Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

thortho
thortho Notandi frá fornöld 44 ára karlmaður
358 stig
All we need is just a little patience.

Kosninga'loforð' (13 álit)

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Er eitthvað vit í því að kalla þetta „loforð“? Loforð er það sem maður á að halda „no matter what“. Ef maður lofar vini sínum að mæta í brúðkaup hans og vera svaramaður eða hringberi, þá gerir maður það þótt manni hafi verið tilkynnt um að maður muni deyja af krabbameini innan þriggja mánaða, klukkutíma fyrir athöfnina. Getum við sagt slíkt um kosningaloforð? Nei, það getum við ekki. Orðinu „loforð“ er einfaldlega ofaukið hér. Þetta er ekkert nema það sem flokkarnir segjast munu stefna að og...

Þrælar og ljótt fólk (42 álit)

í Deiglan fyrir 20 árum, 12 mánuðum
(Mitt innlegg í fegurðarumræðuna) Þjóðverjinn Friedrich Nietzsche er nú frægur fyrir margt, en þó einna frægastur (held ég) fyrir tvennt: Annars vegar greiningu sína á siðferðinu, og hins vegar kenninguna um ofurmennið. Siðferðið, eða öllu heldur rætur þess, greindi hann í tvennt. Fyrri tegundin er daglega kölluð „herrasiðferði“. Þetta er siðferði „herranna“ eða „höfðingjanna“, eins og nafnið bendir til. Þeir eru stórir og sterkir, hraustir, harðgerir, og jafnvel dálítið ofbeldishneigðir (en...

Skyldi sálin vera ódauðleg? (52 álit)

í Heimspeki fyrir 21 árum, 1 mánuði
Skyldi sálin vera ódauðleg? Í Faídoni eftir Platón fer Sókrates m.a. yfir nokkrar röksemdir fyrir því að sálin sé ódauðleg. Það gæti komið málinu við, að það er ekki langt þangað til honum verður færður eiturbikarinn og að hann muni fljótlega lognast út af og deyja. En ég nenni nú ekki að velta mér uppúr ástæðum þess að hann sé að tala um þessi mál, heldur ætla ég aðeins að rekja röksemdafærslu hans og gagnrök við henni í (tiltölulega) stuttu máli. Fyrst í stað minnist Sókrates á þá gömlu...

Nokkrar pælingar (28 álit)

í Deiglan fyrir 21 árum, 1 mánuði
Þetta er algerlega samhengislaust, en mig langar nú samt að koma þessu á framfæri. Hvers vegna ekki að gera það í einni grein heldur en mörgum? Og já, ég veit að þetta er að miklu leyti tuð og röfl, svo það er engin ástæða til að benda mér á það. 1. Opinberar byggingar. Út um stofugluggan hjá mér get ég séð tvær all-mikilvægar stofnanir: Landsspítalann og Háskóla Íslands. Jæja, ég sé þetta ekki akkúrat núna, a.m.k. ekkert sérstaklega vel, því það er jú rigning og ekkert sérlega gott skyggni....

Vísindasiðfræði (12 álit)

í Heimspeki fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Þetta er nú bara fyrirlestur sem ég er að fara að halda eftir smá stund um siðfræði í vísindum. Óskaplega almennt, það er ekki kafað neitt gífurlega djúpt í málin (enda átti þetta bara að vera svona kortér-tuttugu mínútur eða svo, og mikið efni að fara yfir) og vonandi skiljanlegt. Ég vona að það fyrirgefist að ég sendi hann hingað líka (og það sem grein!) … og þau ykkar sem nennið ekki að lesa “langar” greinar, geriði það fyrir mig að sleppa því að lesa þetta. Að minnsta kosti kæri ég mig...

Pælingar um eðli engla (45 álit)

í Dulspeki fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Þarf ég að taka það sérstaklega fram að hér er aðeins um pælingu að ræða, og ekkert meira en það? Sú trú virðist vera fremur algeng (ehe - a.m.k. á meðal þeirra sem stunda þetta áhugamál … kannske gegnir öðru máli meðal eðlisfræðinga við HÍ?) að okkur flestum fylgi einhvers konar verndarandar - hvað svo sem þeir kallast: Fylgjur, andar, englar (ég er a.m.k. viss um að fæstir trúi á engla eins og þeir ættu að vera samkvæmt nafni sínu (eða titli) og rótum þess: Orðið “engill” er runnið af...

