Hryðjuverk í USA! Það hefur sennilega ekki farið fram hjá mönnum hryðjuverkin í Bandaríkjunum í dag þar sem tveimur farþegaflugvélum var flogið á World Trade Center og mun annar turninn vera hruninn núna þegar þessar línur eru ritaðar. Einnig mun a.m.k. einni flugvél hafa verið flogið á Pentagon auk þess sem sprenging er sögð hafa orðið á Þinghúshæðinni (Capitol Hill). Hvíta húsið, fjármálaráðuneytið, Pentagon og kauphöllin í Wall Street munu hafa verið rýmd. Engr staðfestar tölur um mannfall eru til staðar á þessari stundu en takið er að yfir 1000 manns séu særðir og a.m.k. einhverjir tugir látnir.

Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á þessu hörmulega hryðjuverki enn sem komið er en óstaðfestar fréttir herma að um sé að ræða hryðjuverk múslima og hafa samtök sem nefna sig “Frelsum Palestínu” verið nefnd til sögunnar auk þess sem menn vilja kenna handbragð öfgamannsins Osama Bin Laden á verkinu.

Meiri upplýsingar um málið koma væntanlega síðar í ljós og eru menn hvattir til að ræða þetta mál af yfirvegun.

Með kveðju,

Hjörtu
Með kveðju,