…smá meira: Ef leikurinn fer fram, eins og ég býst fastlega við, þá hefst hann kl.20:30 eins og fram kemur í greininni og miðaverð verður þetta: 17 ára og eldri 800 kr. 11 - 16 ára 300 kr. 10 ár og yngri frítt
Ég skil þá vel. Svona úrslitaleikur á náttúrulega að fara fram á grasi. Vellirnir koma langflestir mjög vel undan vetri, ég var t.d. að koma frá Eyjum og þar er völlurinn iðagrænn og fallegur (Samt ekki að segja að úrslitaleikurinn eigi að fara fram þar).
Það var aldrei mín hugmynd að koma með síður fyrir öll liðin í Símadeildinni. Ég rakst bara á einhverja umræðu um Skaga-síðuna og fattaði ekki neitt í neinu. Svo fór ég að gá að þessu og þarna var hún! Sér síða bara um ÍA. En þar sem ég er umsjónarmaður yfir Símadeildar-áhugamálinu (ásamt Xavier) fannst mér rétt að senda út tilkynningu um þetta mál. Ég er ekki fylgjandi þessu. Punktur.
Þarna er ekki verið að spyrja um sigurvegara í Símadeildinni, heldur Deildarbikarkeppni KSÍ. Það er komið að undanúrslitum þar og eru þetta einu liðin sem koma til greina sem sigurvegarar. Grindavík sló ÍBV út þannig að það eru engir möguleikar fyrir þá að vinna. Svo einfalt er það!
Helgi Björnsson syngur Framlagið ásamt leikmönnum meistaraflokks Fram í fótbolta. Það er nokkuð gamalt og ég man ekki textann. — Þetta hefði frekar átt að fara á korkana!
Þú segir nokkuð (blót). En nokkur dæmi á prófinu voru alveg fáránlega létt. Ég ætlaði t.d. að gefa mér góðan tíma í seinasta dæmið því ég hélt að það ætti eftir að verða alveg mega-þungt (það leit nú þannig út) en svo var þetta bara brandari. Bara draga smá frá. Svo kunni ég ekkert í jöfnuhneppum og ég þakka fyrir það að EKKERT svoleiðis dæmi kom á prófinu.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..