Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Hann Bush kallinn!

í Deiglan fyrir 23 árum
Heyr á endemi. Ég get ekki séð betur en að þú ert nokkuð hliðholl Kína. Það er auðvitað alveg skiljanlegt. Þú ert nú nær þessu öllu saman heldur en við hérna á þessum hólma. Einu skulum við ekki gleyma að Kaninn sem er mjög litríkur, hjálpaði þessu litla skeri sem Ísland er í síðari heimsstyrjöld. BNA björguðu, ásamt Rússum allri Evrópu frá nazisma. Auðvitað vill kaninn ekki að einhverjir Kínverjar svari fyrir sig. Þarna taka þeir nú menn af lífi á fótboltavölllum. Fyrir utan það að þeir...

Re: Framtíðarsýn !

í Húmor fyrir 23 árum
HAHA HA. HAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHA o.s.frv. og HAHA

Re: A MAN'S WORLD

í Húmor fyrir 23 árum
Ég sendi þennan inn hér alls ekkert fyrir löngu nema hann var sendur á kork. Reyndar var hann á íslensku og aðeins öðruvísi. En ykkur er auðvitað alveg sama.

Re: Ef jarðarbúar fyndu vitsmunalíf á öðrum hnetti!

í Geimvísindi fyrir 23 árum
Ég held að maðurinn ætti að kynna geimverunum hina hressandi lækningar aðferð sem stólpípan er. Sammála? En í alvöru talað. Væru allt sem heitir útvarpsbylgjur og það of kraftlaust til að komast yfir til einhverja ET kalla? Það tæki allavegana gommu af tíma….

Re: hvað einelti gerir fólki

í Deiglan fyrir 23 árum
Til Engel; Það er greinilegt að þú hefur ekki hugmynd um hvað þú ert að segja. ASNINN þinn! Þær sálrænu kvalir sem fólk hlýtur vegna eineltis geta verið allt frá smá leiða upp í sjálfsmorð. Þú ættir aðeins að hugsa þinn gang áður en þú leggur fram svona sleggjudóma. Kannski þú sért einn af þeim sem ert að “stríða” öðrum, og mér er alveg sama hversu gamall þú ert. Það er greinilegt að mannvonska eldist ekki af mönnum. Það er erfitt að standa einn upp á móti 10 manns og ætla að gera e-ð í því....

Re: Hvernig líta geimverur út?????

í Geimvísindi fyrir 23 árum
Ja hérna mér. Hvers vegna í andskotanum skildu einhverjar geimverur koma á þennan auma grjót haug?? Til að sjá hvað það er mikl mengun eða láta skjóta sig? Það nennir enginn að tala við frumstæðar tegundir eins og manninn. Alltof ill.

Re: Hundar og kettir

í Geimvísindi fyrir 23 árum
Félagar mínir og ég vorum í gönguferð um Esju svæðið, gegnum yfir hana og gistum í skála sem heitir Þristur. Hvað kemur það þessu við??? Nema hvað, þetta var í svona október eða svo og það var frekar hlýtt og okkur datt í hug að fara út á pall og sofa þar. Allir í góðum pokum og allat það. Svo fór maður að glápa upp í himininn……. Ég hef aldrei séð jafn margar stjörnur!!!!! Þetta voru örrugglega yfir 100 stykki, þvílíkt og annað eins hef ég aldrei séð. Ekki stakt ský á himni en ekkert tungl...

Re: ufo´s og nasistar

í Geimvísindi fyrir 23 árum
Mér þótti upphafs greinin í þessari umræðu hin mesta skemmtan :-)

Re: ufo´s og nasistar

í Geimvísindi fyrir 23 árum
Mér þykir það merkileg hugmynd að Kaninn hafi fórnað Pearl Harbour til þess að komast inn i stríðið á einhvern “sniðugan” hátt. Að fórna lífum fleiri þúsunda manna er tómt rugl. Hvers vegna heldur þú að þeir hentu kjarna bombunni á Japan? Þeir sáu það að það mundi kosta gommu af mannslífum sem mundi láta innrásina í Normandí vera eins og leikskóla. (Auðvitað var það líka til að sýna að þeir ættu stærstu bobuna í vopna búrinu) Kananum var og er annt um líf hermanna sinna. Þeir eru jú stolt...

Re: hvað einelti gerir fólki

í Deiglan fyrir 23 árum
Ég verð víst að játa á mig mikla skömm. Ég hef verið lagður í einelti og þegar það hætti eftir að ég fór í nýjan skóla var þar einn strákur sem var mikið atast í. Ég vildi ekki stríða honum en ég var um 9 ára þegar þetta var. Ég var hræddur um að ef að ég mundi ekki gera eins og hinir að þá mundi ég bara lenda aftur á sama stað, og það vildi ég ekki. Þannig fór það að ég tók þátt í þessu, stóð kannski ekki fremstur meðal manna en samt er það engu skárra. Ég skammast mín niður til helvítis...

