Mbl.is greinir frá því í dag að hinn franski framherji Juventus, David Trezeguet sé að öllum líkindum á leiðinni til Liverpool. Trezeguet er orðinn langþreyttur á að sitja á tréverkinu í Tórínó og vill burt. Hann lýsti því ennfremur yfir að premiershippið heillaði og bærist honum tilboð frá góðum klúbbi myndi hann líklega slá til. Gerard Houllier brást skjótt við og lýsti sig tilbúinn að reiða fram 14M punda fyrir Frakkann. Það gæti orðið áhugaverður dúett, Owen & Trezeguet. Á Anfield myndi hann aldrei ganga einsamall, á meðan hann hefur átt daufa vist á Delle Alpi.