Það er staðfest að markahæsti leikmaður Primera Liga á yfirstandandi tímabili, Javi Moreno hjá Alaves, er genginn til liðs við AC Milan. Hann skrifaði undir 4 ára samning við hina rauðsvörtu eftir að hafa flogið eins og vindurinn gegnum læknisskoðun. Frammistaða Moreno í úrslitaleiknum í UEFA-keppninni þar sem hann skoraði tvívegis er talin hafa gert útslagið um að Adriano Galliani varaforseti og framkvæmdastjóri Milan setti sig í samband við spænska spútnikliðið og lagði fram tilboð í kjölfarið. Það er vonandi að þarna sé kominn sá framherjapartner sem Sheva hefur vantað í allan vetur.

Forza Milan