Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Reykjavík - mobilepolis (2 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Reykjavík - mobilepolis Fólkið starir á mig í gegnum rúðurnar á bílunum sem þjóta fram hjá hjá mér hársbreidd í burtu, í sexföldum röðum æða þeir fram hjá á virkilega óhugnalegum hraða sem þrýstir loftinu að mér svo hárið bærist örlítið. Tonn eftir tonn af járni á hraða sem margfaldar fallþunga þess gerir Miklubrautina algerlega ómannvæna. Enda skáskýtur þessi litlu líf augunum á mig þar sem þau ríghalda í stýrið og velta fyrir sér hvað maðurinn sé að gera við gangbrautina, hinum megin sé...

Dans á rósum (3 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 6 mánuðum
,,Jæja krakkar, ef þið þykist hafa lært sporin mega strákarnir bjóða stelpunum upp” Segir frú Þórunn. Eina frúin í skólanum, ef ekki öllu bæjarfélaginu, fimmtug barnlaus eiginkona skólastjórans vandræðalega. Væn kennslukona í íslensku sem hafði því miður fengið þá flugu í höfuðið, öllu heldur áráttu, að það væri prýðishugmynd að nauðga 14 ára börnum í danskennslu. Með stjörnur í augum og hálfdraumkenndar minningar um sín fyrstu dansspor með draumaprinsinum hafði hún talið skólastjóran á að...

Vandylja 005 (1 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Hádegismatur í maga, lagar allt sem þarf að laga Hann er loksins farinn, loksins. ÉG hef það sterklega á tilfinningunni að það sé verið að njósna um mig. Sit í rúminu teinréttur og stífur, þori ekki að hreyfa mig, kyrrðin og þögnin leggjast á mig eins og þungt farg. Eftir ég heyrði hann skella hurðinni, yfirgefa húsið og skilja mig einan eftir, hef ég ekki hreyft mig. Ég veit ekki hversu langt er síðan. Mér rennur kalt vatn milli skinns og hörunds. Var ekki eitthvað þarna fyrir utan sem...

Veröld sem var (1 álit)

í Bækur fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Veröld sem var eftir Stefan Sveijk. Það er ekki óalgengt að ef fólk er að forvitnast hvernig heimurinn var um aldamótin 1900 að því sé bent á bókina Veröld sem var eftir Stefan Sveijk enda tekst henni sérstaklega vel að grípa tíðarandann, að sýna okkar veröld sem er nú horfin, lýsa andrúmsloftinu sem ríkti og uppúr spratt tvær hryllilegustu styrjaldir allra tíma. Stefan Sveijk höfundur bókarinnar var gyðingættaður austurríkisbúi er ólst upp í Vín um þar síðustu aldarmót. Þegar flestir hugsa...

Vandylja 004 (0 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Andlega fjarstaddur Slitrur: rísandi, upp úr þægileg myrkrinu sé ég að meðvitundin þrengir að mér síhækkandi hljóð- og myndstreymi, (andlit, spurning, svar), sem dofnar síðan aftur. Aftur og aftur. Ég stend við lestarspor og lestirnar bruna ein af annarri framhjá mér. Synd að í víðreisn minni skuli ég aldrei hafa stigið fæti upp í lest. Drynjandi bjöllurnar eru nótur sem beljast eins og í einni biðu, hver á eftir annarri, smá tengdar mynda þær keðju sem dregur mig úr myrkrinu og inn í...

Vandylja 003 (0 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Að stunda nám við virðulega menntastofnun Áður en ég geng inn stansa ég andartak og lít í gegnum glerið og sé umhverfið bakvið mig speglast , hvað sem ég píri þá sé ég ekki inn. Því fyrir innan þröskuldinn endar veruleikin og einhver súrelísk útúrdópuð fantasía tekur við, dysney land, þar sem allir hafa grímur, allir keppast um að vera fyndnastir, skemmtilegastir, sætastir, töffaralegasti og þar fram eftir götunum. Allir að reyna uppfylla einhver skilyrði um uppfyllingu fáranleikans. Þar sem...

Vandylja 002 (0 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Sundsprettur hressir og kætir Það er engin í sundi klukkan sex að morgni nema ég og konan í afgreiðslunni. Það er frekar slitrótt samband milli okkar tveggja, hún hatar mig. Ég finn það svo hvernig hún ber í brjósti sér svo innilegt hatur í minn garð, hvernig svefndrukkin augu hennar sjá fyrir sér hendur sínar lykjast um hálsinn á mér og kæfa úr mér líftóruna, skítt með mannlegt eðli þegar fólk þykist vera knúið til að ónáða hana um miðja nótt. ÉG er hættur að líta á hana. Hún er svo...

Vandylja 001 (0 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Ég hef verið að skrifa helling undanfarið, svona aðeins verið að liðga pennann fyrir komandi skólaár. Ég er núna að basla við að gera framhald að Þankahríð sögunni sem ég senti inn um daginn. En í millitíðinni var ég að pæla í að senda inn sögu sem ég skrifaði fyrir löngu og var eiginlega búin að gefast upp á (búin að fá ógeð af), hún heitir Vandylja, undirtitill er Snöppuð vika. Vandylja er málblóm sem ég bjó til og þýðir Van dulið eða Vand yljað. Þessi fyrsti hluti er eiginlega svona bara...

Þankahríð 1.hluti - Vísindaskáld(smá)saga (1 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Þetta eru fyrstu 5 blaðsíðurnar. Ef þið kunnið að meta það getu vel verið að ég sendi meira. Hlutirnir fara að breytast…, ég finn það í loftinu. Það bragðast öðruvísi en áður, rétt eins og litirnir hafa breyst og gítarinn minn hljómar öðruvísi. Allt er breytingum háð sagði maðurinn. Í mínu lífi er er mitt líf gersamlega óháð breytingum og hefur verið öll þau fimmtán ár sem ég hef lifað. Sömu grænu veggirnir í herbergi mínu hafa umhverft mig síðan ég fæddist. Ég sef enn í sama rúminu og sömu...

Lygilegt- er þessi fartölva drasl? (5 álit)

í Tölvur og tækni (gamla) fyrir 21 árum, 7 mánuðum
ÉG er að fara að fá mér fartölvu núna fyrir skólann og hef því verið mikið að spá og spuglera. Ég get keypt mér tölvu fyrir allt að 250þús. en þori varla að fjárfesta þar sem ég hef svo lítið vit á þessu. Eina sem ég get einblínt á eru tölurnar, þ.e. stærð harðadisksins, minnisins, örgjörvans, skjásins o.s.frv. en ber því miður samt ekkert skynbragð á það hvort þetta sé eitthvert drasl merki. Ég tók eftir að það var nokkuð gegnum gangandi að tölvurnar í þessum verðflokki væri svipaðar þessu...

Óvenju erfið nótt (2 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Þögnin tók við síðustu tónum Bítlanna. Svo þrúgandi þögn var ekki liðin til lengdar, hljóð rigningi fyrir utan buldi á eyrum mínum. Svo dofinn. Sljór og þrútinn geng ég upp að skrifborðinu og sest. Meika samt ekki að kveikja ljósin. Sit í myrkrinu og finn sársaukan svo yfirþyrmandi að ég þoli vart meira, mér er svo ofaukið að ég get ekki lengur hugsað, sit bara sljór. Veit ekki neitt. Púlsin dynur taktfast í gagnaugum mér, sér áætlað að sprengja æðarnar svo húðin muni bresta og gusurnar...

Illa leikin héri -001 (1 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Illa leikin héri 1. hluti / Apríl endar í hreti Hún leit upp: Apríl. Feimnin hafði undirtökin í þessu föla kinnfiskasogna andlit, hún var eins og vandræðaleg fermingardama sem fær í fyrsta skiptið að vaka fram eftir með fullorðna fólkinu; svo feimin, veit ekki hvað hún á að gera. Þegar Apríl var lítil hafði ég þekkt hana fyrir lífglaðan, kátan telpuhnokka sem hreinlega dýrkaði allt sem var fallegt. Mér varð eitt sinn starsýnt á glaðlega veru er ég eitt sinn sem áður lít út um máðan gluggan...

Trópí- með aldinkjöti (1 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Hlutirnir fara að breytast…, ég finn það í loftinu. Það bragðast öðruvísi en áður, rétt eins og litirnir hafa breyst og gítarinn minn hljómar öðruvísi. Allt er breytingum háð sagði maðurinn. Í mínu lífi er er mitt líf gersamlega óháð breytingum og hefur verið öll þau fimmtán ár sem ég hef lifað. Sömu grænu veggirnir í herbergi mínu hafa umhverft mig síðan ég fæddist. Ég sef enn í sama rúminu og sömu myndirnar hanga á veggnum. En nú fer allt að breytast… andrúmsloftið er breytast, búa sig...

