Þrátt fyrir yfirlýsingar stjórnenda hjá Bayern München þess efnis að Giovane Elber muni klára samning sinn við liðið - til ársins 2004 - hafa AS Roma engu að síður gert sig klára til að klófesta kauða. Að sögn eru þeir reiðubúnir að splæsa $35 milljónum fyrir brassann. Elber gæti allt eins verið á leiðinni suður á bóginn, til Ítalíu eða Spánar, eftir að hann lét hafa eftir sér að eiginkonan væri orðin leið á München og vildi komast í burt frá Þýskalandi, og í huga hans væri fjölskyldan það mikilvægasta. Fari svo að hann ákveði að drífa sig frá Bayern er næsta víst að AC Milan láti ekki sitt eftir liggja í slagnum um Elber, enda hörkustriker þar á ferð.