Re: Dauði eða Banga

í Húmor fyrir 23 árum
B R A V Ó ! ! ! ! ! Þetta er SNILLD

Re: Mannréttindabrot Kínverja...

í Deiglan fyrir 23 árum
Ja, mér þóttu nú myndirnar af rústum skólans alveg næg sönnun og það er erfitt að koma nokkur hundruð kílóum fyrir án þess að nokkur verði þess var. Nema einhver hafu fengið vel í aðra höndina. Það er þannig um allan heim, fólk lítur undan ef það fær nógu mikla peninga í hendurnar, alls staðar líkar hér á þessum hólma. Ég væri ekkert hissa þó að þessi hnöttur væri kominn hálfa leið til helvítis, ef ekki lengra, fyrir 2050.

Re: Mannréttindabrot Kínverja...

í Deiglan fyrir 23 árum
Hmm. Það er nú ekki hægt að láta Kínverja fara svona með fólkið sitt. Munið þið eftir fréttinni um skólann sem sprakk í tætlur af því að það var verið að framleiða flugelda í skólanum? Jæja, eftir skólinn sprakk í milljón bita og fjölmiðlar komust í þetta sögðu Kínverjar að geðsjúkur maður hefði komið púðrinu fyrir og sprengt skólann. Ef ég man rétt þá var e-ð nálæt 1 tonni af púðri þarna, ekki auðvelt að fela þetta. Svo verðum við líka að athuga það að í Kína búa um milljarður manna eða svo...

Re: Skotárásir? Hin raunverulega ástæða.

í Deiglan fyrir 23 árum
Ég tek ofen fyrir þér herra minn. Ég er einn af mörgum sem lagðir hafa verið í einelti og hugsaði þeim oft þeigjandi þörfina. Ef ég hefði verið Kani væri það ansi líklegt að ég hefði tekið byssuna hans pabba og fretað á þá sem mér stríddu. Þeir vissu ekkert hvað ég kvaldist. Hvers vegna áttu þeir ekki að kveljast???

Re: Ekki stíga á endurnar

í Húmor fyrir 23 árum
Eitthvað held ég að þessi maður sé miður fagur, þetta er brilliant!

Re: TIL: Allra karlkyns skattborgara

í Húmor fyrir 23 árum
SNILLD

Re: Helvíti

í Húmor fyrir 23 árum
Fjandinn er að fólki að hrauna á það ef það setur inn gamlann brandara?

Re: Kerfi og spilarar

í Spunaspil fyrir 23 árum, 1 mánuði
Mér líst alveg rosalega vel á nýja D&D formið en þó er eitt að….. Það er að finna út hversu miklar líkur eru á að maður nái að höggva, kasta hæfileikum o.s.frv. Auðvitað er reinsluleysi mitt vandamál hér, því ég hef lítið sem ekkert spilað AD&D. bara ASK YGGDRASILS, sem er ansi skemmtilegt en þó ekki neitt í líkingu við D&D. En spurningin er þessi: Hvar finn ég út árásarlíkurnar, líkur á að ná hæfileika kasti o.s.frv. Ég er í öngum mínum. Fyrirfram þakkir, Siggibet

Re: Flugvélahúmor

í Húmor fyrir 23 árum, 1 mánuði
Þetta er skít gott! :-) Flugleiðir ættu að hengja þetta upp inni á kömrunum í flugvélunum.

Rónar

í Húmor fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég heyrði þennan þannig að rónarnir komu hver á eftir öðrum inn á barinn og báðu um rör, ástæðan var vegna þess að einn þeirra var nýbúinn að drekka vodka en kastaði upp. Þeir vildu ekki láta sjússinn fara til spillis :-)

BT SUCKAR

í Vélbúnaður fyrir 23 árum, 1 mánuði
Það vill nú svo skemmtilega til að Tæknival á BT. Verslunin er eiginlega Bónus. Þegar saltstengurnar eru orðnar gamlar í Nýkaup eru þær sendar í Bónus og seldar þar á kúk og kanel. Sama má segja um BT og Tæknival. Það er sami kúkalabbinn sem á þetta og ræður þessu. BT selur óprófaðar vörur, t.d. tölvurnar þeirra. En það er margt fleira sem tottar. Má þar nefna þessi blessuðu heimbíó þeirra sem þeir hafa náð að pranga inn á fólk. Þeir auglýstu eitt merki (segi ekki hvað því það er mórall) Ég...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok