Massiomo Moratti, forseti Inter Milan, er svo harðákveðinn í að fá Allesandro Nesta til liðsins að hann hættir bara ekki að hækka boð sitt í hann. Nýjasta tilboðið er $60M plús varnarjaxlinn Materazzi, sem Inter eru nýbúnir að kaupa frá Perugia. Þetta er slíkt tilboð að Cragnotti er víst farinn að hugsa málið alvarlega þrátt fyrir fyrri yfirlýsingar um að Nesta yrði aldrei seldur. Ekki síst þar sem nær öruggt virðist að Fabio Cannavaro komi til Lazio í sumar.