Jæja, þessi verður nú stutt.

Sumir trúa því að Nostradamus hafi spáð réttilega og nákvæmlega fyrir valdatöku manna eins og Hitlers, og einnig fyrir illsku þessarra manna.

Spurningin er því þessi: Þar sem Nostri spáði rétt, þá er væntanlega óhugsandi að þessir menn hefðu getað gert eitthvað annað, Hitler hefði t.d. getað snúið sér að húsasmíð. Þar með virðist mér óhætt að segja, að þeir hafi ekki verið ábyrgir gerða sinna. Hvernig geta þeir, sem ekki bera ábyrgð á því sem þeir gera, talist vondir?

Var Hitler vondur?
All we need is just a little patience.