Jaguar liðið sendi frá sér tilkynningu í gær þess efnis að þeir væru búnir að fá leyfi til þess að byggja nýjar höfuðstöðvar. Það á reyndar eftir að athuga hver áhrifin verða á næsta nágrenni þeirra en ef allt gengur upp hjá þeim verða þær staðsetta í nágrenni við Silverstone brautina. Niðurstöður úr umhverfismati liggja fyrir eftir 3 vikur. Jaguar eru í dag staðsettir í Milton Keynes, skammt frá London.