Í kvöld fer fram fjórði kapítulí í fjölskylduerjum Ali og Frazier ættanna. Laila Ali og Jackie Frazier-Lyde, dætur Muhammad Ali og Joe Frazier, munu loksinns mætast í kvöld og vonandi binda enda á þessa vitleysu sem hefur verið á milli ættana síðan feðurnir börðust fyrir margt löngu síðan. Báðar eru þær ósigraðar, Ali (9-0, 8 rothögg) og Frazier-Lyde (7-0, 7 rothögg) hafa þó ekki barist á móti marktækum andstæðingum. Á “undercardinu” mætir einnig hinn eldgamli fyrrverandi meistari Tim Whitherspoon ungum og upprennandi boxara að nafni Monte Barrett.