Leedsarar stefna heldur ekki á sigur í keppninni, vilja bara standa sig vel enda að byggja upp skemmtilegt lið. Varðandi markið sem Raul skoraði með “hendi guðs” þá tók dómarinn ekki eftir því að hann sló boltann inn fyrr en eftir leikinn á sjónvarpsupptöku. Hann bað þá um að fá að fara inn í búningsklefa Leeds og biðjast afsökunar. Hann fékk það og David O´Leary var hrifinn af þessu framlagi dómarans.