Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Star Wars: Knights of the Old Republic

í Sci-Fi fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Slef slef…ef þetta væri stelpa þá myndi ég ríða henni!!!!!!!!!!!!!!!!!

Re: F***ing löggufífl

í Deiglan fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Já það er til skammar að lögreglan skuli ekki hjálpa aulum sem læsa lyklana inni í bíl…. Hvað er að ykkur????????? Löggan hefur margt þarfara að gera heldur en að opna læsta bíla. Löggan er undirmönnuð og hafa í öðru að snúast. Þið ykkar sem segið lögguna fífl og ókurteisa, má ég spyrja ykkur: Hvernig haldið þið að fólk verði ef það sér illa hluti nær daglega? Sá sem gengur í lögregluna verður ekki samur á eftir. Siggibet

Re: F***ing löggufífl

í Deiglan fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Sammála þér zorblubb China hlýtur að hafa verið hirtur á 70 í 30 hverfi og saknar peninganna og ökuskírteinisinns :-Þ Það er hldur ekki auðvelt að opna bíla með samlæsingu. Ætli það sé ekki betra að fá einhvern sem kann þetta. Ég er nú svo heppinn að bíllinn minn er tjald (blæjubíll) svo ég renni bara niður einum rennilás og skríð inn ef ég læsi lyklana inni í bílnum, sem ég geri oft :-) Löggan er fín og punktur. Siggibet

Re: Star Wars á Stöð 2

í Sci-Fi fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Hey, hefur einhver hérna séð Star Wars I á DVD??? Það væri afar áhugavert og mjög fróðlegt að sjá Darth Sidius tala á t.d. þýsku!!!!! Jah eða frönsku…. Sternen Krieg = Star Wars :-)

Re: Hvernig er dómum háttað á Íslandi???

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
………………mér er orða vannt yfir þessu. Siggibet

Re: Miltisbrandshrekkur við Davíð

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Þessir strákar hafa sennilega hlegið dátt þegar þetta kom í fréttum og mikill ys og þys varð af þessu, þó hefur brosið farið af þeim þegar að lögreglan fór að gruna ýmislegt og allt það. Þessir krakkar meiga ekki sleppa við refsingu, því það er víst glæpur að hræða forsætisráðherra. Hvernig væri að setja þessa krakka í einhverja félagsvinnu, já eða bara bóna bíla allra ráðherranna!!!! Það væri nú gaman að sjá:-) Segi nú bara svona. Hef ekki meir um það að segja en Hallurha, hvað varst þú að...

Re: kvennaáthvarfið úthýst vegna GRÆÐGI

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Það sem hann molotov á kannski við er að þeir ríku verða ríkari og strjúka feitan kvið. Að geta rifið heilt hús og byggt nýtt er bara á færi fárra einstaklinga. Þarna kemur þetta fólk og setur fótinn fyrir mikilvæga stofnun. Í raun hefðu þau átt að sjá sóma sinn í því að leyfa Kvennaathverfinu að vera þarna. Ég tel vera til tvennskonar réttlæti, lagalegt og siðferðilegt. Lög og siðferði standa nefninlega ekki alltaf hlið við hlið. Eins og ef að 11 ár eru liðin frá kynferðisglæp er ekki hægt...

Re: Íslenskur Her

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Jeremías!!!! Lotti, það var nú búið að ræða það fram og aftur hvort ráðast skildi á Afganistan þannig þeir höfðu tíma til að undirbúa sig. Svo eigum við mikið af bandamönnum að við erum í engri hættu. Kannski að Danir muni ekki geta varið sig einir en með aðstoð hinna norðurlandanna, Svíþjóð, Noreg og Finnlandi gætu það gert gæfu muninn. Finnars segja meira að segja að þeir geti ráðið einir við Rússa…..það hlýtur að segja þér e-ð um hernaðarstyrk þess lands. Það þyrfti að komast framhjá...

Re: Hermóður

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Hvað er a' tarna??? Kaninn fer aldrei að vera með læti við okkur, hvernig dettur ykkur slíkt í hug?!? BNA og Bretland eru vinir okkar og að láta koma með svona er hrein og klár paranoia. Já alveg rétt þið eruð að hugsa um framtíðina…. Það er núna verið að koma á þessu evrópu-sambandi og tel ég að það muni verða annað afl með BNA. Þið skiljið kannski ekki að það er ekki hagstætt að þessi öfl fari í stríð, við eigum í svo mikilli verslun við hvort annað……. BNA og Evrópa munu vera áfram og um...

Re: Hermóður

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Jeremías og Jósafat!!!!!!!!!!!!!!!! Ég held að þessi umræða hafi algerlega skitið á sig. Sjálfur er ég samþykkur því að Íslendingar taki þátt í ,,Hernaði" ég er ekki að tala um flugmóðurskip, tundurspilla og freygátur. Eitt af þessum skipum kanans er alveg margföld fjárlög ríkissins eða mjög nálægt því. Sko, það sem sumir reyna að koma út úr sér hér er tekið og snúið úr því þannig og grín gert að fólki sem er tilbúið að hugsa um fleiri en rassgatið á sér. Ég veit ekki hvað sumir halda að...

Re: Eyþór sem borgarstjóri?

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Þessi Eyþór getur bara verið heima hjá sér…..þetta er einn af þessu þotuliði sem ætlar að vera e-ð merki í þessu þjóðfélagi. Ef hann verður í framboði sem fulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn að þá kýs ég hann ekki, það eru hreinar línur…..ég vil enga snáða í borgarstjórn. Hana nú, punktur og basta og allt það já…. já bless. Siggibet

Re: RCE - Nýja region bullið.

í Kvikmyndir fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Iss……eftir því sem ég hef séð hafa einstaklingar alltaf getað farið í kringum þetta. Ég er reyndar ekki alveg klár á því hvað þetta þýðir. Er þetta þannig að maður getur bara spilað diska sem eru svæði 1 þ.e.a.s NTSC kerfið o.s.frv. eða er ég bara gamaldags með þetta NTSC, PAL og allt það???? Hvað um það….það munu einhverjir guttar sem eru ekki komnir með hár á slátrið redda þessu…. Siggibet

Re: Íslenskur Her

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Agaleysi Íslendinga er alveg ótrúlegt og her gæti kippt því í liðinn, kannski. Við verðum að athuga það að á þessu blessaða skeri búa ekki nógu margir til þess að búa til eina herdeild, hvað þá heilan her. Ef við tökum fólk á aldrinum 18-35 ára að þá eru það kannski u.þ.b. 50.000 manns…..hmmm einhverjir af þessum hóp eru fatlaðir eða eiga við einhver vandamál að stríða sem gera þá ónothæfa í her. Jæja, það væri svo sem ekki vitlaust að taka stelpurnar með í þetta???? Þá kæmu upp ný vandamál...

Re: Serverar Blizzard hackaðir... aftur

í Blizzard leikir fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Heyr heyr!!!!! Fólk sem hefur það fyrir stafni að eyðileggja skemmtun annars fólks á það skilið að vera sett í bað fyllt af hlandi og láta það svo fá hlandbruna og strá síðan yfir það salti og bensíni og kveikja svo í því!!!!! Djöfulsins pakk!!!!!!! (Kannski full gróft) :-þ Siggibet

Re: Áttu jeppa ??

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Það var ekkert sem bannaði jeppa eigendum að fara útfyrir veginn og bruna þar áfram eða þarf alltaf að vera vegur undir bílnum???? Það sem greinarhöfundur á sennilega við er að hversvegna þarf allt þetta fólk að vera á þessum risatækjum???? Og það hafa sko ekki allir sem um keyra á þessum tækjum efni á þeim, langt því frá. Hversvegna heldur þú að bílasölur séu næstum fullar af nýjum eða nýlegum jeppum? Jú ég hef keyrt svona nýjan bíl en það er ekki betra en að keyra Volvo S80 skal ég segja...

Re: smá hálka og allt í vitleisu

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Fyrstu hálkublettir vetrarins koma okkur alltaf á óvart og verða fréttaefni. Vá hvað við erum vitlaus. Reyndar er hraðakstur ein ástæðan fyrir því að bílarnir fljúga útaf. Það er þannig með sumt fólk að það er með allt á fullu þó svo að það sé glerhálka, svo heldur það að það geti bara bremsað eins og að það sé sunnudags eftirmiðdagur í júní. Þið hérna sem búið á höfuðborgarsvæðinu og reyndar víðar. Að þá ringdi eilítið í síðustu viku. Ég var á Hafnarfjarðarveginum og vegurinn var bara eins...

Re: Miltisbrandur, nýtt vopn hjá hryðjuverkamönnum?

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Hvernig væri að setja Sorbitol út í drykkjarvatnið??? Fyrir þá sem ekki vita að þá er Sorbitól hægðalyf sem veldur ferlegum niðurgangi hjá venjulegum einstaklingi. Væri það ekki ðí raun meiri kvalalosta aðferð að láta Kanann fá ræpu? Þetta var nú illa sagt, datt þetta bara svona í hug>:-)

Re: Áttu jeppa ??

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ein pæling sem er í raun ekki mikið skyld þessu: Hvers vegna er þetta ritað “jeppi” í staðin fyrir “éppi” Það kemur út á það sama og í raun er þetta síðarnefnda réttara. Einhver sagði mér að þetta kæmi útaf Jeep, bílunum sem kaninn var með hér á landi þegar stríðið var. Bara smá pæling.

Re: Áttu jeppa ??

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Jeppar eru ekki þægilegri en fólksbílar, þú gætir ekki haft meira rangt fyrir þér. Það var þannig áður fyrr að það voru einnahelst bændurog fólk úti á landi sem áttu jeppa. Við í bænum keyrðum um á Mözdu eða Ford eða einhverju því um líku (svona bíl eins og Stella í Orlofi var á) Nóg um það. Bændurnir eru núna að gefa skít í þessa trukka og eru farnir meira út í fjórhjóladrifna minni bíla því þeir segja að þetta sé handónýtt. Okei. Kannski hafa þeir rangt fyrir sér. Lítum á þetta frá öðru...

Re: Áttu jeppa ??

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég er einn af þeim sem á “jeppa” og ég viðurkenni það að ég er asni. Reyndar á ég gamla Súkku en það kemur út á hinu sama. Einn…hvað er ég að segja þrír í vinnuni eru á risa-vöxnum bílum, tveir Patrol og einn Cruiser. Þessir bílar glansa eins og ekkert annað sé gert en að bóna þá. Samt er þetta bara lítið miðað við suma. Þeir eru með drullutjakk sem hefur sko aldrei verið notaður. Tengdamömmu-box ofan á bílnum og skóflu sem er ennþá með verðmiðanum. Þessir bílar eru of fínir til að fara...

Re: Mannréttindabrot? Lambúshettur eru bannaðar!

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
…afskakið, ýtti óvart á enter. Hvar var ég……….já Ísland er jafn mikið fasistaríki og við erum kjarnorkuveldi, sem sagt, ekki fasistaríki. Það er greinilegt að fólk hér veit ekki hvað það hefur það gott. Þið eigið tölvu er það ekki og megið senda greinar hérna inn eins og ykkur sýnist er það ekki? Reyndar fer það fyrst í gegnum umsjónarmann hvers áhugamáls en æði margt kemur hér fram. Í rauninni er ég kjaftstopp yfir svona fíflum sem segja að Ísland sé fasistaríki. Hér er friður!!!! En engir...

Re: Mannréttindabrot? Lambúshettur eru bannaðar!

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Menn stoppaðir og sagt að taka ofan lambúshetturnar og þá er ekki fyrr búið að kveðja þessa menn en að fólk er farið að veina. “FASISTARÍKI FASISTARÍKI!!!!!” HVAÐ Í ANDSKOTANUM ER AÐ YKKUR??????????????

Re: V-G og osama bin laden!!!

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Til þess sem sagði að Ísland ætti að vera hlutlaust: ,,Heitustu staðirnir í helvíti eru ætlaðir þeim sem eru hlutlausir þegar mikið liggur við" Dante

Re: World of WarCraft: Nýr MMORPG frá Blizzard!

í Blizzard leikir fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Sko ég hérna fór inn á blizzrd.com/wow og ég verð bara að segja að ég vætti brækur mínar. Ég hélt ekki þvagi, þvílík og önnur eins hrifning sem ég varð fyrir!!!!!!! Ég er einn af þeim sem spilar UO og er það frekar öðruvísi en WoW en hérna…….VÁ hvað ég held að þessi leikur muni ROKKA! Það var reyndar verið að segja mér að bardagarnir væru e-ð mis en hérna það hlýtur að lagast. Svo munu nú koma leikir á borð við Star Wars Galaxy…eða þarna online leikur þar sem Jedi geta barist og Wookies geta...

Re: Tom Bombadil

í Tolkien fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Tom Bombadil er skondnasti kallinn í þessari sögu. Þegar það var verið að éta Samwise lifandi og Tom barg honum út út trénu…..ég sá hann fyrir mér eins og kall sem fer aldrei í fýlu. Þú gætir teflt á matardisk hans og hann mundi bara hlæja….ég veit nú ekki hvert ég er að fara með þessu hjá mér en ég var farinn að velta fyrir mér hvernig hann yrði hafður í myndinni…..frekar fúlt en hann, eins og einhver sagði, þá kemur hann sögunni sjálfri lítið við……. Siggibet
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok