Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

idf
idf Notandi frá fornöld 1.696 stig

Eigum við að vorkenna konum ? (19 álit)

í Deiglan fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Mér dettur þetta í hug vegna ýmissa umræðna þessa dagana, ekki síst vegna e.h. átaksverkefna kvenréttindahópa og annars. Það eru launa málin og það eru líka kynferðis/klám málin. Við eigum að vorkenna þeim vegna launamismunarins og um daginn voru þær hvattar til að fara til yfirmanns síns og biðja um launahækkun, samkvæmt “vinstrireglunni” fyrirtækið hlítur alltaf að geta borgað meira. Jón forstjóri Össurar var sá eini sem svaraði af sannfæringur en ekki “pólitísku línunni” þegar hann...

Hugleiðingar um Fyrri heimsstyrjöldina (36 álit)

í Sagnfræði fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Flestir hér hafa mestan áhuga á Seinna Stríði en mér finnst allt svo margtuggið um það að hálfa væri nóg og hef því meira pælt í því Fyrra. Ég var að horfa á þátt um það á History Channel og alltaf lærir maður eitthvað nýtt. T.d. vissi ég ekki að þýskir skemmdarverkamenn eyðulögðu mjög stóra skotfæra/sprengiefnageymslu á Black Tom eyju við New York borg 1916. Þetta voru 6 mánaða framleiðsla sem átti að fara til Rússlands og voru lætin slík að rúður brotnuðu í NYC og Frelsistyttan varð fyrir...

Milano (8 álit)

í Ferðalög fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Ég skrapp til Milano í viku um daginn og það var bara mjög gaman enda bjó ég hjá fólki sem býr þar og þekkir borgina og fékk bara gott sumarveður á okkar mælikvarða. Milano er engin sérstök túristaborg, þó hún hafi kastala og sórkostlega Dómkirkju, heldur ein aðal iðnaðarborg Ítalíu og þá sérstaklega tengt tískuiðnaðinum. Það er frekar mikil mengun þarna og ég hef aldrei séð annað eins graffíti og krot um allt eins og þarna, verra en í gettóum BNA held ég. Annað sem vekur athygli er fjöldi...

"Raunveruleika" sjónvarpsþættir. (8 álit)

í Deiglan fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Var að rúlla gegnum gervihnattastöðvarnar og tók eftir enn einum af þessum svokölluðu raunveruleika sjónvarpsþáttum. Í þessum er fundinn einhver myndarlegur byggingarverkamaður, settur í Franskan kastala og svo er náð í 20 gellur til að keppa um, eða láta hann velja úr. Þvi er svo logið að þeim að hann sé nýorðinn milli ! Þessi gaur veit lítið í sinn haus (nema kannksi að reyna við e.h bargellur í smábænum sýnum) og það þarf að kenna honum með hverjum mat eigi að drekka rautt eða hvitt vín....

Við steininn á Skólavörðustígnum (18 álit)

í Rómantík fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Mig langar að segja ykkur frá einni af minni rómantískari minningum og um leið töpuðu tækifæri nema kraftaverk gerist. Það var köld maínótt 1999 þegar ég og vinarfólk var á heimleið af djamminu að við hittum hóp af rúmlega tvítugum stelpum fyrir framan gráa steinhúsið neðst á Skólavörðustígnum, þar stendur einmitt steinn eins og minnismerki fyrir framan. Við fórum eitthvað að spjalla við þær en ég hallaði mér að steininum og tók sérstaklega eftir einni sem mér fannnst sérlega heillandi, en...

Íslensk ungmenni vilja út ! (72 álit)

í Deiglan fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Nýrri könnun sem sýnir að ungir Íslendingar vilja út er nú slegið upp, og það er eins og þetta sé eitthvað nýtt og sjokkerandi. Þeir sem eru sjokkeraðir eru örugglega af þeim óþolandi hópi sem þarf alltaf (oft í glasi) að vera að telja upp við hvað Íslendingar séu rosalega framarlega á öllum sviðum. Er eitthvað nýtt í þessu ? Nei, Íslendigar hafa alltaf sótt út þegar þeir gátu alveg frá því þeir numu land, ætli við séum ekki með þetta í blóðinu. T.d. Fór pabbi í nám og vinnu í BAN í stríðinu...

