Hvað er of mikill munur ? 12,14,17 eða 25 eins og milli Paul McCartney og óléttu kærustunnar hans, eða eru þau gift?

Milli Mömmu og Pabba eru 12 ár og hefur sumum þótt mikið en nú finnst mér það ekki, enda sjálfur að spá í stelpu sem sem er 14 árum yngri en ég, en þess ber að geta að ég er að nálgast fertugt. Mér finnst það heldur ekki mikið miðað við eina gamla skólasystur sem náði sér í einn 17 árum eldri sem átti börn lítið yngri en hún, og þetta var flott stelpa.

Ég held að það sé ekkert öðruvísi hjá okkur en hjá öðrum dýrategundum að kvendýrin laðist að (forystu?) þroskaðri karldýrunum meðan þau aftur á móti sækist eftir ungum og “ferskum” kvendýrum til að koma genunum áfram. Konum er líka tíðrætt um þann þroskamun kynjanna sem geri það að þær yngir hafi lítinn áhuga á jafnöldrum sýnum.

Það er líka mikil hræsni í því hvernig er litið á þetta eftir því hver það er. Michael Douglas og McCartney ná sér í 25 árum yngri konur og allir óska þeim til hamingju og þykja bara flottir gæjar, er það af því að það þykir sjálfsagt að ríkir gaurar ná í miklu yngir konur ? En ef Jóa sixpack við hliðina tekst það, þá er frekar talað eins og um perraskap sé að ræða.

Og að lokum, er ekki alltaf verið að tala um að vera ekki að telja árin, heldur lifa eins og manni líði ? Af hverju er fólk þá svo upptekið við að telja aldursárin þegar kemur að þessu ?