns kallar maður á hjálp, ekki...

Upplýsingar um nýja KoRn skífu. (18 álit)

í Rokk fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Jæja, þá er víst komið á hreint að næsta KoRn plata, sú 5. í röðinni muni bera nafnið “Untouchables”. Óvenjumargar seinkanir hafa verið á þessari skífu en hún átti upphaflega að koma út snemma á síðasta ári að mig minnir en mun nú líta dagsinns ljós þann 14. Maí næstkomandi. Michael Beinhorn pródúsar þessa skífu en hann hefur meðal annars pródúsað fyrir Marilyn Manson og Hole. Alveg ný tækni var notuð við upptökur á plötunni sem gerir hlustandanum kleift að greina hljóminn í hverju...

Jones og Hopkins sigra (3 álit)

í Box fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Bæði Roy Jones Jr. og Bernard Hopkins sigruðu stórt í nótt í frekar óvanalegri útsendingu þarsem barist var á tveimur stöðum og eiginlega var skiptst á bardögum. Ég mun lýsa spjaldinu eins og um eitt show hafi verið að ræða, annað ruglar lesendur og mig bara í ríminu. **Aðalbardagarnir** [Bernard Hopkins TKO-10 Carl Daniels] Bernard Hopkins hafði yfirburði í þessum bardaga og aðlagaðist vel vandræðalegum stíl Daniels sem er örvhentur, Hopkins byrjaði sterkur og vann jafnvel meira á eftir því...

Árið gert upp! (19 álit)

í Box fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Þá hefur einkar skemmtilegt boxár runnið sitt skeið og er við hæfi að líta aðeins til baka á það á besta og versta á árinu sem leið. —- <b>Bardagi ársinns:</b> <i>Felix Trinidad - Bernard Hopkins</i> er að mínu mati einn allra áhugaverðasti og skemmtilegasti bardagi sem ég hef orðið vitni að í þónokkurn tíma. Þótt ég sé mikill Trinidad maður þá get ég ekki annað en vottað Bernard Hopkins, sem er orðinn 36 ára, virðingu mína og er hann vel að titlunum kominn. Bardaginn sjáfur var magnaður og...

Acelino Freitas - Joel Casamayor ekki sýndur (1 álit)

í Box fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Sýn hefur ákveðið að sýna ekki beint frá létt-léttvigtar titlbardaganum milli WBO meistarans Acelino Freitas og Joel Casamayor sem fer fram 12. Janúar næstkomandi. Þetta finnst mér synd því að þetta eru báðir mjög spennandi boxarar þótt þeir séu kannski ekki þeir þekktustu meðal almennings. Ekki eru heldur nein smánöfn á undir-spjaldinu og ber þar helst að nefna David Tua VS Phil Jackson (10 lotur, Þungavigt og Wayne McCullough VS Alvin Brown (10 lotur, Fjaðurvigt) Á umræddu kvöli mun sýn...

De La Hoya - Vargas 4. Maí (3 álit)

í Box fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Það var staðfest á sunnudaginn var að WBC meistarinn í létt-millivigt, Oscar De La Hoya muni verja titilinn sinn í fyrsta skipti gegn WBA meistaranum Fernando Vargas. Þessi bardagi er stórt stökk upp í klassa fyrir De La Hoya en hann hefur mætt Arturo Gatti og Javier Castillejo síðan hann byrjaði comebackið sitt eftir að hafa tapað á móti Shane Mosley. Fernardo Vargas vann sér það helst til frægðar að hafa staðið grimmilega í Felix Trinidad áður en hann var rotaður. Vargas er geisilega...

Enn einn Holyfield skandallinn! (5 álit)

í Box fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Enn og aftur er Holyfield miðpunkturinn í hnefaleikaskandal og í þetta skipti er hann fórnarlambið. Þriðji bardagi Johnny Ruiz og Evander Holyfield var enganvegin fagurfræðilegt listavek eða teknískt undur. Þetta líktist meira fjölbragðaglímu á köflum og var erfitt að sjá hvor var 10 árum yngri og hver var 10 árum eldri, Holyfield stjórnaði hraðanum mestallan bardagann og var ótrúlega ferskur allan bardagann og var nálagt því að taka Ruiz niður áður en bjallan hrindi síðustu lotuna út....

Tyson tekur séns (3 álit)

í Box fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Mike Tyson tekur mikinn séns þann 19. Janúar þegar hann mætir granítandlitinu Ray Mercer. Mercer, sem er orðinn fertugur hefur aldrei verið rotaður á sínum ferli og hefur unnið 6 bardaga í röð í “Comebackinu” sínu og þónokkra með því að berja andstæðinginn bókstaflega útúr hringnum. Ef að Tyson tapar, sem er hreint alveg mögulegt, mun það eyða allri von um 100 milljón $ bardaga við Lennox Lewis fari nokkurntíman fram en ef hann vinnur, og það á rothöggi, getur það verið mikið salfræðilegt...

Wladimir Klitchko mætir David Izon 1. Des (1 álit)

í Box fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Fyrirhuguðum bardaga milli Ray Mercer og Wladimir Klitchko hefur verið aflýst vegna alvarlegs skurðar sem Mercer hlaut í bardaga sínum á Tyson-Nielsen spjaldinu fyrir stuttu. David Izon hefur tekið stöðu Mercer gegn Klitchko og verður það ekki kinna spennandi bardagi! David Izon er af flestum talinn mjög spennandi boxari hef ég þó aðeins séð hann einu sinni og var það tap í 5. lotu gegn Micheal Grant (tek það fram að þetta var áður en Micheal Grant breyttist í postulínsdúkku). Izon hefur...

Mike Tyson sigrar þrjóskan Nielsen (7 álit)

í Box fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Mike Tyson hélt áfram korssferð sinni í átt að heimsmeistaratitli í kvöld með sigri á hinum pulsulaga “Super” Brian Nielsen. Tyson tók sinn tíma í þetta eða 6 lotur sem er heldur lengra en fólk bjóst við og það lengsta sem hann hefur barist í tæp 5 ár. Þvert á móti því sem þulir sýnar héldu fram fannst mér Tyson líta ágætlega út, hann var að vísi mjög riðgaður, en mér fannst formið á honum ekki jafn hræðilegt og þessir öðlingar sáu einhvernvegin á honum. Nielsen hætti á kollinum sínum eftir...

Tyson-Nielsen frestað (2 álit)

í Box fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Aðdáendur Mike Tysons verða enn að bíða eftir goðinu sínu því að bardaga hanns við Brian Nielsen hefur verið frestað vegna meiðsla. Tyson mun víst þjást af krömpum í baki og getur því ekki æft eins og vera ber. Bardaginn mun líklegast fara fram þann 16. október á sama stað og áætlað var upphaflega.

Byrd útboxar Tua (3 álit)

í Box fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Chris Byrd þeyttist aftur inn í þungavigtarmyndina í nótt með því að sigra Nýsjálendingin David Tua á stigum eftir 12 lotu IBF þungavigtartitils útrímingarbardaga þeirra í Las Vegas. Byrd stóð af sér skothríð Tua í byrjun bardagans og notaði síðan ganghögg til að trufla Nýsjálenska bombarann. Stigaspjöld dómarana voru eftirfarandi 115-113, 116-112, 116-112. Eftir þennan sigur Byrd, sem er fyrrverandi heimsmeistari WBO, er hann orðinn nr. 1 áskorandi hjá IBF og mun þá, samkvæmt reglum, verða...

Rahman - Lewis nánast í höfn (2 álit)

í Box fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Nú er talið víst að heimsmeistarinn, Hasim Rahman muni mæta Lennox Lews þann 6. október næstkomandi. Þetta gerðist eftir að Don King bauð köppunum 25 milljónir dollara fyrir að mætast, sem eru kaldar 12,5 millur á kjaft. En þetta getur haft í för með sér ýmislegt annað. Don King er nú ekki þektur fyrir það að gefa peninga án þess að hafa smátt letur í samningum sínum og getur það vel hugsast að hann muni neiða Lewis til að skrifa undir umboðssamning við sig. Ef að það eru skilmálar Kings þá...

Risinn rís aftur (1 álit)

í Box fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Fallna tröllið Micheal Grant mun snúa aftur þann 21. júlí gegn hinum hættulega Jameel McCline. Bardaginn verður undan-aðal bardaginn á Shane Mosley - Adrian Stone spjaldinu. Grant hefur verið frá í 15 mánuði vegna meiðsla, en blóðtappi var fjarlægður úr fæti hanns. Síðansti bardagi Grants var 2 lotna barsmíð á móti Lennox Lewis og íhugaði Grant að hirða peningana og hætta í íþóttinni eftir það tap, en eins og einhver sagði “Everybody gets knocked down somewhere in life, it's how fast you get...

Réttarhöld, Réttarhöld og meiri Réttarhöld (8 álit)

í Box fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Nú er öðrum degi lokið af réttarhöldunum gegn Hasim Rahman en kærendurnir eru Lennox Lewis, Cedric Kushner og Mike Tyson. Núna eru bæði Lennox Lewis og Emanuel Steward búnir að stíga í vitnastólinn. Lewis hélt því fram að hann væri að verða gamall og að hæfileikar hanns gætu farið að hnigna fljótt og þessvegna vill hann fá sénsinn á því að bæta við arfleifð sína og ná í beltin sín til baka, Steward tók í sama streng og sagði að Lewis væri að verða eldir og strax væru komin merki þess í...

Ali vs Frazier IV í kvöld (1 álit)

í Box fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Í kvöld fer fram fjórði kapítulí í fjölskylduerjum Ali og Frazier ættanna. Laila Ali og Jackie Frazier-Lyde, dætur Muhammad Ali og Joe Frazier, munu loksinns mætast í kvöld og vonandi binda enda á þessa vitleysu sem hefur verið á milli ættana síðan feðurnir börðust fyrir margt löngu síðan. Báðar eru þær ósigraðar, Ali (9-0, 8 rothögg) og Frazier-Lyde (7-0, 7 rothögg) hafa þó ekki barist á móti marktækum andstæðingum. Á “undercardinu” mætir einnig hinn eldgamli fyrrverandi meistari Tim...

Mýrin (0 álit)

í Bækur fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Mig langar aðeins að halda áfram með umfjöllun mína um tengingar milli kvikmynda og bókmennta og minnast á íslensku spennusöguna Mýrina. Lögreglusagan Mýrin kom út fyrir jólin hér á fróninu og var ein af aðal jólabókunum. Þetta er spennusaga sem fjallar um tvo rannsóknarlögreglumenn sem rannsaka morð á eldri manni sem finnst látinn í kjallaraíbúð sinni í norðurmýrinni. Á meðan rannsókninni stendur finna þeir Ýmislegt óhuggulegt í fortíð þessa manns. Mér fannst þessi bók um margt undarleg, í...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok