Frank Sedoc, umboðsmaður Kanu, hefur greint Arsene Wenger og forráðamönnum Arsenal frá því að Kanu muni yfirgefa félagið ef hann spili ekki gegn Lyon í Meistaradeildinni í kvöld. Sedoc bað um viðræður við Wenger um helgina eftir að Kanu fékk ekkert að spila gegn Chelsea í bikarnum. “Ef Kanu spilar ekki í kvöld þá er okkar samskiptum við Arsenal lokið. Þetta er engin hótun því það er engin hótun í sannleikanum.” sagði Sedoc.