Nú þegar Fernando Couto hefur aftur mælst með nandrolone í kerfinu hefur önnur bomba fallið - nefnilega jákvætt próf hjá Edgar Davids, miðjumótor hjá Juventus. Þar sem ég er harður Milan-maður hlakkar venjulega í mér þegar Juve lenda í veseni, en það er samt sláandi ef rétt reynist með Davids. “The Rottweiler” er einfaldlega einn af þeim bestu í dag (það var skita hjá þér að selja hann, Galliani) og það yrði bara sjokk ef hann væri á sterum. Vonandi er þetta bara eitthvað í sambandi við lyfjatöku hans vegna glákunnar….annars kaupum við hann bara til baka til Milan, he he he…