Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Danir burstuðu Íslendinga

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Þetta er bara enn ein sönnunin fyrir því að við eigum að hætta þessari boltavitleysu og senda þessa menn í sveit, þeir geta þá hlaupið um túnin með boltann sinn og…já bara uss foj og eymingja við…..

Re: Langlífi Simpsons

í Teiknimyndir fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Það er ekki hægt að segja að Simpsons hafi versnað. Reyndar finnst mér húmorinn í dag farinn að vera enn meira “sick” en áður. Ætli við getum ekki borið þetta við Fóstbræður sem eru núna sennilega að fara að gera sína 6. seríu, hver ný sería er alltaf grófari en hin. Hins vegar eru sennilega margir sammála mér í því þegar að ég segi að þeir hafa nú farið dalandi, Fóstbræðurnir, samt gaman að þeim. Þetta hefur hins vegar ekki verið raunin með Simpsons, enda ég veit ekki hvað það eru margir...

Re: Sími til sölu, kostar eina tölu...

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 9 mánuðum
ROFL, titill þessarar greinar er hreint frábær!!!!! Nenni ekki hins vegar að lesa hana…..hrútfúlt mál…… Siggibet

Re: Hvernig á maður að lifa á þessu landi ?

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Hérna hvað áttirðu við með því að þú vildir Ísland í NATO??? Við vorum ein af þeim þjóðum sem stofnuðum það….. en Ísland er ekki eina landið í heiminum sem er með erfðaskatt. Bretland er t.d með hann, þeir eru reyndar ansi lungnir við það Bretarnir að finna upp nýja skatta, eins og Svíar með öryggismál í umferðinni. Bretinn fann t.d. upp virðisaukaskatt. Hún Barbara Cartland, rithöfundur heitin átti milljarða skrilljarða annað hvort í eignum og, eða reiðufé. Hún lék á ríkið og gaf allt sitt...

Re: Home Repairs (enska)

í Húmor fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Hehehe….

Re: Eru hommar þróaðri?

í Heimspeki fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Pant vera dauður þegar að svona byrjar. Hmm hafið þið lesið bókina Brave New World??? Þar er fólkið búið til í púpum, allir ríða öllum, þó bara fólki sem er úr sömu stétt og það og gleypa pillu ef það finnur til leiða…….. Hverja hlakkar til? Siggibet

Re: í dag dóu meira en 40.000 manns!

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Langar að nefna eitt sem að hann/hún Gluggi sagði, þetta með að kenna manninum að veiða. Það er rétta aðferðin. Það er endalaust hægt að moka peningum og mat í þessi lönd en hvernig væri að auka menntun, ekki bóklega, heldur verklega. Það var eitt sinn japanskur læknir á ferð í Zimbabwe og haugur af börnum í kringum hann betklandi af honum pening og ferðafélögum hans. Hann sagði við þau að þau fengju ekki ryðgaðann tíkall frá honum en hann skildi kenna þeim. Svo hann settist niður með...

Re: Baldur’s Gate; Story of Stupidity and Bravery

í Tölvuhlutverkaleikir fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Hmmmmmm…..ég verð nú að segja það að þetta er svolítið skondið en sammt frekar klikkurð hugmynd….

Re: Pósturinn

í Húmor fyrir 23 árum, 9 mánuðum
HAHA! Pant lenda í svona!

Re: Afhverju er þetta svona erfitt!!!!

í Deiglan fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Hérna……það var sagt að þetta var árást á öll ríki NATO þannig að þau aðidarríki sem eru aðilar að því eru komin í stríð við hvern þann sem gerði þetta. Ég held að kaninn geti alveg staðið í þessu sjálfur, ég held samt að hin ríkin muni rétta hjálparhönd……nú er verið að veina á mig í vinnuni best að drulla sér og vinna…. Siggibet

Re: í dag dóu meira en 40.000 manns!

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Sko hérna yfirleitt eru þessar hungursneyðir vegna styrjalda sem geisa á þessum svæðum. Eða að ríkisstjór landsins finnst það brýnna að eyða aurunum í hertól en mat fyrir fólkið sitt. Nefni ég þar N-Kóreu. Jú það er líka þannig úi sumum löndum að uppskerur bresta og jafnt skepnur sem menn hrynja niður úr hor. Má þar nefna ættbálkana í Mongólíu, ástandið þar er vægast sagt, skelfilegt. Má segja að það sé svipað því og var hér á fróni fyrr á öldum. Nema þá var ekki til neitt sem heitir...

Re: túlkaður á milljón mismunandi (ranga) vegu???

í Deiglan fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Bíddu byrjar fyrsti stafurinn á Biblían, bók bókanna? Já það er sko skrudda sem margur maðurinn hefur lesið og túlkað eftir sínu eigin höfði. Svo eru ekki sama Biblían í gangi allstaðar. T.d. held ég að kaþólikkar noti ekki sömu bók og mótmælendur. Svo nota gyðingarnir bara Gamla Testamentið. Þannig að það er glás af rugli í gangi. Siggibet

Re: Við lifum ekki á friðartímum

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 9 mánuðum
humm dauðadómur væri bara lúxus…. Senda þessa kalla í Pelikan Bay einangrunarfangelsið til lífstíðar. Þar fá þeir aldrei að hitta aðra fanga. Eina fólkið' sem þeir hitta eru fangaverðir sem tala ekki við þá….

Re: Íslenskar herdeildir......?

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Ef e-ð stríð verður mun það ekki vera neinn Persaflói. Ég man ekki betur en að Sovétmenn hörfuðu frá Afghanistan því þeir réðu ekki við þessa kalla, þó svo að Sovétmenn væru 100 á móti 10. Ætli samt að þessir menn sem stóðu á bak við þetta verði ekki framseldir því það ríki sem hýsir þá verður hertekið. Sama hvað önnur lönd segja………. En hérna já…. bara bless. Siggibet

Re: Hinir týndu túrtappar(enska)

í Húmor fyrir 23 árum, 9 mánuðum
ROFL ROFL ROFL ROFL ROFL ROFL ROFL ROFL ROFL!!!!! Blessuð börnin…..

Íslenskar herdeildir......?

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Jæja, tölum mikið og ræðum málin og látum aðra um að sópa burt ruslinu…….. Strákar, eigum við að sækja um í erlendum her? Ég er ekki með neinn macho massa fílíng hérna. Líkurnar á að deyja eru talsverðar. Við getum líka gert fleira en að kjafta og blaðra um að það verði að, og við ættum. Ég er tilbúinn að leggja mitt af mörkum. En ég er ekki frá því að ég fæ núna skítkast og mótmælt verði þessari hugmynd. Ég er heldur ekki frá því að hún móðir mín yrði afar sorgmædd ef ég léti verða af svona...

Re: WIII

í Deiglan fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Núna sit ég við tölvuna mína, pikka inn stafi og get ekki hugsað um annað en hvort að ný styrjöld muni skella á………….ég hef horft á marga fræðslu þætti, lesið líka, um stríð sem háð hafa verið í gegnum tíðina. Þá viriðst sem að þetta sé e-ð svo fjarlægt og ég veit það ekki. Við þessi herlausa þjóð sem sitjum nú samt í súpunni, hvað getum við gert? Getum við bara setið, slakað á og sagst hlutlaus eða tökum við afstöðu? Munum við standa upp og segja að við séum hliðholl Bandaríkjunum í þessu...

Re: Kínverjar og árásin á USA.

í Deiglan fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Humm humm humm, ef Kína væri með svona hreyfingar myndu Rússarnir ekki verða kátir. BNA er kannski ekki alveg uppáhald Rússa en þeir hafa þegið svo mikla fjárhagsaðstoð frá BNA og Evrópu að slíkt myndi gera Rússland og Kína að óvinum. Það er líka talað um hjá Nostradamus (Great Arabia) sem er þá frekar e-h vefjahatta-landið……. Ég veit það bara að þetta er ekkert grín efni. Siggibet

Re: Hverning gat þetta gerst?

í Deiglan fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Sorg sorg og enn meiri sorg. Þeir hér sem þykja þetta fínt og passlegt á Kanann geta étis sinn eigin saur og baðað sig úr mykju. Að drepa tugi þúsunda manna á einu bretti er ekkert nema morð og glæpur gegn mannkyni. Sama hver málsstaðurinn er. Núna segja eflaus einhverjir: ,,já en hvað með kjarnorkuárás Bandaríkjamanna á Japan??" Og hvað með hana? Hún var til þess að hlífa sínum eigin mönnum, slíkt hefði kostað tugþúsund líf ef ekki hundruð, svo sleppum þeim rökum. Ekki yrði ég hissa ef...

Re: Útvarpsstöð hvetur til drykkju

í Deiglan fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Það er allt í lagi að auglýsa léttöl svo framalega að það sé til í verslunum eða framleitt yfirhöfuð má þar nefna ástralska mjöðinn Fosters en það er ekki til neitt sem heitir Fosters Light, og hana nú. Þannig að allar auglýsingar sem komu á milli atriða í Survivor voru hreinar bjór auglýsingar. Takk takk, Siggibet

Re: Ótrúlegt en satt

í Húmor fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Þetta er æði, pant vera beikon í næsta lífi, ef ekki beikon þá ljón. Annað er bara rusl. Þetta er annars bara drullu góðir hlutir, t.d. þetta með strútana.

Re: Nýr C&C: Renegade trailer

í Herkænskuleikir fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Þetta verður grautfúll leikur, ömurleg grafík, crappy hljóð og bara…..já glatað…………………… N O T ! ! !

Re: Norður Írland... Á þetta fólk skilið sjálfstæði?

í Deiglan fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Ég gat ekki lesið greinina vegna tímaskorts en það á að flengja þetta pakk á berann bossann! Að þeir skuli vera að sálga börnum! Svo þykist þetta fólk vera kristið. Hugsa sér að þetta sé í V-Evrópu alveg merkilegt. Eitt svolítið merkilegt. Ég var eitt sinn skáti og á einu móti hitti ég stelpur sem voru frá N-Írlandi, þær sögðu að allflestir vildu vera áfram partur af Bretlandi. Þær höfðu víst líka tekið þátt í því að henda bensínsprengjum, skátarnir, hmmmm……. Þessi heimur fer til andskotans...

Re: Golden Oldies: Ninja Gaiden

í Leikjatölvur fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Leikir í dag eru ekki jafn góðir og þeir voru, í dag er meira lagt í flotta grafík og gott hljóð en söguþráðurinn er ekki mikið til að hrópa húrra fyrir, þó ekki alltaf, t.d. Baldur's Gate1 & 2. Ultima leikirnir voru alveg magnaðir, man nú ekki hvenær fyrsti kom út, það var alla vegana mjög snemma á níunda áratugnum. Ekki er hægt að segja að skemmtanna gildi leikja minnkar ekki, við verðum einhvern vegin vön þessu og látum gott heita, ég meina er góð saga í Max Payne? Mér fannst hann...

Re: Conan svona sjaldan?

í Deiglan fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Hann Conan er plebbi, ég var t.d. að horfa á hann í gær (3.sept.) og mér fannst þetta bara ekkert fyndið, eða lítið sem ekkert. Hafið það gott.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok