Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

maggap
maggap Notandi frá fornöld 538 stig

Verður Minardi bjargað? (2 álit)

í Formúla 1 fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Frétt á vísi.is Samkvæmt frétt í Auto Motor und Sport er Dietrich Mateschitz, aðalstjórnandi Red Bull drykkjaframleiðandans, að íhuga það að kaupa Minardi-liðið. Hann vill meira að segja kaupa liðið eins og það er núna, án vélar. Fréttin segir að Mateschitz sé óánægður með að hluti Red Bull í Sauber skuli ekki fylgja atkvæði í stjórn. Hann gæti tekið up´p á því að selja sinn hlut í Sauber og nota peningana til að kaupa Minardi. Það sem helst bendir til þess er að Peter Sauber vill að hinn...

Poolarar hvers eigum við að gjalda? (8 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Jæja það var leikur í gærkvöldi. Liverpool heimsóttu Olympiakos í Aþenu. Þetta fór eins og allt of oft áður. Liverpool komust yfir í fyrri hálfleik með marki frá Barmby en Alexios Alexandridis jafnaði á 65 mínútu. Steven Gerrard skoraði svo glæsilegt mark á 67 mínútu en til að toppa þetta þá jafnaði Alexandridis eftir að venjulegum leiktíma lauk. Liverpool fóru illa með mörg færi og hefðu getað skorað mun fleiri mörk en menn eins og Smicer voru ekki í stuði og klúðruðu dauðafærum. Það er...

Spænska deildin (0 álit)

í Hugi fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Hvernig væri að skella upp stað fyrir Spænsku deildina? Það vantar alveg og jafnvel að taka líka svona keppnir eins og Meistaradeildina og jafnvel taka fyrir Evrópukeppni félagsliða. Meiri fótbolta meiri fótbolta:))))))

Leeds máttu verjast eins og óðir. (9 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Real Madrid og Leeds mættust í gær í Meistaradeildinni. Leikurinn fór fram á heimavelli Leeds. Þetta var rosalegur leikur og einkenndist að mestu leiti af sókn hjá Madrid og vörn hjá Leeds. Það var sýnt eftir miðjan fyrri hálfleik að Leeds voru 24% með boltann. Það voru færri meiddir hjá Leeds en ég bjóst við, mér sýndist bara vanta Kewell og markvörðinn þeirra. Það var ótrúlegt að ekki kæmi mark í fyrri hálfleik því Real voru í stanslausri sókn. Raul fékk mýmörg færi en náði ekki að nýta...

Leeds vs Real Madrid (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Jæja það eru rosalegir leikir í kvöld í meistaradeildinni (mér finnst reyndar vanta sér síðu fyrir það áhugamál og þá líka fyrir spænsku deildina) Allavega það verður gaman að sjá hvort gamli Liverpool gaurinn Steve McManaman verður í byrjunaliðinu í fimmta skiptið í röð. Hann skoraði sigurmark Real í síðasta leik. Figo er búinn að vera í banni en það gæti verið að hann spilaði í kvöld. Fyrir mig og mína heimalinga vil ég segja að Real á eftir að rusla Leeds svo illilega að það verður...

Gene keyrir fyrir Williams. (1 álit)

í Formúla 1 fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Á mánudaginn tilkynnti BMW Williamsliðið að Marc Gené ætti að vera tilraunaökumaður hjá þeim 2001. Gené skrifaði undir árssamning hjá liðinu. Hann er mjög ánægður með þetta og sérstaklega upp með sér yfir því að Frank Williams skuli hafa beðið hann um að koma til liðs við sig. Gené segir að þetta sé mikilvægasta skrefið sem hann hefur tekið á ferlinum, hann eigi eftir að öðlast mikla reynslu hjá þeim og þá séu meiri líkur á því að hann komist að hjá topp liði eftir uþb. tvö tímabil. “Ég held...

Nýjar höfuðstöðvar Jaguar. (5 álit)

í Formúla 1 fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Jaguar liðið sendi frá sér tilkynningu í gær þess efnis að þeir væru búnir að fá leyfi til þess að byggja nýjar höfuðstöðvar. Það á reyndar eftir að athuga hver áhrifin verða á næsta nágrenni þeirra en ef allt gengur upp hjá þeim verða þær staðsetta í nágrenni við Silverstone brautina. Niðurstöður úr umhverfismati liggja fyrir eftir 3 vikur. Jaguar eru í dag staðsettir í Milton Keynes, skammt frá London.

Alonso staðfestir áhuga Ferrari. (0 álit)

í Formúla 1 fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Fernando Alonso sem er samningsbundinn hjá Minardi næstu 5 árin, staðfesti þær fréttir sem maður hefur verið að lesa að Ferrari séu á höttunum á eftir honum. Þessi 19 ára ökumaður prófaði fyrst kart bíla þegar hann var 3 ára og var Spænskur unglingameistari frá 1993 - 1996. Hann varð einnig Evrópumeistari unglinga 1996. Hann endaði í 4 sæti í European F3000 keppninni á síðasta ári, vann eina keppni á Spa brautinni. Hann ehfur látið hafa eftir sér að hann langi auðvita til Ferrari en sé...

Mikið um meiðsli hjá Englendingum. (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Englendingar keppa vináttulandsleik við Ítali á morgun. Fimm leikmenn sem valdir voru í landsliðshóp Englendinga eru meiddir. Steven Gerrard er sá síðasti sem bættist í hóp þeirra sem eru meiddir en hann á við bakmeiðsl að stríða. Þeir eru auk hans Alan Smith, Michael Owen, Wes Brown og Paul Scholes.

Byrjunarlið Englendinga á morgun. (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Peter Taylor hefur tilkynnt byrjunarlið Englendinga. Þeir eru eftirtaldir: David James (Aston Villa), Gary Neville (Manchester United), Rio Ferdinand (West Ham), Gareth Southgate (Aston Villa), Gareth Barry (Aston Villa), Ray Parlour (Arsenal), David Beckham (Manchester United), Nicky Butt (Manchester United), Kieron Dyer (Newcastle), Emile Heskey (Liverpool), Nick Barmby (Liverpool).

Formúla í Túnis? (3 álit)

í Formúla 1 fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Í frétt sem er inn á vísi.is er sagt frá því að fulltrúar FIA hafi verið að skoða braut í Berge Du Lac í Túnis og samþykktu þeir hana. Forseti bílasambandsins í Túnis tilkynnti þetta í gær. Þeir vita þó ekki hvenær eða hvort verði af þessu. Það er frábært ef þeir ætla að fara að bæta við brautum. Það er aldrei of oft keppni í formúlu:)

Liverpool komast áfram. (7 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Í gærkvöldi mættust Slovan Liberec og Liverpool í seinni leik liðanna. Leikurinn fór fram á U Nisy Stadium sem aðeins tekur 6900 áhorfendur og voru aðeins 300 Liverpool aðdáendur mættir á völlinn. (þeir fengu ekki fleiri miða). Þetta var nokkuð skemmtilegur leikur og loksins sá maður það sem hefur vantað hjá Liverpool í nokkurn tíma. Þeir börðust og spiluðu vel þó mistök hafi orðið til þess að Slovan skoruðu fyrsta mark leiksins. Það var Stajner sem gerði það á 9 mínútu leiksins. Barmby...

Enn eru þeir að hæla Button. (3 álit)

í Formúla 1 fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Jenson Button kom verulega á óvart á síðasta tímabili og fór fram úr björtustu vonum þeirra sem studdu hann. Hann hefur verið mikið lofaður og nú síðast var það Niki Lauda, þrefaldur heimsmeistari, sem lét hafa eftir sér að Button hefði verið áhugaverðasti ökumaðurinn í ár. “Button náði athygli minni þegar hann átti besta tímann á Nurburgring brautinni á æfingu”. Lauda er þá kominn í hóp merkilegra manna sem hafa verið að hæla Button, má þar nefna menn eins og Damon Hill, Ross Brawn, Gerhard...

Coulthard með yfirlýsingar! (11 álit)

í Formúla 1 fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Í viðtali sem ég var að lesa varar David Coulthard, Michael Schumacher, við því að hann ætli að vinna sinn fyrsta titil á næsta ári. Coulthard sagði einnig að tímabilið yrði Schumacher erfitt þar sem Hakkinen stefni að því að taka sinn þriðja titil. Jurgen Hubbert hjá Benz segir að Coulthard verði studdur jafn mikið og Hakkinen á næsta ári. “Báðum ökumönnum verður gefinn jafn séns á að vinna titilinn”. Það er einnig athyglisvert í þessari grein að Coulthard segir að Scumacher verði ekki...

Pedro Diniz keyrir fyrir????? (0 álit)

í Formúla 1 fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Nokkur lið eiga enn eftir að staðfesta hver keyrir fyrir þau á næsta tímabili. Þessi lið eru Minardi, Arrows og Sauber. Talað hefur verið um að Diniz fari til Prost en svo virðist sem ekki verði af því, allavega eru umræður í biðstöðu hjá þeim. Getgátur hafa verið uppi um að finninn Kimi Raikkonen myndi taka sæti Diniz hjá Sauber en þeir eiga þó enn eftir að gefa út yfirlýsingu varðandi það. Þrátt fyrir þetta er Pedro Diniz sannfærður um að hann verði ekki skilinn eftir útí kuldanum á næsta...

Trulli í maraþoni! (2 álit)

í Formúla 1 fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Jarno Trulli tók þátt í New York maraþoninu í gær og lauk hlaupinu á rétt rúmlega fjórum tímum. Hann endaði í 10230 sæti af 30000 keppendum og síðasti keppandi hlaupsins kom í mark fjórum tímum á eftir honum. Jarno sagði fyrir keppnina að þetta væri eitthvað sem hann hefði alltaf langað til að gera. Hann sagði að hann myndi taka þátt í London maraþoninu ef það stangaðist ekki svona á við Formúluna.

Schumacher í uppskurð. (2 álit)

í Formúla 1 fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Schumacher er á leið í uppskurð til að láta fjarlægja pinna sem settur var í fótinn á honum eftir að hann fótbrotnaði í fyrra. Ferrari menn vonast að sjálfsögðu til þess að hann verði fljótur að jafna sig svo hann geti snúið aftur til æfinga. Þeir telja þó að hann komi ekki til með að keyra fyrr en í janúar 2001.