Samsemdarvandi (29 álit)

í Heimspeki fyrir 21 árum, 5 mánuðum
“Samsemdarvandinn” er e.t.v. örlítið hrokafullt og jafnvel tilgerðarlegt heiti á þessu máli. En mér þykir það samt vera viðeigandi - fyrir mér er þetta raunverulegur vandi, sem veldur því stundum að ég fæ höfuðverk og verð andvaka. Vandinn er þessi: Samkvæmt lífeðlisfræðinni, þá skiptist um allt efni í líkama manns á hér um bil átta árum (1), en samt tölum við um sama manninn í dag, fyrir átta árum og eftir átta ár: Maður getur samið ljóð þegar hann er fjórtán ára og sýnt kærastanum sínum...

Tröll (34 álit)

í Deiglan fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Tröll. Þetta eru ýmist goðsagnaverur sem koma stundum til mannheima til að brjóta allt og bramla (eða stela fólki), eða fólk sem dundar sér við það að kíkja á spjallþæði (eins og huga.is) og hleypa öllu í bál og brand. Maður hefði haldið að eitthvað hefði lærst á öllu þessu peace4all kjaftæði. Að maður hefði lært að stilla sig um að svara þegar augljóst var orðið að maðurinn var aðeins að gera að gamni sínu. En svo var ekki. Fleiri hafa leikið þennan leik (og hver var aftur fyrstur á Huga...

Fóstureyðingar og reykingar á meðgöngu (26 álit)

í Deiglan fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Það er ágæt könnun í gangi núna um fóstureyðingar. Sumir segjast fylgjandi, aðrir eru á móti, og nokkrir segjast hlutlausir eða binda afstöðu sína við aðstæður. Nú er svo sem leiðinlegt að það skuli yfirleitt hafa verið boðið upp á \“hlutlaus\”, og enn verra að fólk skuli ekki taka afstöðu til annars eins. En það verður bara að hafa það. Hins vegar hef ég verið að velta þessu ögn fyrir mér, og þá sérstaklega þeim vörnum sem fólk heldur uppi fyrir svokölluðum rétti kvenna til að velja. Þetta...

Göngugarparnir (4 álit)

í Húmor fyrir 22 árum, 2 mánuðum
(Ég vona að ég hafi ekki séð þennan hér áður). Einu sinni fóru tveir kunningjar, Arnór og Baldur (ath.: nöfn valin af handahófi), í nokkurra daga gönguferð í útlöndum. Þeir höfðu gegnið í nokkra daga, og voru orðnir nokkuð þreyttir á hvor öðrum. Baldur var til dæmis alltaf að tala um hve æðislegt það væri að þiggja munnmök, en Arnór bara gat ekki hætt að dásama Margréti Thatcher. Koma þeir þá að lestarteinum sem lágu frá norðri til suðurs, og ákveða að fylgja þeim. Nema þeir geta ómögulega...

Hugmyndir mínar um tengsl kvenréttinda og stríðs. (21 álit)

í Sagnfræði fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Í upphafi vil ég biðjast velvirðingar á því, að það vanti heimildaskrá í lokin. Fæst af þessu er hins vegar fengið uppúr bók, heldur er þetta allt eitthvað sem ég hef heyrt útundan mér hér og þar, kannske lesið í bók en þá gleymt hvaða bók, og svo framvegis. Það eru viðtekin sannindi, að minnsta kosti í okkar heimshluta, að vestrænar konur njóta meiri frelsis og jafnræðis við karla heldur en aðrar mannlegar kynsystur þeirra (“mannlegar” segi ég því ljónynjur njóta ekki jafnræðis við karlljón...

Alignments og svoleiðis. (18 álit)

í Spunaspil fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Mér bara datt í hug, á meðan ég var að borða áðan, hversu undarlegt það væri, að galdramenn geti verið chaotic, eða yfirleitt eitthvað annað en lawful. Ég meina, spáum aðeins í þessu. Eins og ég skil lawful, þá er það ekki bara að vera löghlýðinn í ströngustu merkingu þess orðs, heldur líka að ráða yfir nokkrum sjálfsaga og persónustyrk. Chaotic, aftur á móti, er að vera óagaður og þannig. Og það sem flaug í brúnkollinn minn var þetta: “Hvernig getur einhver, sem hefur lítinn sem engan...

Hrólfs saga; endalok og nýtt upphaf. (0 álit)

í Smásögur fyrir 22 árum, 5 mánuðum
HRÓLFUR VERÐUR VITAVÖRÐUR Hrólfur sefur óvært þessa nótt á gólfinu fyrir framan eldinn. Óþægilegir draumar ásækja hann, hann kófsvitnar og muldrar í svefni eitthvað sem enginn maður getur skilið. Og snemma næsta dag er hann farinn líka, nú alveg peningalaus en líka áhyggjulaus því konan á kránni sagði honum að það væri ekki svo langt til næsta bæjar, sem væri mun stærri og vafalaust gæti hann fundið vinnu þar. „Gangið rösklega, og þér munuð komast þangað nokkuð fyrir sólarlag. Fylgið bara...

Hrólfs saga; miðkafli. (0 álit)

í Smásögur fyrir 22 árum, 5 mánuðum
HRÓLFUR HITTIR BRÓÐIR JÓHANNES Hrólfur gengur inn um dyrnar á kránni og hittir þar fyrir gómsæta steikingar- og bökunarlykt. Inni í eldhúsi, sem er beint á móti dyrunum, situr þrifaleg kona um þrítugt og hrærir í potti. Hún lítur upp þegar hún heyrir hann koma inn. Þegar hún sér að þetta er utanbæjarmaður segir hún honum að steiktar pylsur, brauð og súpa kosti eitt mark. „Takk. Skyldi nokkuð vera hægt að gista hérna næturlangt? Ég hef því miður ekki mikið fé á mér, aðeins hálfmark eftir...

Reynslusögur! (73 álit)

í Metall fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Hversu margir hafa orðið fyrir einhvers konar aðkasti vegna tónlistarlegra tilhneiginga sinna? Einhver verið hædd(ur) og smáð(ur) vegna þess að viðkomandi hlustaði frekar á Skid Row en, umm, eitthvað annað sem var vinsælt á sama tíma? Verið hlegið að þér vegna þess að þú tókst Metallica fram yfir Bob Marley og verið sagt að “Metallica eru mestu lúðar í HEIMI! Ha ha ha!” þegar þú mættir í Metallica stuttermabol í skólann? Einhver spurt hvort þú værir stelpa eða strákur þegar þú varst ennþá...

Psionics í (A)D&D. (39 álit)

í Spunaspil fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Hvernig er það með ykkur (A)D&D spilara, hvað finnst ykkur um psionics? Ef þessi spurning hefur áður komið, vinsamlegast beinið mér á réttar brautir. Ég, þótt ég hafi ekki spilað í mörg ár, hef verið dálítið að pæla í þessu. Ég er eiginlega kominn á þá skoðun að psionics séu eiginlega sniðugri en þetta hefðbundna galdrakerfi, þar sem mér sýnist þetta bjóða upp á meira \'role-play\' (en ég hef aldrei getað leikið galdrakall).

Hrólfur kemur til Brjánsvirkis (0 álit)

í Smásögur fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Hrólfur gengur rösklega. Sunnu systur er farið að blæða, og litar skýin fallega bleik og fjólublá. Um að gera að komast í hús áður en hún deyr, enginn tími er til þess að dást að snjó í fjöllum, sléttum sjó eða lituðum skýjum. Ef hann kemst ekki í hús, þá verður þessi nótt bæði löng og köld, og jafnvel vafaatriði hvort að hann muni lifa nóttina. Það er ekki algengt að menn séu mikið að ferðast á þessum slóðum, á þessum árstíma. Það er að vísu ekki hávetur, en dagurinn styttist og styttist,...

Galdrar Í AD&D/D&D. (22 álit)

í Spunaspil fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Er ég einn um það að finnast galdrakerfið í þessum spilum vera ögn kjánalegt, og alltof litlaust? Yfirleitt sýnast mér galdramenn vera annaðhvort vera algerar liðleskjur og landeyður eða þá einhvers konar stórskotalið sem dúndrar út eldhnetti á eldhnött ofan og þegar galdrarnir eru uppurnir þann daginn fara þeir bara á öruggasta staðinn og fleygja grjóti eða hnífum í óvini sem hætta sér of nálægt. Þetta “memorsation” - kerfi er ekki að virka sem skyldi, sýnist mér. Hve margir hópar leggja...

Rök (13 álit)

í Heimspeki fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Vinir mínir, hafiði einhvern tíman rökrætt tilvist Guðs við einhvern sem trúir? Þá vitiði líka, að sama hve góð rök þið komið með, þið fáið hann ekki til að skipta um skoðun. Ein ástæðan kann að vera sú, að þið séuð að beita vitlausri tegund raka. Rök ykkar eru vitsmunaleg, skynsamleg, jafnvel “kaldar staðreyndir”. En þið ættuð að reyna að höfða til tilfinninganna. Tilfinningar eru líka rökréttar, þótt rök þeirra séu okkur oft dulin. Þið ættuð að höfða til ímyndunaraflsins. Ef slík rök bíta...

Machiavelli (5 álit)

í Heimspeki fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég leit inn á “Stóru byssurnar”, þar sem fylgir stutt lýsing á hverjum heimspeking fyrir sig. Og þar er Machiavelli. Um hann er sagt, að lýðræði hafi ekki átt upp á pallborðið hjá honum. Þetta er í engu samræmi við það sem að ég hef lesið um hann, t.d. í “Machiavelli for beginners”, prýðisgóð bók. Höfundar hennar segja hann einmitt hafa verið mikinn stuðningsmanns lýðræðis, þó svo að önnur viðhorf virðast koma fram í Furstanum. Hafa ber í huga að Furstinn var skrifaður þegar Makki var í...

Lygi (12 álit)

í Heimspeki fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Hér fyrir neðan má sjá grein sem kallast “Frelsi til að ljúga?”. Þar hélt einhver ágætur maður því fram, að fræðimenn kirkjunnar á miðöldum væru ekki að ljúga þegar þeir héldu því fram að Jörðin væri flöt, og það vegna þess að þeir tryðu því sjálfir. Í fyrsta lagi - Eftir því sem ég best veit, þá vissu menn allt frá tímum Forn-Grikkja (ef ekki lengur) að Jörðin væri kúla/hnöttur. Hitt er svo annað mál, að þeir héldu því fram að allt snerist umhverfis Jörðina. Þannig að ég er ekki alveg viss...

JÁ! (4 álit)

í Heimspeki fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég myndi senda þetta til Handklæðisins, en þetta er bara svo stutt. “Yes is the word to everything; to liberty, to sweetness, to peace and construction. Yes is the word to everything; to pain, to torture, to war and destruction.” Vorph, “Jupiterian Vibe”. Þetta er málið! Að taka öllu með brosi á vör, gleðjast yfir hverju tækifæri til að verða sterkari, meiri og betri. “Ef okkur bjóðast tvær leiðir, önnur er slétt og þægileg, en hin er öll upp í mót, grýtt og erfið, þá mun hinn skynsami maður...

Terry Pratchett handklæðið (12 álit)

í Heimspeki fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Áður en að ég byrja, þá vil ég fá að vita hvers vegna þetta heitir “Mig vantar handklæði”. Annars er þetta rétt hjá kallinum. Eftir önnur tvöhundruð ár verða sennilega komnar aðstæður sem okkur dreymir aðeins um í dag, og þær aðstæður sem við höfum (a.m.k. á ríkari svæðum heims) eru draumaaðstæður fólks fyrir tvöhundruð árum síðan. Og samt erum við að kvarta og kveina, rétt eins og forfeður okkar, sem höfðu það skítt en þó betra en forfeður þeirra. Ef að maðurinn er dýr (vissulega...

Endurholdgun? (15 álit)

í Dulspeki fyrir 23 árum
Eitt hefur verið að angra mig nokkuð um tíma. Til er fólk, og þar á meðal býst ég við að séu margir hér inni, sem trúir því að við höfum sál sem endurholdgast aftur og aftur, nær ef til vill að komast á eitthvað æðra tilverustig og er þá ekki lengur bundin af holdsins hlekkjum. Burtséð frá því hvort að sálin losni einhvern tímann frá holdinu (og burtséð frá því hvort að sálin sé yfirleitt til), er einhver sem hefur hugmynd um hvaðan sálirnar koma? Ég meina, nú fjölgar mannkyni ótt og títt,...

Var Hitler vondur? (58 álit)

í Dulspeki fyrir 23 árum
Jæja, þessi verður nú stutt. Sumir trúa því að Nostradamus hafi spáð réttilega og nákvæmlega fyrir valdatöku manna eins og Hitlers, og einnig fyrir illsku þessarra manna. Spurningin er því þessi: Þar sem Nostri spáði rétt, þá er væntanlega óhugsandi að þessir menn hefðu getað gert eitthvað annað, Hitler hefði t.d. getað snúið sér að húsasmíð. Þar með virðist mér óhætt að segja, að þeir hafi ekki verið ábyrgir gerða sinna. Hvernig geta þeir, sem ekki bera ábyrgð á því sem þeir gera, talist...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok