Jæja það eru rosalegir leikir í kvöld í meistaradeildinni (mér finnst reyndar vanta sér síðu fyrir það áhugamál og þá líka fyrir spænsku deildina) Allavega það verður gaman að sjá hvort gamli Liverpool gaurinn Steve McManaman verður í byrjunaliðinu í fimmta skiptið í röð. Hann skoraði sigurmark Real í síðasta leik. Figo er búinn að vera í banni en það gæti verið að hann spilaði í kvöld. Fyrir mig og mína heimalinga vil ég segja að Real á eftir að rusla Leeds svo illilega að það verður sögulegt :)) hehehehe
Leeds er í miklum vandræðum vegna meiðsla innan liðsins. Harry Kewell er meiddur og von á honum til baka eftir 3 vikur. Einn ljós punktur hjá Leeds er að Woodgate kemur til með að leika í kvöld eftir að hafa verið frá síðan í leiknum á móti Liverpool.