Ég ætla ekki að fullyrða neitt um þetta, félagar, en Raúl (já , ég er að tala um Raúl Gonzales Blanco hjá Real Madrid…!) sást þann 11. apríl síðastliðinn í Mílanó þar sem hann var að fá sér lunch með Adriano Galliani, framkvæmdastjóra og varaforseta AC Milan. Þetta þarf auðvitað ekki að þýða neitt, en…..við vitum allir hvaða yfirlýsingar Silvio Berlusconi hefur verið með undanfarið svo maður skyldi aldrei segja aldrei. Það væri samt stórvarasamt fyrir Madridinga að selja piltinn, hann er dýrkaður af stuðningsmönnum liðsins og Spánverjum öllum svo ég ætla að fara varlega í allar getgátur. En hann sást nú samt með Galliani!