Djöfull er ég með blendnar tilfinningar í garð Skjás eins núna. Ég hef sjaldan verið jafn ánægður og þegar ég komst að því að Conan væri að koma á skjáinn aftur enda hefur mér alltaf fundist hann MUN skemmtilegri en Jay Leno, mun meiri spuni og rugl hjá honum, allt hjá Jay er æft og svosum fyndið á sinn hátt, maður glottir og hlær stundum, en Conan nær manni ALGJÖRLEGA í kast stundum.

Ok nóg um hvað Conan er mikill guð, en ok hann kemur á skjáinn ég er núna búinn að kaupa mér snakk og coke til að fagna, og hvað sé ég? Jú Conan er bara einu sinni í viku og Jay með alla hina 4 daganna. Persónulega vill ég Conan alla daga vikunnar en það gerist aldrei, af hverju er ekki bara skipt, þriðjudagar og fimmtudagar = conan og restin er Jay, mig minnir að þetta HAFI verið svona áður en þeir settu þennan ömurlega ET þátt í loftið (fannst það versta decision ever að setja ET í stað Conan).

Hvernig er það er fólki almennt betur við Jay? Ok hann er rótgróinn og klikkar ekkert, en hann Conan hefur “Flare” sem Jay hefur ekki finnst mér, Jay alveg baðar sig þegar honum tekst að gera comeback sem er ekki pre-made, Conan reitir þá af sér.

ok ég er að ranta of mikið um hvað hann er frábær. Tell me what you think :)