Bedazzled! (3 álit)

í Kvikmyndir fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ekkert frábær mynd kom þó svolítið á óvart. Brendan Fraser sem ekki er í uppáhaldi hjá mér var actually ekki óþolandi í myndinni, kannski af því að hann lék frekar mikinn looser. Mér fannst hann meira að segja gera það nokkuð vel. Þokkalega fyndin á köflum en annars var lítill söguþráður. Þessi mynd er bara samansett af nokkrum ágætum bröndurum. Elisabeth Hurley var nátturlega hot og flott í henni. Gaman að horfa á þessa mynd, fín afþreying, ekkert endilega nauðsynlegt að fara á hana í bíó.

American Pie 2 (6 álit)

í Kvikmyndir fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég horfði á American Pie 2 í gær. Verð að segja að hún er ekki eins góð og númer 1. Það var vel hægt að hlægja að henni og sérstaklega var fyrri hluti myndarinnar skemmtilegur en svo fannst mér þeir missa það í endanum á henni. Þessi mynd er um unglinga, mest einblínt á 3 vinkonur sem eru að reyna að ná sér í kærasta og kíta um það hver hefur oftast sofið hjá og hver er reyndust á því sviði og hvaða kærasta er við hæfi að eiga. Þær eru að fara að útskrifast úr skólanum og þurfa að taka...

Liverpool sigra Everton. (14 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Liverpool unnu Everton í gær 29/10 í spennandi nágrannaslag. Leikurinn fór 3-1 og skoruðu Nick Barmby (fyrrum leikmaður Everton), Emile Heskey og Patrik Berger mörk Liverpool en Kevin Kampbell skoraði markið fyrir Everton. Liverpool eru þá komnir í 3 sæti í deildinni með 18 stig en í efstu 2 sætunum sitja Man. United og Arsenal með 21 stig hvort. Næsti leikur Liverpool er á móti Leeds sem eru í 9 sæti deildarinnar með 14 stig en eiga 2 leiki til góða. Sá leikur er 4/11 kl. 11:30.

Dinosaurs! (9 álit)

í Kvikmyndir fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég horfði á myndina Dinosaurs á þriðjudaginn og ég verð að mæla með henni. Hún er rosaleg. Þetta er mynd til að sjá í bíó. Þetta er flottasta teiknimynd sem gerð hefur verið að mínu áliti, það er ekki hægt að bera hana saman við aðrar teiknimyndir. Hún er bæði skemmtileg og spennandi. Algjört must.

Varðandi skoðanakönunina! (1 álit)

í Teiknimyndir fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Flott að hafa svona skoðanakannanir en hey það vantar mest sleeeezie gaurinn. Það er kokkurinn á Sushi veitingastaðnum þar sem Homer borðaði “eitraða” fiskinn sem var skorinn af lærling því kokkurinn var úti í aftursæti á bíl með gellu. :)

Dagatal fyrir næsta tímabil! (4 álit)

í Formúla 1 fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Það er svo langt í næsta tímabil, allt of langt, það væri ekki leiðinlegt ef formúlan væri allan ársins hring en jæja það gerist ekki. Hérna er dagatalið fyrir næsta ár. Það hafa orðið nokkrar breytingar á röðinni. Til dæmis er keppnin í Malaysiu strax á eftir Melbourne í staðin fyrir að vera næst síðasta keppnin. Það er líka búið að færa Silverstone keppnina þannig að hún er ekki fyrr en í júlí í staðinn fyrir að vera í byrjun tímabils (það var fjórða keppnin á þessu síðasta tímabili). Jæja...

Jenson Button til Benetton. (6 álit)

í Formúla 1 fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Jenson Button hefur komið rosalega á óvart á þessu fyrsta tímabili sínu í Formúlunni og sjálfsagt gert mun betur en Sir Frank Williams átti von á í upphafi. Það var ákveðið þegar Button skrifaði undir hjá Williams að hann yrði lánaður til Benetton eftir þetta tímabil. Hann segist hlakka til þess að fara þó það sé talað um að Flavio Briatore sé erfiður boss. Hann segir að það verði erfitt að kveðja alla í Williams liðinu. Button hefur lært gífurlega mikið hjá þeim. Hann er viss um að eftir...

Hvaða þættir standa uppúr! (33 álit)

í Teiknimyndir fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Um daginn var 10 ára afmæli Simpson fjölskyldunnar og var af því tilefni rosaleg Simpsons helgi á Sky1. Þar var tekið viðtal við fólk sem sagðist vera Simpson fans og þeir meðal annars spurðir hvaða þáttur þeim þætti skemmtilegastur. Þvílík snilld og það kom fullt af þáttum sem maður var búin að gleyma. Mig langar að nefna einn. Það er þátturinn þar sem Bart fer til blinda kallsins (eða hann var með gláku) og reynir að vinna Santa´s little helper til baka. Í endanum á þættinum koma Wiggum og...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok