Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Jonzi
Jonzi Notandi frá fornöld 1.184 stig

Cosmin Contra mun ganga til liðs við AC Milan (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Rúmenski landsliðsmaðurinn Cosmin Contra hjá Alaves mun slást í hóp félaga síns Javi Moreno hjá AC Milan í sumar. Talið var að hann myndi jafnvel fara til Inter Milan eða annars hvors af risunum á Spáni, Real Madrid og Barcelona. Að eigin sögn hafði Contra hugsað sér að vera áfram á Spáni en AC Milan væri klúbbur sem einfaldlega væri ekki hægt að neita, auk þess sem Moreno lýsti allri aðstöðu leikmanna á Milanello-æfingasvæðinu sem “stórkostlegri”. Það er mikill fengur að þessum frábæra...

Valencia vilja $60 milljónir fyrir Mendieta (6 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Viðræður Valencia og AC Milan um kaup hinna síðarnefndu á miðjumanninum Gaizka Mendieta eru enn í fullum gangi og snúast samningar eins og gefur að skilja um verðið. Þótt forráðamenn spænska klúbbsins haldi fast við fyrri yfirlýsingar um að fyrirliði þeirra sé ekki til sölu, hafa þeir bent Milan á að þeir geti einfaldlega borgað “buy-out”-klausuna sem er í samningum leikmanna á Spáni. Gallinn er bara sá að í tilfelli Mendieta er það er engin smásumma, heldur heilar 60 milljónir dollara....

Bianconeri og Neroazzuri fá nýja þjálfara (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
(bianconeri=“hvítsvartir”; neroazzuri=“svartdimmbláir” Það virðist nú vera komið á hreint að Marcello Lippi muni á ný þjálfa Juventus á næsta ári. Búið var að ganga frá nýjum samningi við Carlo Ancelotti, en stjórn Juve er óhress með að ekki hafi tekist að ná Roma að stigum. Sem stendur er hinir hvítsvörtu í 3. sæti í seríunni. Hitt eru svo stærri fréttir að það hefur kvistast út að næsti þjálfari Internazionale Milan verði enginn annar en Hector Raúl Cúper, fráfarandi þjálfari Valencia....

Bróður Khaladze rænt ! (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Óvíst er um hvort Kakha Khaladze geti leikið með Milan í geysilega mikilvægum leik gegn Roma um helgina. Ástæðan er sú að tveir menn, dulbúnir sem lögregluþjónar, hafa rænt yngri bróður hans, Leval Khaladze heima í Georgíu og heimta $600.000 í lausnargjald. Mér finnst nú bara að Silvio Berlusconi forseti og eigandi Milan eigi að greiða peningana til að tryggja þátttöku Khaladze í leiknum - nógu margir eru þegar meiddir hjá Milan.

Mendieta nálgast Milan... (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Gaizka Mendieta, sem er ekki aðeins fyrirliði Valencia heldur líka í hópi bestu miðjumanna í heiminum í dag, er að sögn fjölmiðla á Ítalíu alveg á þröskuldinum við að ganga til liðs við AC Milan. Liðin eiga að hafa sæst á verðmiða upp á $35 milljónir og aðeins eftir að semja um kaup og kjör við Mendieta sjálfan. Forseti Valencia heldur áfram að reyna að draga úr fréttunum en kunnugir segja það bara bragð til að halda reiðum aðdáendum í skefjum. Þjálfari liðsins, Hector Raúl Cúper, er búinn...

Elber til Roma?! (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Þrátt fyrir yfirlýsingar stjórnenda hjá Bayern München þess efnis að Giovane Elber muni klára samning sinn við liðið - til ársins 2004 - hafa AS Roma engu að síður gert sig klára til að klófesta kauða. Að sögn eru þeir reiðubúnir að splæsa $35 milljónum fyrir brassann. Elber gæti allt eins verið á leiðinni suður á bóginn, til Ítalíu eða Spánar, eftir að hann lét hafa eftir sér að eiginkonan væri orðin leið á München og vildi komast í burt frá Þýskalandi, og í huga hans væri fjölskyldan það...

Kezman til Juve?! (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Einn eftirsóttasti knattspyrnumaður Evrópu um þessar mundir, Mateja Kezman hjá PSV Eindhoven, er í sigtinu hjá Juventus, að sögn ítalska íþróttablaðsins Corriere della Sport. Hinn 22 ára Kezman, sem var markahæsti leikmaðurinn í Hollandi á síðustu leiktíð, er samningsbundinn PSV til 2005 svo hann kemur til með að kosta slatta. Juve eru tilbúnir að borga $22,5 millur fyrir strákinn, en vonandi fá þeir ekki þennan frábæra striker ;) (Forza Milan)

Juventus taka fram budduna (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Carlo Ancelotti og Luciano Moggi eru um það bil að fara af stað í tvíþætt leikmannakaup. Fyrsta mál á dagskrá er að ná í Liliam Thuram. Búið er að bjóða Zambrotta & Conte + $15 millur fyrir franska varnarmanninn. Mál númer tvö er að krækja í tékkneska miðvallarleikmanninn Pavel Nedved hjá Lazio. Samkomulag hefur náðst á milli liðanna uppá kaupverðið $35 milljónir en Nedved á eftir að samþykkja sinn hluta samningsins; 4 ár með ca. $7,5 í laun á ári. Með tilliti til þess að Nedved dreymir um...

Galliani og Terim fylgjast með... (7 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Í kvöld fer fram úrslitaleikurinn í UEFA Champions League, eða Meistaradeildinni eins og keppnin heitir upp á íslenskuna, og við boltaáhugamenn bíðum stífir af spenningi. En fleiri eru sérstaklega spenntir; Adriano Galliani framkvæmdastjóri Milan og Fatih Terim, næsti þjálfari liðsins ætla að koma sér vel fyrir í VIP-stúkunni á Stadio Giuseppe Meazza San Siro í Mílanó og fylgjast vel með þeim tveim leikmönnum sem liðið er hvað spenntast fyrir að kaupa fyrir næsta tímabil: fyrirliða Valencia,...

Þetta er brjálæði ! (11 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Florentino Perez, forseti Real Madrid, er genginn af göflunum í þeirri fantasíu að ná í Zinedine Zidane. Nýjasta tilboðið frá honum hljóðar svo: $45 milljónir plús Claude Makelele, Michel Salgado og Flavio Conceicao. Ég meina, Zizou er auðvitað einn albesti leikmaðurinn í heiminum í dag, en er hann alls þessa virði. Ég vil fá álit á þessu hjá hugabræðrum mínum hér á Ítalska boltanum. Er þetta nú ekki fullmikið af því góða? Eða er Zidane kannski bara þess virði- eins og Figo var sinna peninga...

Javi Moreno til Milan (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Það er staðfest að markahæsti leikmaður Primera Liga á yfirstandandi tímabili, Javi Moreno hjá Alaves, er genginn til liðs við AC Milan. Hann skrifaði undir 4 ára samning við hina rauðsvörtu eftir að hafa flogið eins og vindurinn gegnum læknisskoðun. Frammistaða Moreno í úrslitaleiknum í UEFA-keppninni þar sem hann skoraði tvívegis er talin hafa gert útslagið um að Adriano Galliani varaforseti og framkvæmdastjóri Milan setti sig í samband við spænska spútnikliðið og lagði fram tilboð í...

Trezeguet verður púllari ! (13 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Mbl.is greinir frá því í dag að hinn franski framherji Juventus, David Trezeguet sé að öllum líkindum á leiðinni til Liverpool. Trezeguet er orðinn langþreyttur á að sitja á tréverkinu í Tórínó og vill burt. Hann lýsti því ennfremur yfir að premiershippið heillaði og bærist honum tilboð frá góðum klúbbi myndi hann líklega slá til. Gerard Houllier brást skjótt við og lýsti sig tilbúinn að reiða fram 14M punda fyrir Frakkann. Það gæti orðið áhugaverður dúett, Owen & Trezeguet. Á Anfield myndi...

Rossoneri rúla! (5 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég hef nú oft séð Internazionale spila geldan bolta en ég hef sjaldan séð nokkurn klúbb í efstu deild Ítalíu jafn gersamlega á gargandi geitinni. Milanmenn fundu greinilega hvernig stemmingin var hjá hinum blásvörtu og í stað þess að pakka til baka í hálfleik, þegar staðan var 0-2, var höfuðið á Inter-hræinu endanlega skilið frá sofandi búknum með 4 til viðbótar. Sheva staðfesti sig sem besti striker í heimi (komm on - vill einhver þræta fyrir það lengur ?!?…..) og Serginho hækkaði sinn...

Veron fyrir Rivaldo?! (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Sergio Cragnotti er jafnspenntur og alltaf fyrir Rivaldo og hefur nú boðið Juan Sebastian Veron í skiptum fyrir brassann magnaða. Tvö ljón eru þó í veginum - Barcelona er eiginlega spenntari fyrir Claudio Lopez (?!?!) og svo er hitt að Rivaldo lét hafa eftir sér að hann myndi bara leika fyrir þrjú önnur lið í Evrópu, fyrir utan Barca; AC Milan, Juventus og Man United. Við sama tækifæri nefndi hann sérstaklega að hann myndi aldrei leika fyrir Lazio. Hvað gerir Cragnotti þá?!?

Zizou: "Við vinnum titilinn." (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Zinedine Zidane er alveg grjótviss um að lið hans Juventus verði liðið sem hampar “Lo Scudetto” í lok þessarar leiktíðar. Það verður ákveðið uppgjör í næstu umferð ítalska boltans þegar topplið Roma mætir Juve. Eins og staðan er í dag hefur Roma 63 stig en Juventus 57. Þetta er því sex stiga leikur eins og þeir gerast svakalegastir. Zidane fullyrðir að sínir menn vinni Roma og þá séu fimm umferðir eftir til að vinna upp 3 stiga forskot Rómverja, sem verði ekkert stórmál því því sálrænt séð...

Lazio refsað fyrir rasisma. (6 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
mbl.is greinir frá því í dag að stórlið Lazio frá Róm hafi verið í dæmt í heimaleikjabann auk fjársekta vegna skrílsláta hægri-öfgamanna sem venja komur sínar á heimaleiki liðsins. Um síðustu helgi lék Lazio við granna sína í AS Roma og í hvert skipti sem hinir brasilísku Cafu og Aldair fengu boltann var baulað af krafti á þá. Þetta er fáránleg hegðun sem á ekkert skylt við knattspyrnuáhuga og á ekki heima á fótboltaleikjum frekar en annars staðar. Það er að mínu mati tímabært að Lazio fái...

Allt að gerast hjá AC Milan! (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 12 mánuðum
Milan eru um það bil að ganga frá kaupum á Darko Kovacevic, framherja Juventus. Kovacevic er sá sem á að fylla skarð Oliver Bierhoff (vonandi gerir hann aðeins meira en bara það…) fyrst Leeds vildu ekki selja Mark Viduka. Einnig var umboðsmaður Rivaldo í Mílanó í dag, og er það mál manna að hann hafi verið að vinna í samningi milli Milan og Rivaldo. Þá eru sögusagnir um það Vincenzo Montella muni koma til hinna rauðsvörtu í júní. Hann mun vera óhress með kaup Roma á Antonio Cassano og áhugi...

Wenger : "Vieira fer hvergi" (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum
Það virðist nú útséð um það að Patrick Vieira færi sig frá Highbury til Stadio Delle Alpi í sumar. Eftir svakalega frammistöðu gegn Everton er Arsene Wenger með öllu orðinn fráhverfur sölu og hafði þetta að segja er hann var spurður útí málið : “We will not listen to any offers for Patrick no matter what the amount. " Sorrý Juve fans…

Davids í dópinu? (6 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum
Nú þegar Fernando Couto hefur aftur mælst með nandrolone í kerfinu hefur önnur bomba fallið - nefnilega jákvætt próf hjá Edgar Davids, miðjumótor hjá Juventus. Þar sem ég er harður Milan-maður hlakkar venjulega í mér þegar Juve lenda í veseni, en það er samt sláandi ef rétt reynist með Davids. “The Rottweiler” er einfaldlega einn af þeim bestu í dag (það var skita hjá þér að selja hann, Galliani) og það yrði bara sjokk ef hann væri á sterum. Vonandi er þetta bara eitthvað í sambandi við...