Reynum að skilja afhverju (1 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Ég veit fyrir víst að í dag er mikið af ungu fólki sem hefur gríðanlegan áhuga á stjórnmálum og hafa allskyns áhugaverðar hugmyndir (eins og hefur verið á öllum tímum). Mér finnst það ekki óalgengt að undirrót þess sé óánægja með þjóðfélagið í heild sinni og í framhaldi af því kemur mikill vilji til algerrar umbyltingar. Ekki er óalgengt að fólk eins og ég til dæmis spyrji sjálft sig:,, Afhverju ?, afhverju þarf þetta að vera svona?, þetta meikar ekkert sens!” Svo ég ákvað svona með sjálfum...

Biðandi (0 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Það skar í hjartað hvað þetta var fallegt. Hjálmar var nú ekki viðkvæmur maður en þetta hafði svo sannarlega áhrifa á hann. Bara þetta allt, þægilegt veðrið, rauðgul sólin, niðurinn í innsogi hafsins, gljúp fjaran, hönd Elísabetu í hendi sinni og gleðilegt suð í leikandi börnum í fjörumálinu. Hans börnum. Því hann vissi að svona augnablik yrðu fá í lífi hans, þar sem allt væri svona fullkomið. Hjálmar var yfirlýstur nihilisti og síður en svo heimskur. Mikið hafði hann pælt og lesið og hann...

Yfirgefning syndanna (1 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Herbergið var grænt. Alveg yndislega grænt. Andri fékk tár í augum. Hann var loksins kominn heim. Leiðin hafði verið löng og ströng en núna, loksins, var hann kominn heim. Hann hafði verið fjórtán ára þegar pabbi hans hafði eftirlátið honum stóra herbergið í andyrinu. Hann hafði fagnað inn í sér og verið svo innilega glaður. Þetta yrði aðeins fyrsta skrefið. Andri hafði aðeins átt sér eitt stutt líf. Líf sem staðið hafði yfir í fjórtán ár og alltaf verið hið saman, ósköp notalegt...

Sigurvegarar og lúserarnir (19 álit)

í Sagnfræði fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Í mannkynssögunni eru engir góðir eða vondir, bara sigurvegarar og taparar. eins og: Þegar Marx var að móta kenningar sínar um kommúnisma (eða sósíalisma eða whatever) var alveg á hreinu að hann var að gera þetta með góðum hug, í rauninni var áætlun hans skotheld, nema að einu leiti: hann gerði ráð fyrir því að ríkið væri auðugt og vel þróað (að vestrænum sið). Þar sem kenningar hans fengu uppreisnar æru gat ekki lent á verri stað en í hinu risastór vanþróaða bændasamfélagi Rússlands, allt...

reiður út í nágrannan og sendi því bréf í Moggan (7 álit)

í Smásögur fyrir 22 árum, 4 mánuðum
er þetta saga? ER það ekki annars skrýtið með alla landsins menn. Punktur. Jú, það er ansið skrýtið með alla landsins menn. Hugsið ykkur allt skótauið sem landinn þarf að slíta til þess að komast á fullorðinsaldur og þá, meirað segja er þetta aðeins rétt að byrja. Það loðaði við mig í þónokkurn tíma að fílósófera dálaglega, það koma dagar þeir í lífi allra sæmilega greindra manneskna að spurningar þær láta mann ekki friði, samanber: hver er tilgangurinn, hver er siðferðisleg ábyrgð mín og...

Hvað er málið með Elrond? (2 álit)

í Tolkien fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Kannist þið ekki við þessa lýsingu á Elrondi: Að hann sé sonur Jarendilis og forfeður hans hafi verið Húrin og álfamærin fra´Gondólín og Beren og lúþíen. Og að þegar Jarendill komst yfir aðskilnaðarhafið til AMans hafi hann sett Jarendli og konu og sonum þeirra tveim val hvot þau vildu verða álfar eða menn. Og bróðir Elronds hafi orðið maður (hvað hét hann aftur…?)og hann hafi stofnað númeor. En Elrond hafi valið að vera álfur. EN nýlega var ég að lesa hobbitann aftur og mér þótti það skjóta...

Andardráttur tilverunnar og "scrabul" vitleysan (20 álit)

í Heimspeki fyrir 22 árum, 5 mánuðum
ÉG hef tekið eftir því hér að það er margir ósköp hrifnir að stórahvellshugmyndinni. Sem er náttúrulega skiljanlegt því með allri þeirri tækni og hugarleikfimi sem við styðjumst við í dag er þetta það næasta sem við höfum komist um trúlega skýringu á tilurð alheimsins. En hvert er sambandið, samhengið skiljum við ekki. Það trúa allir menn á guð, leynt og ljóst. En guð er ekki til, sá fjöldi trúabragða sem fyrirfinnast eru yfirleitt aðeins sögulegt, ævintýra minni, eins og vampíran, rauðhetta...

Góði dátinn Sveijk (6 álit)

í Bækur fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Hefur engin skrifað um Góða dátan Svejk hingað til. Þetta er fyrir marg mjög merkileg bók og ein af vinsælustu sögum sem sagðar hafa verið á íslandi. Höfundur bókarinnar var tékkneskur og hét Jaroslav Hasek og gerði hann spenntum lesendum þann grikk að deyja á blaðsíðu 364 svo lengri varð sagan ekki. Þrátt fyrir það er hún ein af merkari bókum 20.aldarinnar. Hann skrifaði hana árið 1923, þegar Tékkland var nýbúnir að öðlast sjálfstæði úr fyrri heimstyjöldinni. En sagan gerist í fyrri...

Ginnungargap (9 álit)

í Heimspeki fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Tímin er ótrúlegt ginnungargap. Í eilífðini fyrirfinnst ekki rúm fyrir hugmyndir okkar, við einfaldlega höndlum eilífðina ekki, hún er alltaf úr seilingarfjarlægð. Einhverra hluta þá er New York í eyði eftir fimmhundruð ár, fornir skýjakljúfarnir standa enþá í níðurníslu eins og minnismerki um liðna tíma. Við höfum vald til að tortíma heimsmyndinni eins og við þekkjum hana, og við við notum það vald. Menning okkar riðar til falls í einhverri styjöld framtíðarinnar. En manninum er ekki útrýmt...

Dýrin í hálsaskógi (2 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Halló og velkominn í Hálsakóg. Hversu slæmt sem okkur þykir það þá eru ekki öll dýrin í skóginum vinir. Refurinn hefur ekki vanið sig á eta akarn og íkorninn heldur áfram að stríða rebba. Svona er heimurinn í dag. Og hefur alltaf verið. Í staðinn fyrir að syngja saman þá eru til menn sem leggja það í vana sinn að fljúga flugvélum á háhýsi eða ganga í Nike skóm. Hvort sem er, er mikið heimsins böl. Og í grunnskólanum mínum í dag var krakki í fimmta bekk nærri því búin að brjóta bakið á...

Hvar eru Hobbitar í heimsmyndinni??? (23 álit)

í Tolkien fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Valar? það eru nú kynlegir kvistir. Í raun eru engir valar til. Eins og ég túlkað Ænúasöngskaflann eru Valar bara hugsanir Alföðurs. Og eins magnaður og “ER hinn eini” er þá var það svo sem auðvitað að hugsanir hans myndu taka á sig mynd fyrir óæðrir. Þar ser Veröld er bara söngur úr innsta hugardýpi Persónu sem er einn í öllum alheimi þá hlýtur Veröldin að vera bar tálmynd í huga Alföðurs(kannski að Tolkien sjálfur sé “Alföður”). Melkor hins vegar var svo mikið einn á vappi að ólíkt hinum...

Tildrög alheimsins (10 álit)

í Heimspeki fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Í BIG BANG kenningunni er gert ráð fyrir því að til hafi verið ótrúlega samþjappað efni fyrir upphaf alheimsins sem mér þykir persónulega bara fáranleg hringavitleysa. Eilíft tóm er ekki til. Þess vegna hlýtur það að vera til. Hvorki ljós né myrkur. Allt á sér andstæður. Þess vegna hlýtur tilveran líka að eiga sér andstæðu. Það er næstum óbrigðult náttúrulögmál. EF svo er að einhverntíman hafi verið til svokölluð Ótilvera. Eins og hvítur kassi með hvítum hliðum að innann. Skjannhvítur. En ef...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok