Hversu margir hafa orðið fyrir einhvers konar aðkasti vegna tónlistarlegra tilhneiginga sinna?
Einhver verið hædd(ur) og smáð(ur) vegna þess að viðkomandi hlustaði frekar á Skid Row en, umm, eitthvað annað sem var vinsælt á sama tíma?
Verið hlegið að þér vegna þess að þú tókst Metallica fram yfir Bob Marley og verið sagt að “Metallica eru mestu lúðar í HEIMI! Ha ha ha!” þegar þú mættir í Metallica stuttermabol í skólann?
Einhver spurt hvort þú værir stelpa eða strákur þegar þú varst ennþá með sítt hár (ég var að frétta að slíkt væri fyrir löngu komið úr tísku, og já, þessi spurning á bara við stráka sem voru síðhærðir áður en skeggvöxturinn tók við sér)?

Ekki vera feimin.
All we need is just a little patience.