Martyn til Celtic. Nigel Martyn hinn 34 ára gamli markvörðu Leeds United er mjög líklega á leið til Glasgow Celtic í sumar fyrir 6 milljónir punda. Leeds munu einfaldlega neiðast til að taka þessu tilboði til að halda hinu 21 árs gamla Paul Robinson hjá félaginu, en bæði AC Milan og Inter Milan hafa verið að grenslast fyrir um möguleika á að kaupa Robinson. Martyn hefur verið frábær fyrir Leeds á undanförnum árum, en enginn klúbbur getur haldið tveim markvörðum sem eru að berjast um að vera fyrsti markvörður enska landsliðsins. Þannig að það er ljóst að David O´leary þarf að hafna og velja í sumar og tel ég að það sé mjög augljóst val hjá honum, Martyn á í mesta lagi 2-3 góð ár eftir á meðan það eru enn 8-9 ár þar til Paul Robinson verður kominn á besta aldur markvarða og er hann mjög öflugur samt nú þegar!