Baldur's Gate: Sarevok Fyrir nokkru síðan ákvað ég að spila gamla góða Baldur's Gate seríuna aftur yfir, var farinn að langa til að spila einhvern CRPG leik og varð þessi þá fyrir valinu

Ég spilaði leikinn í gegn og fannst mér hann skemmtilegri en nokkurn tímann áður, sérstaklega eftir að maður kom inn í Baldur's Gate. Og fyrir ykkur sem hafið gefist upp áður en að komast þangað(þekki þó nokkuð af því fólki), hef ég þetta að segja: leikurinn er varla byrjaður fyrr en maður er kominn inn í Baldur's Gate. Þar byrjar maður að finna góð item, fá mikið XP fyrir hvern kall og ekkert nema skemmtileg sidequest.

En jájá, nóg um það. Eins og ég sagði spilaði ég leikinn alveg í gegn og var ég að klára hann fyrir stuttu síðan. En ég hafði soldið að setja út á hann Sarevok í endann, ég var ekki alveg að fá það sem ég vildi þar.

Þegar ég kom í endann og barðist við hann Sarevok fannst mér hann sjúklega léttur. Ég var kominn fyrir utan Temple Of Bhaal(The Elder City / Síðasti staðurinn) og var á leiðinni að resta, save-a og undirbúa mig fyrir bardagann við hinn máttuga Sarevok ;-) (Var með Bless, Chant og Haste castað á allt partyið nú þegar frá bardaganum við partyið sem var einnig þarna). Einhvern veginn langaði mig til að tjékka hvernig staðurinn væri inni í kirkjunni sem ég er ekki með það gott minni að muna það frá því ég hafði spilað leikinn fyrir mörgum árum síðast.

Ég ákvað að kíkja inn, tjékka á köllunum, hvaða göldrum þeir cöstuðu og fl. En síðan rétt eftir að ég kom inn, labba ég eftir gólfinu, og kem brátt að Sarevok. Eftir að ég hafði spjallað aðeins við hann ákvað ég að prófa að gera árás á hann og sjá hvort það myndi eitthvað heppnast(Ég gerði ráð fyrir að hann væri immune fyrir miklu og mikið af resistance-um, semsagt erfiður). Ég prófaði að gera árás(Lét alla fara beint í Sarevok) og getiði hvað! Ég slátraði kallinum á innan við 10 sekúndum. Þetta fannst mér frekar ótrúlegt.

Partyið mitt var Ég(Human male fighter), Minsc, Branwen, Xan, Imoen og Kivan.

Hérna er smá overview af hlutum sem ég var með, þetta eru engir súperhlutir, bara ósköp venjulegir.
Ég = Full plate mail, Helm of Balduran, BS+1+3 vs. shapeshifters, Large shield +1+4 vs. missiles. 25% magic&fire resistance.

Minsc = Plate mail +1, Gauntlets of Dexterity, Spider's Bane(TH Sword +2) 25% Fire resistance

Branwen = Engin sérstök item, plate mail, Large shield +1, War Hammer +2.

Xan = MR of Electrical resistance, ring of wizardry og auðvitað Moonblade.

Imoen = Studded leather +1, Eagle bow(Arrows +2)

Kivan = Ankheg plate mail, Long Bow Of Markmanship(Arrows of Biting), Bracers of archery (–BTW, mæli sterklega með þessum character með þessi item nkv.(bogann, bracerin og einhverjar góðar örvar)

Ég gæti trúað að Imoen og Kivan hafi gert meiri háttar damage á hann, með bogunum sínum. En samt varð ég hissa.

Ég vil endilega fá að vita hvort að ykkur hinum fannst hann erfiður eða léttur. En erfiðleikastigið hjá mér var í normal, þ.e.a.s. venjulega AD&D reglur. Þetta olli mér smá vonbrigðum um endabardagann.

Segið endilega frá hvernig bardagi ykkar gekk við hann :)


Steinþó