Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Cruxton
Cruxton Notandi frá fornöld 44 ára karlmaður
2.388 stig
“True words are never spoken”

Ég er ofsóttur af litlum börnum! (7 álit)

í Börnin okkar fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Ég er langyngstur af 3 bræðrum og þar af leiðandi frekar óvanur að umgangast smábörn. Finnst þau hálfgert eins og postulínið hennar mömmu…eitthvað sem auðvelt er að brjóta ef maður passar sig ekki og nauðsynlegt að fara varfærnislega með…og sýna fyllsta aðgát! Ein af aðal ástæðunum fyrir því að kærastan “dömpaði” mér á sínum tíma var að ég nennti aldrei að leika við yngri systkyni sín! Eina sem 11.ára strákurinn gerði var að leika sér í leikjatölvu…sem mér fannst tímasóun því ég sóaði...

Bransinn í dag? (9 álit)

í Kvikmyndagerð fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Ég hef margoft pælt í því hvað kvikmyndatökumenn & klippifólk hjá kvikmyndaframleiðslufyrirtækjum og sjónvarpsstöðvum Íslandi hefur lært eða lagt á sig til að komast í föst störf í þessum harða bransa. Eru til dæmi um að menn hafi lært þetta algjörlega upp á eigin spýtur? (veit t.d. að Friðrik Þór fór aldrei í neinn kvikmyndaskóla) Er ekki mikið af innlendu dagskrárefni í dag unnið sem verktakavinna? Vitið þið um einhver verðdæmi hvað sjónvarpsstöðvar hafa verið að borga fyrir freelance...

Stjörnustælar (19 álit)

í Fræga fólkið fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Þetta er nokkuð merkileg grein um hvaða hollívúdd leikarar eru með mestu kröfurnar og stjörnustælana: http://entertainment.msn.com/news/ar ticle.aspx?news=110842 Sérstaklega um sigurvegarann = prímadonnan Jennifer Lopez. Það segir að í hjúskaparsáttmála þeirra Ben Afflecs sé hann skuldbundinn til að stunda með henni kynlíf a.m.k. 4 sinnum í viku og þurfi að borga 1 millj. dollara fyrir að setja ósatt! Er heilbrigt að bæta við í hjúskaparsáttmála klausu um lágmarks kynlíf á viku? Og það sem...

Viltu koma út að leika? (12 álit)

í Kvikmyndagerð fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Ég á Canon XL-1S og hef verið að taka upp nokkrar stuttmyndir, artí náttúrumyndir ofl. Reyndar má þó segja að eftir að ég keypti með vini mínum pro microphone (senheiser) hættu öll samtöl að vera þvoglumælt og léleg…og urðu loksins skiljanleg, eðlileg og skýr :-) Vandamálið með að taka upp stuttmyndir & fyndna sketcha á Íslandi er að mínu mati leikarar. Oftast eru þetta vinir & kunningjar…sem mæta tja…óreglulega og líta á þetta meira sem spennandi félagsmiðstöð til spjalla og fíflast heldur...

Götur eru ekki ruslafötur (8 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Verðlítill líkaminn sefur loks þungum draumi ódýrt hárið kramið saman undir flóknu höfði hvítþvegnar tennur skýna en hættar að vaxa bros hennar tattúað inn í bæði heilahvelin minna mig á falska hamingju á silfurfati stórskuldug ástin berst fyrir gjaldþroti örstutt návera hennar hellir úr gljáandi skálum á viðhvæmt vogarafl eys glóandi kolum á löngu frosið sprek skínandi brosið fæðir öskrandi 14 merkur fiðring í hlýju brjósti saklaus snertingin stingur mann grunlausan svo úr blæðir bíðandi...

Heilagur andi (1 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Hlýr og bjartur arineldur slökknar allt orðið kallt með hvítar varir reyni að syngja rámur hálsinn stynur upp útbrennda tóna verða að ösku er í eyru þín hljóma pakka niður og varðveiti minn ljúfasta koss rykfallinn bíður eftir nýjum eigenda svipti andlitinu mínu fegursta brosi jarðsyng það burt með heilögum anda

Nautgripur (1 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Kálfur á djamminu baular týndur kann ekki að vera hann sjálfur horfir með tindrandi augum út vill ekki vera slátrað í nótt leitandi að hinu eina rétta svari saknar hennar en veit ekki neitt horfir langt inn í tómleit augu öfundar alsgáða heimalinga

Deyjandi draumar (4 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Æskudraumurinn endar og augun opnast fyrsta hugsun dagsins logandi kvíði rósótt fölnandi rúmfötin hætt að lykta fyrrverandi parísartíska hangir á stól skerandi barnsgrátur biður góðan dag skítug bleyjan hefur storknað í nótt reykfyllt loftið leikur um útgrátna vanga umslagafjallið við dyrnar hætt að gjósa falskir tónar símans fjara út birtan hætt að skína inn kuldinn tekinn við allt er hljótt

