Schumacher er á leið í uppskurð til að láta fjarlægja pinna sem settur var í fótinn á honum eftir að hann fótbrotnaði í fyrra.
Ferrari menn vonast að sjálfsögðu til þess að hann verði fljótur að jafna sig svo hann geti snúið aftur til æfinga. Þeir telja þó að hann komi ekki til með að keyra fyrr en í janúar 2001.