Úrvalsdeildarlið Fram í Knattspyrnu hefur fengið ágætan liðsstyrk, enn hin efnilegi markvörður Snorri Birgisson hefur skrifað undir samning hjá Frömurum. Snorri var hjá Keflavík fyrir. Eftir að undirritaður tók eftir pilti á æfingu í gærkvöldi hjá Frömurum er óhætt að segja að þarna fer 17 ára gamall piltur vel fram úr getu jafnaldra sýna. Snorri verður væntanlega varamarkvörður fyrst um sinn þar sem Fjalar Þorgeirsson stendur milli stanganna eins og er en hver veit ? Og ég hef fulla trú á stráksa miðað við það sem ég hef séð til hans.