Ég leit á vefinn fridur.is, vef herstöðvarandstæðinga. Þar kom fram þeirra skoðum um hver ástæða árásana á World Trade Center og Pentagon. Í stuttum dráttum var skoðun þeirra að hryðjuverk væru áhjákvæmileg og ekki ætti að refsa fyrir þau með valdi heldur með friðsömum hætti því að annað mundi ýta undir fleiri hryðjuverk, því ættum við láta hryðjuverkamennina í friði.
Ég er ekki tilbúinn að sætta mig við að hryðjuverk séu venjulegur þáttur í vestrænu samfélagi og ég er ekki reiðubúinn að fallast á það að þeir sem standa fyrir þessu geti komist upp með það, Þessum mönnum skal refsað og það harðlega, þó að við megum ekki fara of geyst.
“Friðarsinnar” hafa yfirleitt haldið því fram að NATO ætti ekki að vera til á friðartímum, ég hef fréttir fyrir þessa “friðarsinna”, VIÐ LIFUM EKKI Á FRIÐARTÍMUM, þessi staðreynd verður skýrari frá degi til dags, andstæðingar lýðræðis og vestrænnar menningar finnast um allan heim og þeir eru ekki hræddir við að ráðast gegn okkur eins og atburðir síðasta dags hafa sýnt, við megum heldur ekki vera hrædd við að ráðast gegn andstæðingum okkar, við verðum að grípa inn í atburðarásina áður en þessir menn geta skipulagt fleiri hryðjuverk!

Við erum í stríði…