Englendingar keppa vináttulandsleik við Ítali á morgun. Fimm leikmenn sem valdir voru í landsliðshóp Englendinga eru meiddir. Steven Gerrard er sá síðasti sem bættist í hóp þeirra sem eru meiddir en hann á við bakmeiðsl að stríða. Þeir eru auk hans Alan Smith, Michael Owen, Wes Brown og Paul Scholes.