Leigi einsemdina burt á video formi
grafkyrr samvex sófanum heilt ævikvöld

fullkominn heilinn þyrstir í að skapa
fegurstu hluti sem mannkynið elur af sér
blábjartur bjarminn geislar á mjúkum vanga
fagurt brosið kyssir kalt spegilslétt glerið
fagurblá augun speglast tómu rafmagnsljósi
hugsunin slökknar til að spara orku

næsta dag plantar sér á færibandið og hugsar
hvað gerði ég nú í gærkvöldi?
“True words are never spoken”