Hafsgola (0 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Ávextir sakleysins liggja undir skemmdum bitur fræin uppþornuð óplægðir akrar eins langt og augað eygir hlýr vorvindurinn sópar burt sorginni flytur hana langt á haf út drekkir henni loks í seltum sjó fullum af lífi

Dómarar ættu að skammast sín! (37 álit)

í Deiglan fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Í fréttum nýlega var 26ára karlmaður af vestfjörðum dæmur í 3mánaða fangelsi fyrir kynferðisafbrot gegn 3 stúlkum…eða því sem samsvarar einn mánuð á kjaft. Það sem vekur furðu er að í einu afbrotanna ákvað ríkissaksóknari að falla frá kæru vegna þess að brotamaðurinn var 15-18ára þegar glæpurinn átti sér stað. Einnig finst mér óskiljanlegt hvernig hægt er að dæma mann í 3 mánaða fangelsi fyrir þessa grófu kynferðisglæpi gegn stelpunum sem voru framdir þegar þær voru aðeins kornungar. Gerir...

Sótthiti (1 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Án söknuðar yrði vor saga ei sögð síðla nætur ráfa um leitandi að svörum tómleg tillitsemin ávall í heiðri höfð tæmist öll von af þínum mjúku vörum spurningar án svara óma allt í kring hendur fálma í svefni eftir köldu laki sumir endurskýna ást sína í gylltum hring aðrir bera þungan kross á sínu bera baki aðkeypt afþreyingin étur sálina hráa ælir út skerandi einsemd á vökunóttum logandi óttinn lifir í hjartanu smáa lifandi þráin smitar mig skæðum sóttum

Gangandi tómarúm (1 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Skilnaðurinn herjar hvíldarlaus á mig heyri í honum meðan ég vaki særir mig liggjandi í svefni með nafn þitt á vör skýtur mig úr leyni með gylltum boga svífandi örin sker kalda næturgoluna sé hana á meðan ég sef hrukkur myndast og hárin hvítna hvítleitt andlitið afmyndast hægt blóðið í æðum þynnist út með vatni lystarleysið segir frumum upp störfum dregið er fyrir og öllum gluggum lokað loftleysið kæfir niður gleymdar minningar læstur inni með dimmu ryki sem félagsskap vakta símann ef þú...

Frostbitinn koss (1 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Uppþornaður skaufþurr hálsinn tómur stynur upp gleymda tóna liðins sumars þegar yndisfögur ástin óx úr grasi sáði fagurgrænni hlýju yfir fólkið í kring haustið knýr þá vitru til að grafa sig niður í volgri jörðu kúra þeir heppnu saman eiga saman öfundsverð jól með ánægju út að eyrum ég reika um ofanjarðar ráðvilltur nakinn leitandi að ástæðu frosinna tára blár af kulda leita að fokheldu skjóli meðan kuldaboli blæs á mig kaldri kveðju

Hávær tóm tunna (3 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Heimurinn riðar blindfullur til falls allt er týnt og tröllum gefið nístandi svitaborinn sársaukinn sturtast hægt niður í klósettið tárin streyma niður mína rjóðu vanga með hljóðdeifi öskra á hjálp líkaminn titrar af sárum ekka meðan þú horfir á uppstoppuð í útrýmingarhættu nýr dagur fæðist óvelkominn í heiminn leitar sér að einstæðum foreldrum til að hrella lappirnar ganga til vinnu en hugurinn eftir heima tómur hausinn hlær gervilega á fullum launum af útþynntum bröndurum yfirmanna með bindi

Hengdu kött fyrir framan leikskólabörn!! (127 álit)

í Kettir fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Tvær systur í Bandaríkjunum (24ára og 20ára) voru dæmda á dögunum fyrir að draga kisu, sem heitir Garfield og barðist um hæl og hnakka meðann hann var dreginn, inn á leikskólalóð þar sem fjölmörg börn voru við leik og hengja kisuna með snúru fyrir framan öll börnin!! Maður á varla til orð… http://www.cnn.com/2002/US/Northeast/10/29/ca t.hanging.ap/index.html

Einmana ástarhreiður (3 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Snjórinn bráðnar hægt í koparlokkum þínum kyngir niður á allt í kring feiminn þorir ekki að kyssa þínar röku varir frostið heldur niðrí sér andanum vindurinn þorir ekki að bása ekki á meðan þú ert í heimsókn þramma móti vindi með rauðleitt veðurbarið andlit hleyp af öllum lífs og sálarkröftum hálfgrátnar minningar elta mig á röndum sting þær allar af holdvotur í fæturna fögur ásjóna þín speglast í hverjum einasta polli dagskrárlok RUV bjóða góða nótt tómleikinn heimsækir mann óboðinn heim...

Neytandinn (0 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Stafrænn hugurinn svífur meðal fjarlægra sólkerfa reiknandi kvaðratrótina af einum með endalausum aukastöfum brennur yfir afslættinum við búðarkassann í Bónus kór auglýsinga syngur ljúfa tóna í eyrun köld með rámri röddu syng með þótt ég kunni ekki textann slefa yfir hamingju brosandi módela á neytendapökkum fylli körfuna af verksmiðjuframleiddum lífsgæðum í nafni Vísa, föðurs og hinum heilaga anda amen hjartað tekur kipp er innheimtumenn banka hömlulaust hrægammar svífandi miskunnarlaust...

