Maður spyr sig þessarar spurningar alvarlega. Írland virðist við fyrstu sýn friðsælt land með ofgnótt af náttúru og sögu. Svo rýnir maður í þetta land og horfir til norðurs. Í margar aldir háðu Írar baráttu fyrir sjálfstæði frá Bretum, á seinustu öld fengu þeir kröfum sínum framgengt, að mestu.
Eftir stofnum írsk ríkis stóð eftir angi nyrst á eyjunni sem Bretar kusu að stjórna enn um sinn. Allar götur síðan hafa götur þessa parts af Írlandi verið meira og minna þaktar blóði, blóði sekra jafnt sem saklausra sem hafa fallið í stríði milli hópa sem trúa á sama guð. Flestir geta verið sammála því að þetta stríð er viðbjóðslegt og hrein tímaskekkja í siðmenntuðu samfélagi Evrópu, þó þessi staður sé ekki einn á báti (Baskar með hryðjuverk á Spáni/Þjóðernishreinsanir í Júgóslavíu)
Fremstir hryðjuverkamanna hafa verið IRA eða Irish Republican Army, samtök sem hafa ákveðið fyrir löngu að koma Bretum í sjóinn með öllum ráðum, og gilti þá engu hve margar sprengjur og byssukúlur þyrfti til, eða líf saklausra borgara.
Þessi átök (eða stríð eins og IRA vill kalla til að réttlæta morð á saklausum mönnum konum og börnum) hafa staðið sleitulaust fram á byrjun þessarar aldar, og virðist engan enda ætla að taka.

Fréttir seinustu daga um ofríki mótmælenda gagnvart saklausum kaþólskum skólabörnum hafa fyllt mann viðbjóði. Maður spyr sjálfan sig, hvaðan kemur þetta hatur eiginlega á barni sem saklaust röltir í skólann sinn? Hvaðan kemur þetta hatur manna á millum sem hafa sama guð? (Innskot- Mótmælendur vilja einmitt ekki vera hluti af kaþólsku írlandi)
Hverskonar villimennska lýðst á meðal á Norður Írlandi þar sem fólk þarf að leita undir bílnum sínum að sprengjum áður en það fer til vinnu á morgnanna? Hverskonar villimennska lýðst í landi þar sem barn á leið til skóla þarf að lenda í svívirðingum og steinakasti bara vegna þess að það er kaþólskt???

Sjálfsagt ætti að banna trúarbrögð á þessari eyju í tilraunaskyni. Því þau virðast vera rót allra þessara vandamála.
—–