Fyrirhuguðum bardaga milli Ray Mercer og Wladimir Klitchko hefur verið aflýst vegna alvarlegs skurðar sem Mercer hlaut í bardaga sínum á Tyson-Nielsen spjaldinu fyrir stuttu.
David Izon hefur tekið stöðu Mercer gegn Klitchko og verður það ekki kinna spennandi bardagi!
David Izon er af flestum talinn mjög spennandi boxari hef ég þó aðeins séð hann einu sinni og var það tap í 5. lotu gegn Micheal Grant (tek það fram að þetta var áður en Micheal Grant breyttist í postulínsdúkku). Izon hefur barist við karla á borð við David Tua(T rh 12), Derrick Jefferson (S rh 9) og Lou Savarses (S rh 5).
Izon hefur áður verið orðaður við bæði Mike Tyson og Hasim Rahman.