auga fyrir auga, tönn fyrir tönn

Ég tel mjög miklar líkur á því að þriðja heimstyrjöldin sé á næsta leyti. En hver gerði þessa áras? Margir benda á Osama Bin Laden, aðrir vilja kenna Palestínumenn. Það er frekar sorglegt að sjá lítil börn að vera fagna þessu úti á götum í Ísrael. Þessi áras er alltof vel skipulögð til að hafa verið gerð af einum hryðjuverkahópi.Ég held að það skipti engu máli því Ísraelsmenn munu gera allt í sínu valdi að forðast slíka áras og átti sér stað í Bandaríkjanum. Palestínumenn geta gleymt því sjálfstæðisbárattu sinni, eftir þetta verða trúlega margir Palestínumenn drepnir. Eftir flestir í Ameríku hafa jafnað sig munu öll spjót beina að Mið-Austurlöndunum. Það er hluti af New York í rúst, meðal annars fjármálasvæðið Wall Street, The World Trade Center, Pentagonið, ein vél lenti rétt fyrir utan Pittsburg og ein hrapar á leiðinni til San Francisco. Við erum að tala um hátt um í hundrað þúsund manns eða jafnvel meira sem hefur látið lífið.

Það eina sem er hægt að gera er að horfa á fréttir og bíða eftir yfirlýsingu hjá forseta Bandaríkjanna.
Þetta er það versta sem hefði geta gerst með Bush sem forseta. En spurningin er, stuðlaði hann af þessu?
Through me is the way to the sorrowful city.