Óargadýranna eðli grimmt (1 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Spegilsléttur líkaminn iðar svo skemmtilega af lífi í kvöld mun ég loks gera mér glaðan dag fylla hjartað af félagskap löngu gleymdra vina salta niður sorgir og hefja gullgröft góðra stunda píni í mig bragðvonda vökva til að vera í stíl hrópa upp bældar hugsanir öllum til ómældrar ánægju með lokuð augun svíf ofar hinum gráa hversdagsleika vakna upp frá dauðum með eldspúandi ófreskju ofan á bið fallega um friðarviðræður veifandi hvítum fána dýrslegt augntillitið skýtur neisum með urrið grimmt...

Andlegur arfi (1 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Gróðurset vandlega heilbrigt lítið fræ vökva það með allri minni ástúð og hlýju held því fast upp að mínu fátæklega hjarta skýli því fyrir votu veðri og hvössum vindum feimnir sólargeislar læðast framúr dúnmjúkum skýjum glitrandi droparnir speglast sem dýrnidis perlur moldin kveikir líf í litlausri frostbitinni jörðu stilkurinn sprettur upp svo fagurgrænn af listrænum þokka springur út eftir Guðs litabók í öllum hans skærustu litum en sum litskrúðustu blómin eru lyktarlaus með öllu sumt...

Kvöldstund (3 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Leigi einsemdina burt á video formi grafkyrr samvex sófanum heilt ævikvöld fullkominn heilinn þyrstir í að skapa fegurstu hluti sem mannkynið elur af sér blábjartur bjarminn geislar á mjúkum vanga fagurt brosið kyssir kalt spegilslétt glerið fagurblá augun speglast tómu rafmagnsljósi hugsunin slökknar til að spara orku næsta dag plantar sér á færibandið og hugsar hvað gerði ég nú í gærkvöldi?

Mín eina ást (1 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Hið fátæklega líf horfir á mig svo agnar smátt vill fá að vita hvaðan óhamingjan rótum sprettur þráir að snerta þennan líkama sem óðfluga blæðir út langar að þerra útgrátin augun sægræn og himinskær bara ef heimurinn væri eins falleg og hugsun þín myndu þá sólrósir springa glitrandi út eftir regnbogans litum myndi þunglyndið gleyma sér í gleðivímu félagsskapar myndi hlátur breytast í grátur þótt kjánalegt sýndist ef fas mitt gæti platað hug þinn enn eitt skiptið sveipað hulu yfir mína...

Hversdagshetjan (0 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Brostið hjarta leitar ævina á enda á vit leyndra ævintýra og litfagra drauma týnir sér í dagdraumum með augun sljó sekkur dýpra inní myrkvað sjálfið tómt fikrar sig í svefni nær hinu skæra ljósi ljósi tærleika og áður vaknaðra drauma snertir ástvin en finnur alls ekki neitt því ég er ekki hér, aðeins fölbleikur líkaminn vorkunin og vonleysið skera djúp sár blæðandi reyni að brosa framan í heiminn hversdagshetja sem vinn litla sigra orustan er framundan en stíðið endar aldrei

Endurfundir (0 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Gjörðir liggja fyrir dómi þegar ævin er dæmd orðin og hugurinn grafin niður í helga jörð flesta dreymir um að deyja með fullri sæmd gærunni klæðst til að sameinast drottins hjörð eftirlifnadi ástmey heimsækir garðinn helga snævi þakið teppið heilsar með kaldri kveðju grætur dýrum tárum sem bræðir sig gegnum jörðu brátt munu endurfundirnir ylja frosinni kistu

Litríkir morgnar (1 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Fullnægður líkaminn rís upp heilbrigð sál sængurfötin blautbúin fannhvít frá fönn þriggja barna heimavinnandi læðan vælir bíðandi eftir tékka frá kvennsömum fresslúser loftið blandað vínlykt þagnaðra brandara sitjandi á strigastól reykir blauta sígarettu rúnkandi sér ljós bjartsýni og velgengni einmana sæðið núir á sér augun af vonbrigðum glottandi málverk eftir nóbody hengur uppi skakkt afi uppi á himnum reykspólar í burtu á spítthjólaskýji blóm í glugganum horfir í hina skuggsæla áttina...

Orð sem særa (1 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Ég sit hjá þér, hlustandi á orð sem særa andlit mitt sviplaust en hjartað grætur sjálfsmyndin brotin en hvað segir þú mín kæra? svefninn leggur mig í einelti eylífar nætur dagurinn líður áfram meðal deyjandi vera barnlausir spurja sjálfa hvað skal síðan gera? köld sængin spyr mann forvitin hvernig gekk í dag flaskan tóm endurspeglar hvað allt er manni í óhag brjóstið öskrar og maginn vælir sárum tónum ærandi þögnin yfirgnævir invortis hljóma deyjandi metnaðurinn gerir menn að rónum minningin...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok