Rúmenski landsliðsmaðurinn Cosmin Contra hjá Alaves mun slást í hóp félaga síns Javi Moreno hjá AC Milan í sumar. Talið var að hann myndi jafnvel fara til Inter Milan eða annars hvors af risunum á Spáni, Real Madrid og Barcelona. Að eigin sögn hafði Contra hugsað sér að vera áfram á Spáni en AC Milan væri klúbbur sem einfaldlega væri ekki hægt að neita, auk þess sem Moreno lýsti allri aðstöðu leikmanna á Milanello-æfingasvæðinu sem “stórkostlegri”.
Það er mikill fengur að þessum frábæra framliggjandi varnarmanni og hann er framtíðarmaður í liði Milan. Contra kostaði ca. $10M.
Forza Rossoneri!