Áróður næringarfræðinga gegn Atkins kúrnum (14 álit)

í Heilsa fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Af hverju eru svona margir næringarfræðingar á móti “kolvetnisniðurskurðarkúrum” eins og Atkins ? Þeir eru alltaf með þessa tuggu sem maður er orðinn leiður á; “Borða bara venjulegan mat og hreyfa sig”, það virðist ekki vera að virka þar sem Íslendingar eru að verða offitusjúklingar upp til hópa. Og hvað er svo “venjulegur matur” í dag ? Miðað við umfang pizzubransans og annars skyndifæðis er það nákvæmlega að verða þessi venulegi matur ekki soðin ýsa með kartöflum eins og þetta staðnaða...

Af hverju get ég ekki hætt að hugsa um hana ? (27 álit)

í Rómantík fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Hafið þið lent í að verða hrifin af persónu sem þið vitið að er ekki rétt fyrir ykkur, viljið hætta að hugsa um en getið ekki ? 'Eg er í þessu ástandi núna og líður ekki vel. Í vetur varð ég skotinn í stelpu í vinnuni, fyrst bara kynfeðilegur áhugi svo magnaðist þetta og maður farinn að láta sig dreyma of mikið. Skynsemin var látin lönd og leið en samt lét ég hana ekki vita neitt beint, en stundum fannst mér hún vera að gefa mér merki. En svo akkúrat þegar ég reyni að sýna henni meiri áhuga...

Mikilvægi fisks og Omega 3 í fæðu (2 álit)

í Heilsa fyrir 20 árum, 9 mánuðum
'Eg var einn af þessum krökkum sem vildi ekki borða fiskinn sem mamma eldaði en borðaði bara kartöflurna, núna sakna ég steikta fiskins hennar. Það hefur loðað við Íslendinga að vera ekki hrifnir af fiski og ég held að þetta sé hreinlega að verða vandamál að krakkarnir vilji bara pizzur, pylsur og hamborgara, hlaðna fitu og kolvetnum. Ég nú síðari árin farinn að borða miklu meira af fiski, en því miður kannksi ekki nóg af ferskum Íslenskum, heldur allskonar fiski úr dós eins og; Túnfisk,...

US Army er ekki það sem hann var (12 álit)

í Deiglan fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Nú er talað um að Kanarnir séu komnir í nýtt Víetnam í Írak, hermenn þeirra eru felldir nær daglega og mannfallið er orðið meira en í Persaflóastríðunu(fyrra?), og komið kurr í bæði hermenn og þá sem heima sitja. Ég hvað að horfa á viðtal við BNA hermann í sjónvarpinu um daginn og reyna að skilja mannin sem varla kunni ensku, átti líklega spænsku að móðurmáli. Spönskumælandi(Hispanics) eru að verða stór hluti liðsmanna BNA hersins í takti við fjölgun þeirra í BNA og þau tækifæri sem herinn...

Vilja konur Testesterón ? (4 álit)

í Deiglan fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Ég segi svona því að ég held því fram að þetta karlhormón sé ábyrgt fyrir ýmsum slæmum en stundum góðum eignileikum karlkynsins og þar á meðal ýmsum uppgötvunum og framförum. Þetta kom víst fram í rannsóknum nýlega sem sýndu fram á að “uppgötvunarkraftur” vísindamanna dofnaði með minnkandi testesteronmagni eftir að þeir voru komnir í sambúð, en það er víst eitt af þvi sem gerist oft þegar karlmenn komast í sambúð, sbr. vaxandi ýstra ofl. Testesterónið er örugglega ábyrgt fyrir að ungir menn...

Er Ríkissaksóknari Herstöðvarandstæðingur ? (20 álit)

í Deiglan fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Mér datt þetta svona í hug vegna undarlega harðrar afstöðu hans í máli hermannsins sem var handtekinn vegna Hafnarstrætismálsins, þar sem hann brýtur þá hefð að Kanarnir fái að refsa sýnum mönnum sjálfir. Hann er búinn að koma af stað milliríkjadeilu á versta tíma í samskiptum þjóðanna. Maður veit ekki hvort maður á að hlægja eða gráta yfir vandræðagangi rikisstjórnarinna í samskiptunum við Bandaríkin, hver höndinn upp á móti annari um það hver eigi að ráða þessu, en sam komi þetta ekkert...

Miðjarðarhafs "kúrinn" (6 álit)

í Heilsa fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Kanarnir með sín offituvandamál eru alltaf að leyta að “the magic bullet” eða töfralausn til að leysa sín vandamál, og nú eru það mataræði þjóðanna við Miðjarðarhaf undir smásjánni. Þar sem við Íslendingar erum að fylgja í kjölfar BNA manna í offituvandamálunum ættum við að skoða þetta líka. Það vekur athygli að þó að Spánverjar og Grikkir reyki mikið þá eru dauðsföll vegna hjartasjúkdóma mun færri en í BNA og N-Evrópu og offituvandamál mun minni. Þetta er rakið til hefðbundins mataræðis, en...

Enn og aftur um aldursmun para (64 álit)

í Rómantík fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Hvað er of mikill munur ? 12,14,17 eða 25 eins og milli Paul McCartney og óléttu kærustunnar hans, eða eru þau gift? Milli Mömmu og Pabba eru 12 ár og hefur sumum þótt mikið en nú finnst mér það ekki, enda sjálfur að spá í stelpu sem sem er 14 árum yngri en ég, en þess ber að geta að ég er að nálgast fertugt. Mér finnst það heldur ekki mikið miðað við eina gamla skólasystur sem náði sér í einn 17 árum eldri sem átti börn lítið yngri en hún, og þetta var flott stelpa. Ég held að það sé ekkert...

Varnarmál-atvinnumál Íslands í krísu. (24 álit)

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Gerir fólk sér allmennt grein fyrir hvað alvarlegt ástand blasir við varðandi hugsanlegan brottflutning flughers BNA frá Keflavík ? Það myndu líklega fleiri missa vinnuna en munu koma til með að vinna við álverið í Reyðarfirði og að auki myndi björgunarsveit flughersins fara og e.h. hundruð milljónir við viðhald Keflavíkurflugvallar leggjast á Íslendinga. Ég er hræddur um að Halldór verið að fara að herða sultarólina í Utanríkisráðneytinu og endurskoða veislusalina í sendiráðum Íslands og...

Forsetagifting (34 álit)

í Deiglan fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Hvað finnst fólki um af Forsetinn sé búinn að festa ráð sitt ? Margir eflaust orðið fyrir vonbrigðum með að skyldi ekki vera haldið e.h. “grand” brúðaup, t.d. hin óþolandi sjálfumglaða Eva með brúðkaupsþáttin Já, sem enn segist vera að bíða eftir að Ólafur og Dorrit hafi samband. En annars var tilfinningalega “svigrúmið” þeirra orðið ansi slitið eftir 3 ár og bara gott að þau létu verða af þessu, þetta var orðið til skammar þegar þau hittu t.d. Evrópsku hirðirnar. En þetta var örugglega allt...

Fyrstu 3 (3 álit)

í Söngvakeppnir fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Ég var að horfa á þessi fyrstu 3 lög og þó að Birgitta hafi borið af þá finnst mér eitthvað vanta þar, vonandi að hún sé betri live. Í sumum skotunum er hún virilega sæt(sem hún er) en í sumum nærmyndunum er förðunin ekki að gera gott, og finnst mér að hún mætti minnka aðeins “sveitaballastílinn” vera aðeins fágaðri. En hvað er í gangi með Austurríki ?, eitthvað lókal joke eða ætli þetta sé svona cool þarna, aumingja fólkið. Þetta frá Írlandi var svona dæmigert frá þeim, finnst strax að...

Ást mín verður kvöl... (7 álit)

í Rómantík fyrir 20 árum, 12 mánuðum
Ég er að uppgötva að ég á í miklum vandræðum með að höndla ástina, í enn eitt skiptið held ég að ég sé ástfanginn en það er að breytast í kvalarfullt sálarstríð. Ég hef litla reynslu af samböndum en hef þó kynnst mörgum konum, ekki sýst útlenskum, sem ég virðist eiga auðveldara með að umgangast en íslenskar, einvherjir komplexar þar á ferð. Það hefur nú gerst fyrir mig í nokkur skipti yfir nokkur ár að ég hef orðið mjög hrifinn af stelpum (yfir tvítugt), byrjar bara þægilega með léttu...

Íslenskar fegurðarsamkeppnir ? (30 álit)

í Tíska & útlit fyrir 21 árum
Ég er búinn að vera að sjá umfjöllun um tilvonandi fegurðarsamkeppnir, bæði Reykjavíkur og Ungfrú Ísland. Það sem vakti athygli mína eru “útlendu” stelpurnar í báðum hópum, allavega var þannig talað um hina Rússnesku Svetlönu og aðra Pólska í Ungfrú Ísland hópnum. Í Ungfrú Reykjavík hópnum eru nokkrar Íslenskar, en dökkar á hörund, sem heita nöfnum eins og; Kalla Lóa Pizarro, Miriam Sif Vahabzedehl og Tinna Alaviz. Nú er ég ekkert á móti þessum gullfallegu stelpum (þessar dökku reyndar í...

