Carlo Ancelotti og Luciano Moggi eru um það bil að fara af stað í tvíþætt leikmannakaup.
Fyrsta mál á dagskrá er að ná í Liliam Thuram. Búið er að bjóða Zambrotta & Conte + $15 millur fyrir franska varnarmanninn.
Mál númer tvö er að krækja í tékkneska miðvallarleikmanninn Pavel Nedved hjá Lazio. Samkomulag hefur náðst á milli liðanna uppá kaupverðið $35 milljónir en Nedved á eftir að samþykkja sinn hluta samningsins; 4 ár með ca. $7,5 í laun á ári. Með tilliti til þess að Nedved dreymir um að komast í raðir Man Utd er heldur ólíklegt að hann gangi til liðs við “bianconeri” næsta haust. . .