Ef Liverpool vinnur Birmingham á sunnudaginn í úrslitaleik deildarbikarsins þá mun Jamie Redknapp taka við bikarnum þótt hann spili ekki einu sinni leikinn.

Robbie Fowler og Sami Hyypia hafa verið fyrirliðar Liverpool í fjarveru Redknapp en þeir eru tilbúnir að gefa Redknapp heiðurinn því hann sé hinn sanni fyrirliði Liverpool.