Það kvisaðist út um daginn að AC Milan væru á höttunum eftir ólíkindatólinu Nicolas Anelka, einkum eftir að sást til umboðsmanna hans á vappi í Mílanóborg. Nú hefur komið í ljós að umbarnir voru líklegast ekki í viðræðum við forráðamenn AC heldur hins Mílanóliðsins, Internazionale. Það hefur gefið orðrómnum byr að besti vinur Anelka og fyrrum félagi hjá PSG, Stéphane Dalmat, hefur verið að heimsækja fasteignasölur í Mílanó og grunar marga að hann sé að leita að húsnæði fyrir vin sinn Anelka. Sem AC Milan-maður segi ég HJÚKK. Með þennan vitleysing innanborðs fer nú fyrst allt í kaldakol hjá Inter.