Raúl til Milan ?!? (6 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum
Ég ætla ekki að fullyrða neitt um þetta, félagar, en Raúl (já , ég er að tala um Raúl Gonzales Blanco hjá Real Madrid…!) sást þann 11. apríl síðastliðinn í Mílanó þar sem hann var að fá sér lunch með Adriano Galliani, framkvæmdastjóra og varaforseta AC Milan. Þetta þarf auðvitað ekki að þýða neitt, en…..við vitum allir hvaða yfirlýsingar Silvio Berlusconi hefur verið með undanfarið svo maður skyldi aldrei segja aldrei. Það væri samt stórvarasamt fyrir Madridinga að selja piltinn, hann er...

Inter vilja Anelka! (8 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum
Það kvisaðist út um daginn að AC Milan væru á höttunum eftir ólíkindatólinu Nicolas Anelka, einkum eftir að sást til umboðsmanna hans á vappi í Mílanóborg. Nú hefur komið í ljós að umbarnir voru líklegast ekki í viðræðum við forráðamenn AC heldur hins Mílanóliðsins, Internazionale. Það hefur gefið orðrómnum byr að besti vinur Anelka og fyrrum félagi hjá PSG, Stéphane Dalmat, hefur verið að heimsækja fasteignasölur í Mílanó og grunar marga að hann sé að leita að húsnæði fyrir vin sinn Anelka....

Nesta til Internazionale? (9 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum
Massiomo Moratti, forseti Inter Milan, er svo harðákveðinn í að fá Allesandro Nesta til liðsins að hann hættir bara ekki að hækka boð sitt í hann. Nýjasta tilboðið er $60M plús varnarjaxlinn Materazzi, sem Inter eru nýbúnir að kaupa frá Perugia. Þetta er slíkt tilboð að Cragnotti er víst farinn að hugsa málið alvarlega þrátt fyrir fyrri yfirlýsingar um að Nesta yrði aldrei seldur. Ekki síst þar sem nær öruggt virðist að Fabio Cannavaro komi til Lazio í sumar.

Jardel áfram hjá Gala ?!? (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum
Umboðsmaður Mario Jardel fullyrðir að strikerinn verði áfram hjá tyrkneska stórliðinu Galatasaray (þó svo að hann hafi ekki fengið greidd laun í fleiri mánuði…) og blæs þannig á orðróminn um að hann sé að fara til AC Milan í sumar. Peningar hafa þó alltaf viss áhrif á fótboltamenn svo við skulum ekki afskrifa dílinn strax… Adriano Galliani, hinn litríki varaforseti og framkvæmdastjóri Milan hefur hins vegar lofað áðdáendunum að annað hvort komi Rivaldo til liðsins eða þá Manuel Rui Costa....

Kjaftasögur um Milan (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 1 mánuði
Nú þegar Silvio Berlusconi, hinn strangheiðarlegi eigandi og forseti AC Milan er aftur kominn með puttana í klúbbinn, eru endalausar kjaftasögur í gangi um það hverja eigi að kaupa til að styrkja liðið fyrir næsta tímabil. Þau nöfn sem oftast hafa heyrst eru Manuel Rui Costa hjá Fiorentina, Mario Jardel og Emre Belezoglu (báðir hjá Galatasaray). En nú hafa Juan Sebastian Veron og Marcelo Salas hjá Lazio bæst við hópinn, auk Rivaldo hjá Barca. Svo er auðvitað besta sagan sú að Milan og Real...

Kaupæði rennur á Roma! (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 1 mánuði
Nú þegar Antonio Cassano er opinberlega kominn í hóp Rómverja er Franco Sensi forseti Roma kominn í eyðslustuð. Og það á ekki að ráðast á garðinn þar sem hann er ódýrastur. Neinei, það á að bæta i sóknina með látum og efstir á óskalistanum eru argentíski landsliðsmaðurinn Kily Gonzalez hjá Valencia og Mark Viduka Leedsari með meiru. Þetta lyktar allt saman sterklega af brottför Delvecchio…..
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok