Veistu ég get sagt sem manneskja sem vinnur í afgreiðslustarfi, að það á ekki að skipta máli ef þú vinnur við að afgreiða fólk hvort þú sért í vondu skapi eða góðu, hvort amma þín dó eða hvort þú ert að fara að gifta þig, það á ALLTAF að vera kurteis við kúnnann og jafnvel brosa líka. Það getur verið erfitt þegar maður er í vondu skapi eða þreyttur en þetta er það sem manni er borgað fyrir að gera. Já og eins buxur eru ekki eitthvað fáránlegt, ímyndin skiptir miklu máli.