Chris Byrd þeyttist aftur inn í þungavigtarmyndina í nótt með því að sigra Nýsjálendingin David Tua á stigum eftir 12 lotu IBF þungavigtartitils útrímingarbardaga þeirra í Las Vegas.
Byrd stóð af sér skothríð Tua í byrjun bardagans og notaði síðan ganghögg til að trufla Nýsjálenska bombarann.
Stigaspjöld dómarana voru eftirfarandi 115-113, 116-112, 116-112.

Eftir þennan sigur Byrd, sem er fyrrverandi heimsmeistari WBO, er hann orðinn nr. 1 áskorandi hjá IBF og mun þá, samkvæmt reglum, verða fyrsta titilvörn sigurvegarans úr Rahman-Lewis II