Góðan daginn.

Ég ætla að segja ykkur frá sumrinu mínu, í ástarmálum.

Í maí var ég með strák. Hann var mjög góður við mig og fínn náungi, en þegar við vorum búin að vera saman í mánuð þá langaði mig ekki að hitta hann, og þar sem hann átti heima í öðrum bæ var það stundum ekkert mál að forðast hann.
En vandamálið var það að þegar hann var hjá mér og við vorum úti með vinum mínum þá fór ég oft að gráta að ástæðulausu og mér leið illa með honum.
Svo gat ég þetta ekki meira, ég var að verða þunglynd og lokaði mig inní herbergi allan daginn og grét og grét.
Ég ákvað að hætta með honum. En það fór alveg hrikalega í hann og hann varð brjálaður, og særður. Hann grét og ég grét. Honum þótti miklu vænna um mig heldur en mér honum, mér þótti reyndar ekkert vænt um hann innst inni, þótt að þetta sé illa sagt þá var mér eiginlega alveg sama um hann… Svona innst inni.

Nokkrum dögum eftir að við hættum saman byrjaði þessi strákur að reyna við mig. Og þar sem að ég var ekkert í ástarsorg eða neitt þá tók ég því bara vel og ég vissi vel að þessi gaur væri ekki gaur til að vera í sambandi við. Þannig að við höfðum gaman og svo fór hann bara og við höfum hisst 2 eftir það og bara mjög góðir vinir, mun ekkert vera neitt meira en ,,one night stand“ og vinir eftir á.
Og vandamálið tengt því var það að gaurinn sem ég var nýhætt með hafði sagt við vin okkar að ef ég myndi vera með einhverjum strák myndi hann alveg brjálast og hótaði öllu illu. Ég hef náð að halda öllu sem kemur hérna á eftir frá honum, vona allavega að mér hafi tekist það.

Svo varð ég mjög hrifin af einum strák sem er mjög góður vinur minn. Ég hef oft verið hrifin af honum, og eiginlega alltaf verið hrifin af honum en bara aldrei gert neitt í því vegna þess að það hefur alltaf verið einhver annar, svo er þetta ekki strákur sem mig langar eitthvað að vera með.
Nema vandamálið var þá að hann var að reyna við bestu vinkonu mína. Ég auðvitað bara horfði fram hjá því og leitaði mér að öðrum.. Nennti ekki að standa í neinu veseni. Svo hann er núna í dag bara vinur minn og ekkert meir, og hann veit það alveg. Þótt að ég hafi kyssti hann nokkrum sinnum bara alveg óvart……..

Svo fann ég þennan gaur. Við vorum alltaf saman á kvöldin og ég elskaði að umgangast hann. Vorum alltaf á rúntinum saman og ég hafði áhuga á honum og komst síðan seinna meir að hann hafði líka áhuga á mér. Ég bara þorði ekki að gera neitt vegna þess að frændi hans, sem var líka alltaf með okkur á rúntinum og svona, hafði víst geðveikan áhuga á mér og var að reyna við mig.
Ég vissi ekki í hvora löppina ég ætti að stíga og svo endaði það þannig að ég kyssti þá báða sama kvöld. Var reyndar frekar full og þeir líka, en leið ógeðslega illa út af því.
Ég hélt samt áfram að umgangast þá áfram.
Svo komst ég að því að strákurinn sem ég var svo hrifin af hafði kysst (þá er ég ekki að tala um einhvern koss á kinnina) eina af mjög góðum vinkonum mínum, og 2 aðrar stelpur sem ég þekkti líka.. Gæti verði að þær hafi verið fleiri en ég veit bara um þessar 3.
Ég varð auðvitað mjög sár, en hefði kannski ekki átt að vera eins sár og ég var því að reyndar hafði ég gert næstum því það sama.

Þessi vinkona mín gisti svo heima hjá honum og þá varð ég alveg brjáluð. Ég kyssti frænda hans aftur, og oft og það fyrir framan strákinn vegna þess að ég var svo fúl við hann.
Svo endaði það með því að strákurinn sem ég notaði í svona ,,one night stand” eftir að ég hætti með fyrsta gaurnum reyndi við mig og við vorum eitthvað og frændinn sá það.
Síðan þá hef ég ekki talað við þennan frænda.
Svo fór ég í burtu í 2 vikur og ég ákvað að segja stráknum að ég væri ógeðslega hrifin af honum og ef hann væri til í eitthvað sambandi, yrði það bara frábært.
En hann sagðist ekki vilja samband.
Ég varð ógeðslega sár en ákvað að halda áfram með líf mitt og láta eins og ekkert hafi gerst.

En það var auðvitað ógeðslega erfitt vegna þess að ég var svo hrifin af stráknum.
Svo til að gera þetta aðeins flóknara var annar vinur minn sem ég umgengdist mikið þvílíkt ástfanginn af mér og ég komst að því í endann á sumrinu, þegar ég var í sárum út af stráknum….. Sem ég var farin að elska.
Strákurinn sem var ástfanginn af mér var búinn að vera það allt sumarið og ég vorkenni honum að hafa þurfti að horfa á mig fara á milli 4 stráka.
En málið var það að ég hafði bara engann áhuga á honum, nema vin.

Svo þegar ég fór að umgangast hann meira þá varð besti vinur hans hrifinn af mér, og málið var að hann reyndi við mig og ég varð hrifin af honum. Á meðan þetta gerðist þá var ég ennþá mjög hrifin af stráknum sem vildi ekkert samband.
Hjólið fór að snúast með besta vininum og við erum búin að vera saman í einhverjar vikur..
Strákurinn sem var svona ógeðslega hrifinn af mér talar varla við okkur bæði í dag, og mér finnst það mjög leiðinlegt. Kærasti minn missti besta vins sinn, fórnaði honum fyrir mig, og ég missti góðann vin minn. Ég vildi samt áfram vera vinkona hans og reyndi það en hann lokar alltaf á mig, sem mér finnst mjög leiðinlegt.
Vinkona mín og strákurinn sem ég var svo hrifin af eru saman og eru búin að vera saman síðan hún gisti hjá honum.. Nema bara í leyni og ég komst að því um daginn að ég er ennþá mjög hrifin af honum.. Og ég elska hann.
Ég veit ekki neitt hvað ég á að gera, ég er ekki að fara hætta með gaurnum sem ég er með núna því að mér líður vel með honum og treysti honum alveg fullkomlega. En ég er bara svo hrifin af hinum og veit að ekkert mun gerast með honum því ég er með hinum og vil ekki að það komi eitthvað upp á milli okkur vinkonana…..

Mér þykir mjög sárt að sjá þau saman og ég afber það ekki, en ég verð að gera það. Ég get ekkert gert að því, vegna þess að við erum vinkonur, og þeir eru vinir, frekar góðir vinir.
Mér líður mjög illa í návist hans vegna þess að ég elska hann eiginlega………
Strákurinn sem ég var fyrst með veit um mig og strákinn sem ég er með núna, og hann sagði við mig að hann væri ekki sáttur við það. Já við tölum enn saman, annað en um næstum alla strákana.

Ohh ég bara varð að deila þessu með ykkur, er ekkert endilega að biðja um hjálp, en það væri auðvitað frábært að fá hjálp.
En ekkert skítkast um að ég sé drusla eða eitthvað.. Þetta eru nú næstum 7 mánuðir sem ég var að deila með ykkur.
Og í lokin, takk fyrir tíma ykkar.

—sprang—