Breytt staða í Mið-Austurlöndum (54 álit)

í Deiglan fyrir 21 árum
Enn og aftur hafa Arabar valdið sjálfum sér vonbrigðum með falli Saddams Hussein. Hvað varð um þessa rosalega blóðugu lokaorustu þar sem hinir hugdjörfu hermenn Múhameðs stráfelldu innrásarmennina ? Nei, eins og oft áður eru Arabar stórfenglegastir í orðskrúði og yfirlýsingum, en verður lítið úr verki þegar til alvörunar kemur, sem betur fer í þessu tilviki. Það hefur ýmislegt unnist í baráttuni við hryðjuverk við fall Saddams þó engin finnist gereyðingarvopnin enn. Líklega þorir enginn...

Fermingar, bara fyrir stelpur ? (19 álit)

í Börnin okkar fyrir 21 árum, 1 mánuði
Ég hef verið að skoða fermingarauglýsingar undanfarið og er orðinn mjög undrandi á markaðssetningunni. það er greinilegt að að stelpurnar eru aðalmarkhópurinn því varla er strák að sjá í þessum auglýsingum. Ég vek athygli á auglýsingu Smáralindar í Fréttablaðinu um síðustu helgi. Þar er fjöldi mynda af stelpum sem virðast vera að skemmta sér og nóg af “létt kynferðislegum” skýrskotunum (eða finnst mér það bara af því að ég er karlkyns ?)Af rúmlega fimmtíu myndum í auglýsingunni er kannski...

Arabar brenna Íslenska fánann í Kaupmannahöfn (163 álit)

í Deiglan fyrir 21 árum, 1 mánuði
Það hafa eflaust margir rekið upp stór augu við að horfa á fréttir Sjónvarpsins af arabiskum “friðarsinnum” að brenna Íslenska fánann með þeim Bandaríska og Ísraelska (Breski virðist hafa slopppið), en hvers vegna ? Er Ísland orðið eitt hataðasta landið í múslímaheiminum ? Varla. Mín tilgáta er að þeir hafa séð landið á lista yfir stuðningsríki BNA, en svo er táknið á fánanum hin aðalástæðan, KROSSIN sem er hataður í múslímaheiminum og er t.d. bannaður í Saudi Arabiu. Þeir hafa eflaust...

Eru Ingibjörg Sólrún búin að klúðra málunum ? (23 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Mér virðist að þrátt fyrir minnkandi stuðning við Framsókn og Sjálfstæðisflokk sé það Samfylkingin sem er í vandræðum þrátt fyrir mikla fylgisaukningu. Samkomulagið í ríkisstjórn virðist ágætt og átakalaust þrátt fyrir smá áherslumun og Dóri og Dabbi láti hvern annan í friði með sín mál. Þeir hafa enn meirihluta samkvæmt skoðanakönnunum og ekkert sem bendir til að þeir gætu ekki haldið áfram að stjórna, þó Framsókn verði líklega minni, en Davíð væri þó líklegur til að leyfa þeim að halda...

Hroki Frakka (103 álit)

í Deiglan fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Í forystugrein Moggans í dag er fjallað um reiðiskast Chiracs gegn nýju NATO og tilvonandi ESB þjóðum, þar sem hann sagði þeim nánast að fylgja “flokkslínunni” ella hafa verr af. Þetta lítur sérstaklega illa út fyrir frakka í ljósi ummæla þeirra um einstreingingslega utanríkispólitík BNA. En þetta er ekkert nýtt, frakkar hafa alltaf talið sig geta sett sig skör hærra en annara, þurfa ekki að taka tillit til þeirra, einfaldlega af því að þeir eru frakkar. Þetta mikilmennskubrjálæði þeirra...

Innrás Bandaríkjahers í Rússland 1918 (18 álit)

í Sagnfræði fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Það eru ekki allir sem vita að Bandaríkjamenn ástamt bandamönnum sínum Bretum og frökkum gerðu innrás í Rússland eftir fall Tzarsins og Boshevikar fóru að breiða út byltinguna. Þetta var aðallega gert til að verja miklar hernaðarbyrgðir sem voru ætlaðar Rússum í baráttuni við Þjóðverja, en Bolshevikar sömdu frið við þá 1918 og vildu bandamenn ekki að menn Leníns næðu þessum birgðum. Þess ber að geta að þetta var sérlega mikilvægt þar sem ekki var útséð hverjir myndu vinna Bolsar eða...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok