Alex Ferguson ætlar að verðlauna Teddy Sheringham fyrir frábært tímabil með því að bjóða honum samning sem mun tryggja það að hann endi ferilinn með Man. Utd. Ferguson hefur sagt að þetta tímabil sé besta tímabil Sheringham fyrir Manchester og vilji hann halda honum þar út ferilinn.
Sheringham sagði við þetta tækifæri að hann hefði enn áhuga á að spila fyrir England og sé ekki búinn að gefa upp von á að það gerist aftur.