Jæja það var leikur í gærkvöldi. Liverpool heimsóttu Olympiakos í Aþenu. Þetta fór eins og allt of oft áður. Liverpool komust yfir í fyrri hálfleik með marki frá Barmby en Alexios Alexandridis jafnaði á 65 mínútu. Steven Gerrard skoraði svo glæsilegt mark á 67 mínútu en til að toppa þetta þá jafnaði Alexandridis eftir að venjulegum leiktíma lauk. Liverpool fóru illa með mörg færi og hefðu getað skorað mun fleiri mörk en menn eins og Smicer voru ekki í stuði og klúðruðu dauðafærum. Það er ótrúlegt hvað þetta gerist oft að Liverpool sé yfir meirihluta leiks og tapi síðan eða geri jafntefli, dýrmæt stig farin í vaskinn.